Biblíulestur 9. október – Jak 2.8-26

2019-06-13T00:25:37+00:00Miðvikudagur 9. október 2019|

8 Ef þið uppfyllið hið konunglega boðorð Ritningarinnar: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig,“ þá gerið þið vel. 9 En ef þið farið í manngreinarálit þá drýgið þið synd og lögmálið sannar upp á ykkur að þið séuð brotamenn. 10 Þótt einhver héldi allt lögmálið en hrasaði í einu atriði, þá er hann orðinn sekur við öll boðorð þess. 11 Því sá sem sagði: „Þú skalt ekki hórdóm drýgja,“ hann sagði líka: „Þú skalt ekki morð fremja.“ En þó að þú drýgir ekki hór en fremur morð, þá ertu búinn að brjóta lögmálið. 12 Talið því og breytið eins og þeir er dæmast eiga eftir lögmáli frelsisins. 13 Því að þeim sem ekki auðsýndi miskunn verður ekki sýnd nein miskunn í dóminum. Í dóminum má miskunnsemin sín mest.

Trú og verk

14 Hvað stoðar það, bræður mínir og systur,[ þótt einhver segist hafa trú en sýnir það eigi í verki? Mun trúin geta frelsað hann? 15 Ef bróðir eða systir eru nakin og vantar daglegt viðurværi 16 og eitthvert ykkar segði við þau: „Farið í friði, vermið ykkur og mettið!“ en þið gefið þeim ekki það sem líkaminn þarfnast, hvað stoðar það? 17 Eins er líka trúin ein og sér dauð vanti hana verkin.
18 En nú segir einhver: „Einn hefur trú, annar verkin.“ Sýn mér þá trú þína án verkanna og ég skal sýna þér trúna af verkum mínum. 19 Þú trúir að Guð sé einn. Þú gerir vel. En illu andarnir trúa því líka og skelfast. 20 Fávísi maður! Vilt þú láta þér skiljast að trúin er ónýt[ án verkanna? 21 Réttlættist ekki Abraham, faðir okkar, af verkum er hann lagði son sinn Ísak á altarið? 22 Þú sérð að trúin var samtaka verkum hans og að trúin fullkomnaðist með verkunum. 23 Og ritningin rættist sem segir: „Abraham trúði Guði og það var honum til réttlætis reiknað,“ og hann var kallaður vinur Guðs. 24 Þið sjáið að maðurinn réttlætist af verkum en ekki af trúnni einni saman.
25 Svo var og um skækjuna Rahab. Réttlættist hún ekki af verkum er hún tók við sendimönnunum og lét þá fara burt aðra leið?
26 Eins og líkaminn er dauður án anda, eins er og trúin dauð án verka.

Title

Fara efst