13 Dæmum því ekki framar hvert annað. Hitt skuluð þið ákveða að verða trúsystkinum ykkar ekki til ásteytingar eða falls. 14 Það veit ég með fullri vissu í trúnni á Drottin Jesú að ekkert er vanheilagt í sjálfu sér nema þá þeim sem heldur eitthvað vanheilagt, honum er það vanheilagt. 15 Ef bróðir þinn eða systir[ hryggist sökum þess sem þú etur, þá ertu kominn af kærleikans braut. Hrind ekki með mat þínum í glötun þeim manni sem Kristur dó fyrir.
16 Látið því ekki hið góða sem þið eigið verða fyrir lasti. 17 Guðs ríki er ekki matur og drykkur heldur réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda. 18 Hver sem þannig þjónar Kristi er Guði velþóknanlegur og í metum hjá mönnum.
19 Keppum þess vegna eftir því sem til friðar heyrir og eflir samfélagið. 20 Brjóttu ekki niður verk Guðs vegna matar. Allt er að sönnu hreint en allt verður samt illt þeim manni sem etur öðrum til falls. 21 Það er rétt að eta hvorki kjöt né drekka vín eða gera neitt það annað sem kemur illa við bróður þinn eða systur. 22 Haltu fast við trúna sem þú átt með sjálfum þér frammi fyrir Guði. Sæll er sá sem þarf ekki að áfella sig fyrir það sem hann telur vera rétt. 23En sá sem er efablandinn og etur þó, hann er dæmdur af því að hann gerir það ekki af trú. Allt sem er ekki af trú er synd.