Réttlátur dómur Guðs

1 Því hefur þú, maður, sem dæmir, enga afsökun hver sem þú ert. Um leið og þú dæmir annan dæmir þú sjálfan þig því að þú, sem dæmir, fremur hið sama. 2 Við vitum að Guð dæmir þá með réttu sem slíkt fremja. 3Hyggur þú, maður, sem dæmir þá er þvílíkt fremja og gerir sjálfur hið sama, að þú munir umflýja dóm Guðs? 4Eða forsmáir þú hans miklu gæsku, þolinmæði hans og biðlund og lætur þér ekki skiljast að gæska Guðs vill leiða þig til afturhvarfs? 5 En þverúð þín og fráhvarf hjartans frá Guði safnar að sjálfum þér reiði sem mætir þér á degi reiðinnar þegar Guð birtir réttlátan dóm sinn. 6 Hann mun gjalda sérhverjum eftir verkum hans, 7 þeim eilíft líf sem leita vegsemdar, heiðurs og ódauðleika með staðfestu sinni í góðri breytni 8 en reiði og óvild hinum sem stjórnast af eigingirni, óhlýðnast sannleikanum en þjóna ranglætinu. 9 Þrenging og angist kemur yfir sérhverja mannssál er illt fremur, yfir Gyðinginn fyrst en einnig alla aðra. 10 En vegsemd, heiður og frið hlýtur hver sá er gerir hið góða, Gyðingurinn fyrst en Grikkinn líka. 11 Því að Guð mismunar ekki mönnum.
12 Allir, sem syndgað hafa án þess að þekkja lögmál, munu og tortímast án lögmáls og allir, sem syndgað hafa þótt þeir þekki lögmál, munu dæmast eftir lögmáli. 13 Ekki munu menn réttlætast fyrir Guði með því að hlýða á lögmálið heldur verða þeir réttlættir sem breyta eftir því. 14 Þegar heiðingjar, sem þekkja ekki lögmál Móse, gera það eftir eðlisboði sem lögmál Guðs býður, þá eru þeir sjálfum sér lögmál þótt þeir hafi ekki neitt lögmál. 15 Þeir sýna að krafa lögmálsins er skráð í hjörtum þeirra með því að samviska þeirra ber þessu vitni og hugrenningar þeirra sem ýmist ásaka þá eða afsaka. 16 Þetta verður á þeim degi er Guð dæmir hið dulda hjá mönnunum samkvæmt fagnaðarerindi mínu sem ég hef þegið af Jesú Kristi.