9. kafli
Ákvarðanir um púrímhátíð
20 Þessa atburði skrásetti Mordekaí. Hann sendi bréf til allra Gyðinga í öllum héruðum konungsríkis Xerxesar, jafnt nálægum sem fjarlægum, 21 til að gera þeim skylt að halda árlega helgan fjórtánda og fimmtánda dag mánaðarins adar. 22 Þá daga öðluðust Gyðingar frið fyrir óvinum sínum og í þeim mánuði snerist sorg þeirra í fögnuð og hryggð þeirra í hátíð. Skyldu þeir dagar verða dagar veisluhalds og fagnaðar og menn senda hver öðrum matargjafir en gefa fátækum ölmusu. 23 Og Gyðingar lögleiddu það sem þeir höfðu þannig stofnað til og Mordekaí hafði skrifað þeim um.
24 Haman Hamdatason og afkomandi Agags, hatursmaður allra Gyðinga, hafði ráðgert að tortíma Gyðingum og gereyða þeim. Til þess hafði hann varpað púr, það er hlutkesti, að honum mætti takast að afmá þá og eyða þeim. 25 En málið hafði komið fyrir konung og hann hafði þá skipað svo fyrir með bréfi að fólskubrögð þau sem Haman hugðist beita Gyðinga skyldu koma honum sjálfum í koll og hann og synir hans skyldu festir á gálga. 26 Vegna þessa voru dagarnir nefndir púrím eftir orðinu púr. Og af þessum sökum, vegna alls sem í bréfinu stóð og vegna þess sem þeir höfðu séð eða sjálfir reynt, 27 gerðu Gyðingar það að skyldu og lögbundinni, ófrávíkjanlegri venju, jafnt sjálfum sér, öllum niðjum sínum og þeim sem tækju Gyðingatrú, að þessir tveir dagar skyldu haldnir heilagir árlega á tilsettum tíma og samkvæmt fyrirmælunum. 28 Þessara daga skulu menn minnast kynslóð eftir kynslóð, í hverri ætt, í hverju héraði og hverri borg svo að púrímdagarnir verði áfram helgir með Gyðingum og minningin, sem þeir varðveita, falli aldrei í gleymsku meðal niðja þeirra.
29 Ester drottning, dóttir Abíhaíls, veitti Gyðingnum Mordekaí skriflegt umboð til að beita öllum áhrifamætti sínum til að gera síðara bréfið um púrím að lögum. 30 Og bréf voru send til allra Gyðinga í héruðunum hundrað tuttugu og sjö í ríki Xerxesar með árnaðar- og hughreystingarorðum 31 til að tryggja að púrímdagar væru haldnir á réttum tíma eins og Gyðingurinn Mordekaí hafði mælt fyrir um, á sama hátt og þau fyrirmæli um föstur og harmakvein sem Gyðingar höfðu gert sér og niðjum sínum skylt að hlýða. 32 Það var tilskipun Esterar, sem gerði ákvæðin um púrím að lögum, og var hún skráð í bók.
10. kafli
Frami Mordekaí
1 Xerxes konungur lagði skatt á íbúa landsins og eyjanna í hafinu. 2 En öll stórvirki hans og hreystiverk eru skráð í árbækur Medíu- og Persíukonunga auk lýsingar á frama þeim sem Mordekaí hlotnaðist hjá konunginum, 3 enda var Gyðingurinn Mordekaí næstur konungi að tign. Meðal Gyðinga var hann mikils metinn og vinsæll af hinum fjölmörgu ættmennum sínum því að hann bar hag þjóðar sinnar fyrir brjósti og lét sér annt um velfarnað kynstofns síns.