Mannssonurinn birtist

9 Ég, Jóhannes, bróðir yðar, sem í Jesú á hlutdeild með yður í þrengingunni, ríkinu og þolgæðinu, var á eynni Patmos sakir Guðs orðs og vitnisburðarins um Jesú. 10 Ég var hrifinn í anda á Drottins degi og heyrði að baki mér raust mikla, sem lúður gylli, 11 er sagði: „Rita þú í bók það sem þú sérð og send það söfnuðunum sjö í Efesus, Smyrnu, Pergamos, Þýatíru, Sardes, Fíladelfíu og Laódíkeu.“
12 Ég sneri mér við til að sjá hvers raust það væri sem við mig talaði. Og er ég sneri mér við sá ég sjö gullljósastikur 13 og milli ljósastikanna einhvern, líkan mannssyni, klæddan skósíðum kyrtli og gullbelti var spennt um bringu hans. 14 Höfuð hans og hár var hvítt eins og hvít ull, eins og mjöll, og augu hans eins og eldslogi. 15 Og fætur hans voru sem glóandi málmur í eldsofni og raust hans sem niður mikilla vatna. 16 Hann hafði í hægri hendi sér sjö stjörnur og beitt, tvíeggjað sverð gekk út af munni hans og ásjóna hans skein sem sólin í mætti sínum.
17 Þegar ég sá hann féll ég fyrir fætur honum sem dauður væri. Og hann lagði hægri hönd sína yfir mig og sagði: Vertu ekki hræddur, ég er hinn fyrsti og hinn síðasti 18 og hinn lifandi. Ég dó en nú lifi ég um aldir alda og ég hef lykla dauðans og heljar. 19 Rita þú nú það er þú sérð, bæði það sem er og það sem verður eftir þetta. 20 Þessi er leyndardómurinn um stjörnurnar sjö, sem þú hefur séð í hægri hendi minni, og um gullstikurnar sjö. Stjörnurnar sjö eru englar þeirra sjö safnaða og ljósastikurnar sjö eru söfnuðirnir sjö.