Gjöf heilags anda

1 Þá er upp var runninn hvítasunnudagur voru allir saman komnir á einum stað. 2 Varð þá skyndilega gnýr af himni, eins og óveður væri að skella á, og fyllti allt húsið þar sem þeir voru. 3 Þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á hvert og eitt þeirra. 4 Allir fylltust heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla.
5 Í Jerúsalem dvöldust Gyðingar, guðræknir menn, frá öllum löndum undir himninum. 6 Er þetta hljóð heyrðist kom allur hópurinn saman. Þeim brá mjög við því að hver og einn heyrði þá mæla á sína tungu. 7 Menn voru frá sér af undrun og sögðu: „Eru þetta ekki allt Galíleumenn sem hér eru að tala? 8 Hvernig má það vera að við, hvert og eitt, heyrum þá tala okkar eigið móðurmál? 9 Við erum Partar, Medar og Elamítar, við erum frá Mesópótamíu, Júdeu, Kappadókíu, Pontus og Asíu, 10 frá Frýgíu og Pamfýlíu, Egyptalandi og Líbýubyggðum við Kýrene og við sem hingað erum flutt frá Róm. 11 Hér eru bæði Gyðingar og þeir sem tekið hafa trú Gyðinga, Kríteyingar og Arabar. Við heyrum þá tala á tungum okkar um stórmerki Guðs.“ 12 Allir voru furðu lostnir og ráðalausir og sögðu hver við annan: „Hvað getur þetta verið?“
13 En aðrir höfðu að spotti og sögðu: „Fólkið er drukkið af sætu víni.“

Ræða Péturs

14 Þá steig Pétur fram og þeir ellefu og hann hóf upp raust sína og mælti til þeirra: „Gyðingar og allir Jerúsalembúar! Þetta skuluð þið vita. Ljáið eyru orðum mínum. 15 Eigi eru þessir menn drukknir eins og þið ætlið enda aðeins komin dagmál.[ 16 Hér er að rætast það sem spámaðurinn Jóel segir:
17Það mun verða á efstu dögum, segir Guð,
að ég mun úthella anda mínum yfir alla menn.
Synir yðar og dætur munu spá,
ungmenni yðar munu sjá sýnir
og aldraða yðar á meðal mun drauma dreyma.
18Jafnvel yfir þræla mína og ambáttir mínar
mun ég á þeim dögum úthella anda mínum,
og þau munu spá.
19Og ég mun láta undur verða á himnum uppi
og tákn á jörðu niðri,
blóð, eld og reykjarmökk.
20Sólin mun snúast í myrkur
og tunglið í blóð
áður en dagur Drottins kemur, hinn mikli og dýrlegi.
21En hver sá sem ákallar nafn Drottins mun frelsast.