9 Elskan sé flærðarlaus. Hafið andstyggð á hinu vonda en haldið fast við hið góða. 10 Verið ástúðleg hvert við annað í bróðurlegum kærleika og keppist um að sýna hvert öðru virðingu. 11 Verið ekki hálfvolg í áhuganum, verið brennandi í andanum. Þjónið Drottni. 12 Verið glöð í voninni, þolinmóð í þjáningunni, staðföst í bæninni. 13 Takið þátt í þörfum heilagra. Leggið stund á gestrisni.
14 Blessið þá er ofsækja ykkur. Blessið en bölvið ekki. 15 Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum. 16 Berið sama hug til allra, verið ekki stórlát, umgangist fúslega lítilmagna. Oftreystið ekki eigin hyggindum. 17 Gjaldið engum illt fyrir illt. Stundið það sem fagurt er fyrir sjónum allra manna. 18 Hafið frið við alla menn að því leyti sem það er unnt og á ykkar valdi. 19 Leitið ekki hefnda sjálf, mín elskuðu, látið reiði Guðs um að refsa eins og ritað er: „Mín er hefndin, ég mun endurgjalda,“ segir Drottinn. 20 En „ef óvin þinn hungrar þá gef honum að eta, ef hann þyrstir þá gef honum að drekka. Með því að gera þetta safnar þú glóðum elds á höfuð honum.“ 21 Lát ekki hið illa sigra þig en sigra þú illt með góðu.