Gegn Edóm

7Um Edóm.
Svo segir Drottinn hersveitanna:
Er engin speki framar í Teman?
Eru góð ráð horfin hinum hyggnu?
Er speki þeirra spillt?
8Flýið, snúið við, skríðið í felur,
þér sem búið í Dedan.
Því að ég sendi böl yfir Esaú,
sá tími er kominn að ég geri sakirnar upp við hann.
9Ráðist vínyrkjar að þér
skilja þeir ekkert eftir.
Komi þjófar um nótt
gera þeir þann usla sem þeim sýnist.
10Já, ég mun sjálfur afhjúpa Esaú,
ljóstra upp um felustaði hans
svo að hann fái ekki dulist lengur.
Afkvæmi hans og skyldmenni verða upprætt,
nágrönnunum eytt svo að enginn getur sagt:
11„Skildu munaðarleysingjana eftir.“
Ég skal halda í þeim lífinu.
Ekkjurnar geta treyst mér.

12 Já, svo segir Drottinn:
Takið eftir. Ef þeir sem ekki eru dæmdir til að drekka bikarinn verða að drekka hann verður þér þá hlíft við því? Þér verður ekki hlíft því að þú skalt drekka hann. 13 Já, ég hef svarið við sjálfan mig, segir Drottinn, að Bosra verði til skelfingar og smánar, henni skal verða eytt og bölvun lögð á hana og allar borgirnar, sem tilheyra henni, verða lagðar í rúst um alla framtíð.
14Ég hef heyrt þau tíðindi frá Drottni
að boðberi hafi verið sendur til þjóðanna:
„Sameinist, ráðist gegn Edóm,
haldið til orrustu.“
15Ég geri þig smæsta þjóðanna,
fyrirlitna meðal manna.
16Skelfingin sem þú veldur
og stærilæti þitt blekktu þig,
þú sem býrð í klettaskorum,
heldur þig á háum tindum.
Þó að þú gerir þér hreiður jafnhátt og örn
steypi ég þér niður, segir Drottinn.

17 Edóm mun valda skelfingu. Hver sem fer þar fram hjá verður skelfingu lostinn og blístrar háðslega yfir öllum áföllunum sem Edóm hefur orðið fyrir. 18 Eins og þegar Sódóma og Gómorra og nágrannaborgir þeirra höfðu verið eyddar, segir Drottinn, þar mun enginn maður búa og enginn hafa viðdvöl.
19Líkt og ljón, sem rís upp úr kjarrinu á bökkum Jórdanar
og stígur upp á sígrænt engið,
mun ég flæma þá burt á augabragði
og velja mér bestu sauðina að bráð.
Því að hver er jafningi minn?
Hver krefur mig um reikningsskil?
Hvaða hirðir stenst frammi fyrir mér?
20Heyrið því ákvörðun Drottins
sem hann hefur tekið gegn Edóm,
ráðin sem hann hefur ráðið
gegn íbúunum í Teman:
Sannarlega verða jafnvel hinir minnstu í hjörðinni
dregnir í burtu,
sannarlega mun þeirra eigin bithaga
hrylla við örlögum þeirra.
21Jörðin nötrar við brakið af hruni þeirra,
kveinið þaðan heyrist alla leið að Sefhafinu.
22 Fjandmaðurinn hefur sig til flugs,
kemur svífandi eins og örn
og þenur vængina út yfir Bosra.
Þann dag verður hjarta kappanna í Edóm
eins og hjarta konu í barnsnauð.