Páll prédikar í Róm

17 Eftir þrjá daga stefndi hann saman helstu mönnum Gyðinga. Þegar þeir voru saman komnir sagði hann við þá: „Bræður, ekkert hef ég brotið gegn þjóð okkar eða siðum feðranna en samt er ég fangi, framseldur Rómverjum í Jerúsalem. 18 Þeir yfirheyrðu mig og vildu láta mig lausan af því að á mér hvíldi engin dauðasök. 19 En Gyðingar mæltu á móti og neyddist ég til að skjóta máli mínu til keisarans. Ekki þó til þess að ákæra þjóð mína. 20 Sakir þessa hef ég kallað ykkur hingað að ég mætti sjá ykkur og tala við ykkur, því vegna vonar Ísraels ber ég þessa hlekki“.
21 Þeir svöruðu: „Við höfum ekki fengið bréf um þig frá Júdeu og eigi hefur heldur neinn bræðranna komið hingað og birt eða talað nokkuð illt um þig. 22 Rétt þykir okkur að heyra hjá þér hvað þér býr í huga en það er okkur kunnugt um flokk þennan að honum er alls staðar mótmælt.“
23 Þeir tóku til dag við hann og komu þá mjög margir til hans þar sem hann dvaldi. Frá morgni til kvölds skýrði Páll og vitnaði fyrir þeim um Guðs ríki og reyndi að sannfæra þá um Jesú, bæði eftir lögmáli Móse og spámönnunum. 24 Sumir létu sannfærast af orðum hans en aðrir trúðu ekki. 25 Fóru þeir burt ósamþykkir sín í milli en Páll sagði þetta eitt: „Rétt er það sem heilagur andi lét Jesaja spámann segja við forfeður ykkar:
26 Far til lýðs þessa og seg þú:
Með eyrum munuð þér heyra en alls eigi skilja
og sjáandi munuð þér horfa en ekkert sjá.
27 Því að hjarta lýðs þessa er sljótt orðið
og illa heyra þeir með eyrum sínum
og augunum hafa þeir lokað
svo að þeir sjái ekki með augunum
né heyri með eyrunum
og skynji með hjartanu og snúi sér
og ég lækni þá.

28 Nú skuluð þið vita að Guð hefur sent heiðingjunum þetta hjálpræði sitt og þeir munu hlusta.“
30 Full tvö ár var Páll þar í húsnæði sem hann hafði leigt sér og tók á móti öllum þeim sem komu til hans. 31 Hann boðaði Guðs ríki og fræddi um Drottin Jesú Krist með allri djörfung, tálmunarlaust.