Biblíulestur 20. apríl – Jer 7.16-34

2020-01-29T12:37:00+00:00Mánudagur 20. apríl 2020|

Hjáguðadýrkun

16 Þú skalt ekki biðja fyrir þessari þjóð og hvorki hefja upp kveinstafi né grátbeiðni þeirra vegna. Þú skalt ekki leggja að mér því að ég hlusta ekki á þig. 17 Sérðu ekki hvað þeir eru að gera í borgunum í Júda og á götunum í Jerúsalem? 18 Börnin tína saman eldivið, feður þeirra kveikja eld og konurnar hnoða deig í fórnarkökur handa drottningu himinsins. Þeir færa öðrum guðum dreypifórnir til að skaprauna mér. 19 En skaprauna þeir mér? segir Drottinn.
Skaprauna þeir ekki öllu fremur sjálfum sér og roðna af skömm? 20 Því segir Drottinn: Reiði minni og heift verður úthellt yfir þennan stað, yfir menn og skepnur, yfir tré merkurinnar og ávexti akursins. Reiði mín mun brenna og ekki slokkna.

Ádeila á musterisþjónustuna

21 Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels:
Hlaðið brennifórnum yðar ofan á sláturfórnirnar og etið kjötið. 22 Ég talaði hvorki við forfeður yðar né gaf þeim fyrirmæli um brennifórnir og sláturfórnir þegar ég leiddi þá út úr Egyptalandi. 23 En ég gaf þeim þessi fyrirmæli: Hlýðið boðum mínum, þá verð ég Guð yðar og þér verðið lýður minn. Gætið þess að fylgja nákvæmlega þeim vegi sem ég hef boðið yður svo að yður vegni vel. 24 En þeir heyrðu ekki og lögðu ekki við hlustir heldur fylgdu eigin ráðum í þverúð síns illa hjarta. Þeir sneru við mér baki, ekki andlitinu. 25 Frá þeim degi, þegar forfeður yðar fóru út úr Egyptalandi og fram á þennan dag, hef ég stöðugt, aftur og aftur, sent yður alla þjóna mína, spámennina. 26 En þeir hlustuðu ekki og lögðu ekki við eyrun heldur gerðust harðsvíraðir og breyttu enn verr en feður þeirra.
27 Þegar þú boðar þeim allt þetta munu þeir ekki hlusta. Þegar þú hrópar til þeirra munu þeir ekki svara þér. 28 Þú skalt því segja við þá: Þetta er þjóðin sem hlustaði ekki á rödd Drottins, Guðs síns, og hlýddi ekki leiðsögn hans. Horfin er trúfestin, upprætt úr munni þeirra.

Viðurstyggð hjáguðadýrkunarinnar

29 Skerðu af þér lokkana og fleygðu þeim, syngdu harmljóð á gróðurvana hæðum, því að Drottinn hefur hafnað og útskúfað þeirri kynslóð sem hann reiddist. 30 Júdamenn hafa gert það sem illt er í augum mínum, segir Drottinn. Þeir hafa reist viðurstyggilegar guðamyndir sínar í húsinu, sem kennt er við nafn mitt, til þess að saurga það. 31Þeir hafa reist Tófet-fórnarhæðir[ í Hinnomssonardal til þess að brenna syni sína og dætur í eldi. Það hef ég hvorki boðið né heldur komið það í hug.
32 Sjá, þeir dagar munu koma, segir Drottinn, að ekki verður lengur talað um Tófet og Hinnomssonardal heldur um Drápsdal. Þá verða svo margir grafnir í Tófet að ekki verður neitt rúm eftir.[ 33 Lík þessa fólks verða æti handa fuglum himins og dýrum merkurinnar og enginn mun fæla þau burt. 34 Ég mun þagga niður fagnaðar- og gleðihróp, köll brúðguma og brúðar í borgum í Júda og á strætum í Jerúsalem, því að landið verður lagt í eyði.

Title

Fara efst