Trú Abrahams

1 Hvað skal þá segja um forföður vorn Abraham, hvað ávann hann? 2 Ef hann varð réttlættur vegna verka sinna mætti hann hrósa sér. Þó ekki fyrir Guði. 3 Eða hvað segir ritningin? Abraham trúði Guði og það var honum til réttlætis reiknað. 4 Sá sem vinnur verk fær ekki laun fyrir það af náð. Hann fær það sem hann á rétt á. 5 En sá hins vegar sem engu afkastar en treystir þeim sem réttlætir óguðlegan fær trú sína metna sér til réttlætis. 6Eins og líka Davíð lýsir þann mann sælan sem Guð tilreiknar réttlæti án tillits til verka:
7Sælir eru þeir sem afbrotin eru fyrirgefin,
syndir þeirra huldar.
8Sæll er sá maður sem Drottinn
tilreiknar ekki synd.

9 Nær þessi sæluboðun aðeins til umskorinna manna? Eða líka til óumskorinna? Ég segi: Trúin var Abraham til réttlætis reiknuð. 10 Hvenær? Var hann umskorinn þá eða óumskorinn? Hann var ekki umskorinn þá, hann var óumskorinn. 11 Hann fékk umskurnina sem tákn, innsigli til staðfestingar á því réttlæti af trú sem hann átti óumskorinn. Þannig skyldi hann vera faðir allra þeirra sem trúa óumskornir svo að réttlætið tilreiknist þeim, 12og eins faðir þeirra umskornu manna sem eru ekki aðeins umskornir heldur feta veg þeirrar trúar sem faðir vor Abraham átti óumskorinn.