Uppskeran er mikil

1 Eftir þetta kvaddi Drottinn til aðra, sjötíu og tvo[ að tölu, og sendi þá á undan sér, tvo og tvo, í hverja þá borg og stað sem hann ætlaði sjálfur að koma til. 2 Og hann sagði við þá: „Uppskeran er mikil en verkamenn fáir. Biðjið því Drottin uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar. 3 Farið! Ég sendi yður eins og lömb meðal úlfa. 4 Hafið ekki pyngju, ekki mal eða skó og heilsið engum á leiðinni. 5 Hvar sem þér komið í hús, þá segið fyrst: Friður sé með húsi þessu. 6 Og sé þar nokkurt friðarins barn mun friður yðar hvíla yfir því, ella hverfa aftur til yðar. 7 Verið um kyrrt í sama húsi, neytið þess sem þar er fram borið í mat og drykk. Verður er verkamaðurinn launa sinna. Eigi skuluð þér flytjast hús úr húsi. 8 Og hvar sem þér komið í borg og tekið er við yður, þá neytið þess sem sett er fyrir yður. 9 Læknið þá sem þar eru sjúkir og segið þeim: Guðs ríki er komið í nánd við yður. 10 En hvar sem þér komið í borg og eigi er við yður tekið, þá farið út á strætin og segið: 11 Jafnvel það dust sem loðir við fætur vora úr borg yðar þurrkum vér af oss og þér getið hirt það. Vitið samt þetta, að Guðs ríki er komið í nánd. 12 Ég segi yður: Bærilegra mun Sódómu á þeim degi en þeirri borg.

Sá sem hafnar mér

13 Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gerst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gerðust í ykkur, hefðu þær löngu iðrast og setið í sekk og ösku. 14 En Týrus og Sídon mun bærilegra í dóminum en ykkur. 15 Og þú, Kapernaúm! Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða.
16 Sá sem á yður hlýðir hlýðir á mig og sá sem hafnar yður hafnar mér. En sá sem hafnar mér hafnar þeim er sendi mig.“

Þeir sjötíu og tveir koma aftur

17 Nú komu þeir sjötíu og tveir[ aftur með fögnuði og sögðu: „Drottinn, jafnvel illir andar hlýða okkur þegar við tölum í þínu nafni.“
18 En Jesús mælti við þá: „Ég sá Satan hrapa af himni sem eldingu. 19 Ég hef gefið yður vald að stíga á höggorma og sporðdreka og yfir öllu óvinarins veldi. Alls ekkert mun gera yður mein. 20 Gleðjist samt ekki af því að illu andarnir hlýða yður, gleðjist öllu heldur af hinu að nöfn yðar eru skráð í himnunum.“