2. kafli

15 Þegar lærisveinar spámannanna í Jeríkó komu auga á hann úr nokkurri fjarlægð sögðu þeir: „Andi Elía hvílir yfir Elísa.“ Síðan héldu þeir til móts við hann, vörpuðu sér til jarðar frammi fyrir honum 16 og sögðu: „Meðal þjóna þinna eru fimmtíu sterkir menn. Láttu þá fara og leita að meistara þínum. Ef til vill hefur andi Drottins tekið hann og varpað honum upp á eitthvert fjall eða niður í einhvern dal.“ En hann svaraði: „Þið skuluð ekki senda neinn.“ 17 En þar sem þeir lögðu mjög hart að honum lét hann undan og sagði: „Sendið þá af stað.“ Þeir sendu þá fimmtíu menn sem leituðu hans í þrjá daga árangurslaust. 18 Þeir sneru þá aftur til Elísa sem var enn í Jeríkó. Hann sagði við þá: „Sagði ég ekki við ykkur að þið ættuð ekki að fara?“

Jarteikn Elísa

19 Borgarbúar sögðu við Elísa: „Borgin liggur að vísu vel eins og þú getur sjálfur séð, herra minn, en vatnið er vont og konur láta fóstri í héraðinu.“ 20 Hann sagði: „Færið mér nýja skál og setjið í hana salt.“ Þegar þeir höfðu fært honum skálina 21 fór hann út að uppsprettu vatnsins, kastaði í hana salti og sagði: „Svo segir Drottinn: Ég geri þetta vatn heilnæmt. Héðan í frá skal það hvorki valda dauða né ótímaburði.“ 22 Vatnið varð heilnæmt og hefur verið það allt til þessa dags eins og Elísa hafði boðað.
23 Þaðan fór hann upp til Betel. Þegar hann var á leið upp eftir komu smástrákar út úr borginni, gerðu gys að honum og kölluðu til hans: „Komdu upp eftir, skalli! Komdu upp eftir, skalli!“ 24 Hann sneri sér við, leit á þá og formælti þeim í nafni Drottins. Þá komu tvær birnur út úr skóginum og rifu sundur fjörutíu og tvo af drengjunum.
25 Þaðan fór hann til Karmelfjalls og síðan aftur til Samaríu.

3. kafli

Styrjöld Ísraels og Móabs

1 Jóram Akabsson varð konungur Ísraels í Samaríu á átjánda stjórnarári Jósafats Júdakonungs og ríkti tólf ár. 2Hann gerði það sem illt var í augum Drottins, þó ekki eins og faðir hans og móðir því að hann fjarlægði minnisstein Baals sem faðir hans hafði látið gera. 3 En samt hélt hann áfram að drýgja þær syndir[ sem Jeróbóam Nebatsson hafði komið Ísrael til að drýgja og lét ekki af því.