Hverju er Guðs ríki líkt?

18 Jesús sagði nú: „Hverju er Guðs ríki líkt? Við hvað á ég að líkja því? 19 Líkt er það mustarðskorni sem maður tók og sáði í jurtagarð sinn. Það óx og varð tré og fuglar himins hreiðruðu sig í greinum þess.“
20 Og aftur sagði Jesús: „Við hvað á ég að líkja Guðs ríki? 21 Líkt er það súrdeigi er kona tók og fól í þrem mælum mjöls uns það sýrðist allt.“

Að komast inn

22 Og Jesús hélt áfram til Jerúsalem, fór um borgir og þorp og kenndi. 23 Einhver sagði við hann: „Drottinn, eru þeir fáir sem hólpnir verða?“
Jesús sagði við þá: 24 „Kostið kapps um að komast inn um þröngu dyrnar því að margir, segi ég yður, munu reyna að komast inn og ekki geta. 25 Þegar húsbóndinn stendur upp og lokar dyrum og þér takið þá að standa fyrir utan og knýja á dyr og segja: Herra, ljúk þú upp fyrir oss! mun hann svara yður: Ég veit ekki hvaðan þér eruð. 26 Þá munuð þér segja: Vér höfum þó etið og drukkið með þér og þú kenndir á götum vorum. 27 Og hann mun svara: Ég segi yður, ég veit ekki hvaðan þér eruð, farið frá mér, allir illgjörðamenn! 28 Þar verður grátur og gnístran tanna er þér sjáið Abraham, Ísak og Jakob og alla spámennina í Guðs ríki en yður út rekin. 29 Þá munu menn koma frá austri og vestri, frá norðri og suðri og sitja til borðs í Guðs ríki. 30 Þá geta síðastir orðið fyrstir og fyrstir síðastir.“

Þér vilduð eigi

31 Á þeirri stundu komu nokkrir farísear og sögðu við Jesú: „Far þú og hald á brott héðan því að Heródes vill drepa þig.“
32 Og Jesús sagði við þá: „Farið og segið ref þeim: Í dag og á morgun rek ég út illa anda og lækna og á þriðja degi mun ég marki ná. 33 En mér ber að halda áfram ferð minni í dag og á morgun og næsta dag því að eigi hæfir að spámaður bíði dauða annars staðar en í Jerúsalem.
34 Jerúsalem, Jerúsalem! Þú sem líflætur spámennina og grýtir þá sem sendir eru til þín! Hversu oft vildi ég safna börnum þínum eins og hænan ungum sínum undir vængi sér, og þér vilduð eigi. 35 Guð mun yfirgefa musteri yðar og það verður lagt í rúst. Ég segi yður: Þér munuð eigi sjá mig fyrr en þar er komið að þér segið: Blessaður sé sá er kemur í nafni Drottins!“