Elísa hjálpar fátækri ekkju

1 Kona nokkur, sem var gift einum af lærisveinum spámannanna, hrópaði hástöfum til Elísa og sagði: „Þjónn þinn, eiginmaður minn, er dáinn. Þú veist sjálfur að þjónn þinn var guðhræddur maður. En nú er lánardrottinn hans kominn og ætlar að hneppa báða syni mína í þrældóm.“ 2 Elísa sagði við hana: „Hvað get ég gert fyrir þig? Segðu mér hvað þú átt til heima.“ Hún svaraði: „Ambátt þín á ekki annað en eina flösku af olíu.“ 3 Hann sagði: „Farðu út. Bið þú um krukku úti á götum, bið alla nágranna þína um tómar krukkur en gættu þess að þær séu nógu margar. 4Farðu svo heim og lokaðu á eftir þér og sonum þínum. Helltu síðan olíu í allar þessar krukkur og set þær til hliðar jafnóðum og þær fyllast.“
5 Hún gekk þá burt og lokaði dyrunum á eftir sér og sonum sínum. Þeir réttu henni krukkurnar og hún hellti í þær.
6 Þegar krukkurnar voru fullar sagði hún við annan son sinn: „Réttu mér eina krukku enn.“ Hann svaraði: „Það er engin krukka eftir.“ Þar með hætti olían að renna. 7 Hún fór þá og sagði guðsmanninum frá þessu en hann sagði: „Farðu og seldu olíuna og greiddu skuld þína. Þú og synir þínir getið lifað af því sem eftir verður.“

Elísa og ríka konan í Súnem

8 Dag nokkurn átti Elísa leið um Súnemborg. Þar bjó auðug kona sem bauð honum að þiggja mat hjá sér. Upp frá því mataðist hann hjá henni þegar hann fór þar um.
9 Hún sagði við eiginmann sinn: „Ég er viss um að maðurinn sem jafnan kemur við hjá okkur er heilagur guðsmaður. 10 Við skulum útbúa lítið herbergi uppi á lofti og koma þar fyrir rúmi, borði, stól og lampa handa honum. Þegar hann kemur til okkar getur hann dvalist þar.“
11 Dag nokkurn, þegar Elísa kom þangað, flutti hann inn í loftherbergið til þess að sofa þar. 12 Hann sagði við Gehasí, þjón sinn: „Kallaðu á þessa súnemsku konu,“ og hann kallaði á hana. Þegar hún kom 13 sagði hann við Gehasí: „Spyrðu hana: Hvað get ég gert fyrir þig þar sem þú hefur haft svona mikið fyrir okkur? Eigum við að tala máli þínu við konunginn eða yfirhershöfðingjann?“ Hún svaraði: „Ég bý mitt á meðal skyldmenna minna.“ 14 Þegar Elísa spurði hvað hann gæti þá gert fyrir hana svaraði Gehasí: „Hún á engan son og maður hennar er orðinn gamall.“ 15 Hann sagði: „Kallaðu á hana.“ Þegar Gehasí hafði kallað á hana og hún stóð í dyragættinni 16 sagði Elísa: „Að ári liðnu um þetta leyti muntu halda á syni í fanginu.“ Hún sagði: „Nei, herra, guðsmaður. Ljúgðu ekki að ambátt þinni.“ 17 En konan varð þunguð og fæddi son um sama leyti að ári liðnu eins og Elísa hafði heitið henni.