Hegning, iðrun, von

1Ég er maðurinn sem hefur þjáðst undir reiðisvipu hans.
2Mig hefur hann hrakið burt,
út í myrkur og niðdimmu.
3Gegn mér snýr hann hendi sinni
án afláts allan daginn.
4Hann hefur tálgað af mér hold og hörund
og mulið bein mín.
5Beiskju og mæðu
hefur hann hlaðið upp í kringum mig,
6hneppt mig í myrkur
eins og þá sem dánir eru fyrir löngu.
7Hann hefur múrað mig inni svo að ég kemst ekki út,
lagt á mig þunga fjötra.
8Þótt ég hrópi og kalli á hjálp
hafnar hann bæn minni.
9Hann hefur lokað vegum mínum með höggnum steinum,
gert stigu mína torfæra.
10Hann sat um mig eins og björn um bráð,
eins og ljón í launsátri.
11Hann leiddi mig afvega og tætti mig sundur,
hann gerði út af við mig.
12Hann spennti boga sinn og stillti mér upp
sem skotmarki fyrir örina.
13Hann nísti nýru mín
með sonum örvamælis síns.
14Ég varð allri þjóð minni að athlægi,
hún syngur um mig háðkvæði liðlangan daginn.
15Hann mettaði mig beiskum jurtum,
gaf mér malurt að drekka,
16lét mig bryðja möl
og þrýsti mér í duftið.
17Þú hefur rænt mig friði,
ég veit ekki lengur hvað hamingja er
18og segi: „Allur þróttur er mér horfinn
og brostin von mín til Drottins.“
19Minnstu neyðar minnar og hrakninga,
malurtarinnar og eitursins.
20Sál mín hugsar sífellt um þetta
og er döpur í brjósti mér.