Menn þekktu ekki Guð

18 En reiði Guðs opinberast af himni yfir öllu guðleysi og illsku manna sem kefja sannleikann með ranglæti. 19Það sem vitað verður um Guð blasir við þeim. Guð hefur birt þeim það. 20 Ósýnilega veru hans, eilífan mátt og guðdómstign má skynja og sjá af verkum hans allt frá sköpun heimsins. Því eru mennirnir án afsökunar. 21Þeir þekktu Guð en hafa samt ekki tignað hann sem Guð né þakkað honum heldur fylltu þeir hugann af hégiljum og skynlaust hjarta þeirra hjúpaðist myrkri. 22 Þeir þóttust vera vitrir en urðu heimskingjar. 23 Í stað þess að tilbiðja dýrlegan, eilífan Guð hafa þeir tilbeðið myndir af dauðlegum mönnum, fuglum, ferfætlingum og skriðkvikindum.
24 Þess vegna hefur Guð látið fýsnir þeirra til saurlífis ná valdi yfir þeim svo að þeir svívirtu líkami sína hver með öðrum. 25 Þeir völdu lygina í staðinn fyrir sannleika Guðs, hafa göfgað og dýrkað hið skapaða í stað skaparans, hans sem er blessaður að eilífu.
26 Því hefur Guð ofurselt þá svívirðilegum girndum. Bæði hafa konur breytt eðlilegum mökum í óeðlileg 27 og eins hafa karlar hætt eðlilegum mökum við konur og brunnið í losta hver til annars, karlmenn hafa framið skömm með karlmönnum og tóku svo út á sjálfum sér makleg málagjöld villu sinnar.
28 Fyrst menn hirtu ekkert um að þekkja Guð sleppti hann þeim á vald ósæmilegs hugarfars. 29 Þeir urðu fullir alls kyns rangsleitni, vonsku, ágirndar og illsku. Þeir eru öfundsjúkir, morðfúsir, deilugjarnir, sviksamir, illgjarnir, illmálgir, bakbítar. 30 Þeir eru guðshatarar, oflátar, hrokafullir, gortarar, hrekkvísir, óhlýðnir foreldrum sínum, 31óvitrir, ótrúir, kærleikslausir, miskunnarlausir. 32 Þeir vita að Guð dæmir rétt og að allir, sem slíkt fremja, eru dauðasekir. Samt fremja þeir þetta og gera að auki góðan róm að slíkri breytni hjá öðrum.