Ef þér takið ekki sinnaskiptum

1 Í sama mund komu einhverjir til Jesú og sögðu honum frá Galíleumönnunum sem Pílatus lét drepa er þeir færðu fórnir sínar svo að blóð þeirra blandaðist fórnarblóðinu. 2 Jesús mælti við þá: „Haldið þér að þessir Galíleumenn hafi verið meiri syndarar en allir aðrir Galíleumenn fyrst þeir urðu að þola þetta? 3 Nei, segi ég yður, en ef þér takið ekki sinnaskiptum munuð þér allir farast á sama hátt. 4 Eða þeir átján sem turninn féll yfir í Sílóam og varð að bana, haldið þér að þeir hafi verið sekari en allir þeir menn sem í Jerúsalem búa? 5 Nei, segi ég yður, en ef þér takið ekki sinnaskiptum munuð þér allir farast á sama hátt.“

Enn þetta ár

6 Þá sagði Jesús þeim þessa dæmisögu: „Maður nokkur átti fíkjutré gróðursett í víngarði sínum. Hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann ekki. 7 Hann sagði þá við víngarðsmanninn: Í þrjú ár hef ég nú komið og leitað ávaxtar á fíkjutré þessu og ekki fundið. Högg það upp. Hví á það að vera engum til gagns? 8 En hann svaraði honum: Herra, lát það standa enn þetta ár þar til ég hef grafið um það og borið að áburð. 9 Má vera að það beri ávöxt síðan. Annars skaltu höggva það upp.“

Leyst úr fjötrum

10 Jesús var að kenna á hvíldardegi í samkundu einni. 11 Þar var þá kona nokkur. Í átján ár hafði hún verið sjúk. Hún var kreppt og alls ófær að rétta sig upp. 12 Jesús sá hana og kallaði hana til sín og sagði við hana: „Kona, þú ert laus við sjúkleik þinn!“ 13 Þá lagði Jesús hendur yfir hana og jafnskjótt gat hún rétt úr sér og lofaði Guð.
14 En samkundustjórinn reiddist því að Jesús læknaði á hvíldardegi og mælti til fólksins: „Sex daga skal vinna, komið þá og látið lækna ykkur og ekki á hvíldardegi.“
15 Drottinn svaraði honum: „Hræsnarar, leysir ekki hver ykkar á hvíldardegi naut sitt eða asna af stalli og leiðir til vatns? 16 En þessi kona, sem er dóttir Abrahams og Satan hefur fjötrað full átján ár, mátti hún ekki leyst verða úr fjötrum þessum á hvíldardegi?“ 17 Þegar Jesús sagði þetta urðu allir mótstöðumenn hans sneyptir en allt fólkið fagnaði yfir öllum þeim dýrðarverkum er hann gerði.