15Sonur minn, verði hjarta þitt viturt,
þá gleðst ég líka í hjarta mínu
16og nýru mín fagna
þegar varir þínar mæla það sem rétt er.
17Öfundaðu ekki syndara í hjarta þínu
en guðhrædda menn ævinlega.
18Þá áttu þér framtíð
og von þín mun aldrei bregðast.
19Hlustaðu, sonur minn, vertu vitur
og beindu hjarta þínu á rétta leið.
20Vertu ekki með drykkjurútum
eða þeim sem háma í sig kjöt
21því að drykkjumenn og mathákar verða snauðir
og víman mun klæða þig í tötra.
22 Hlustaðu á föður þinn sem gat þig
og fyrirlíttu ekki móður þína þegar hún verður gömul.
23 Kauptu sannleika, og seldu hann ekki,
visku, fræðslu og skilning.
24 Faðir réttláts manns fagnar
og sá sem gat vitran son gleðst yfir honum.
25 Faðir þinn og móðir gleðjist
og fagni sú sem fæddi þig.
26 Sonur minn, gefðu mér hjarta þitt
og láttu augu þín gaumgæfa vegu mína.
27 Skækja er djúp gröf
og framandi kona [ þröngur pyttur.
28 Hún liggur í leyni eins og ræningi
og fjölgar hinum ótrúu meðal mannanna.
29 Hver barmar sér? Hver veinar? Hver á í stælum?
Hver kvartar? Hver fær sár að þarflausu? Hver rauð augu?
30 Þeir sem sitja við vín fram á nætur,
þeir sem koma saman til að bergja á vínblöndu.
31 Horfðu ekki á vínið, hve rautt það er,
hvernig það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður.
32 Að síðustu bítur það sem höggormur
og spýtir eitri sem naðra.
33 Augu þín munu sjá kynlega hluti
og munnur þinn mæla fáránleika.
34 Þú verður eins og sá sem liggur í úthafinu miðju,
eins og sá er liggur efst uppi á siglutré.
35 „Þeir slógu mig, ég kenndi ekki til,
þeir börðu mig, ég varð þess ekki var.
Þegar ég vakna af víninu fæ ég mér meira.“