Hann er upp risinn

1 Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina. 2 Þá varð landskjálfti mikill því engill Drottins sté niður af himni, kom og velti steininum og settist á hann. 3 Hann var sem elding ásýndum og klæðin hvít sem snjór. 4 Varðmennirnir skulfu af hræðslu við hann og urðu sem örendir.
5 En engillinn mælti við konurnar: „Þið skuluð eigi óttast. Ég veit að þið leitið að Jesú hinum krossfesta. 6 Hann er ekki hér. Hann er upp risinn, eins og hann sagði. Komið og sjáið staðinn þar sem hann lá. 7 Farið í skyndi og segið lærisveinum hans: Hann er upp risinn frá dauðum, hann fer á undan ykkur til Galíleu. Þar munuð þið sjá hann. Þetta hef ég sagt ykkur.“
8 Og þær fóru í skyndi frá gröfinni, með ótta og mikilli gleði, og hlupu að flytja lærisveinum hans boðin.
9 Allt í einu kemur Jesús á móti þeim og segir: „Heilar þið!“ En þær komu, féllu fram fyrir honum og föðmuðu fætur hans. 10 Þá segir Jesús við þær: „Óttist ekki, farið og segið bræðrum mínum og systrum[ að halda til Galíleu. Þar munu þau sjá mig.“