Biblíulestur 27. desember – 2Mós 4.18-31

2018-10-09T01:33:22+00:00Fimmtudagur 27. desember 2018|

Móse snýr aftur til Egyptalands

18 Móse fór nú aftur til Jetró, tengdaföður síns, og sagði við hann: „Ég vil fara til ættbræðra minna, sem eru í Egyptalandi, og sjá hvort þeir eru enn á lífi.“ Jetró svaraði: „Far þú í friði.“
19 Drottinn sagði við Móse í Midían: „Farðu aftur til Egyptalands því að allir, sem sóttust eftir lífi þínu, eru dánir.“ 20 Móse sótti þá konu sína og syni, setti þau upp á asna og hélt aftur til Egyptalands. Móse hafði staf Guðs í hendi sér.
21 Drottinn sagði við Móse: „Þegar þú kemur til Egyptalands á ný skaltu gæta þess að gera öll þau undur sem ég hef falið þér að gera frammi fyrir faraó. En ég mun herða hjarta hans svo að hann leyfi þjóðinni ekki að fara. 22 Þá skaltu segja við faraó: Svo segir Drottinn: Ísrael er frumburður minn. 23 Því segi ég við þig: Slepptu syni mínum svo að hann geti þjónað mér. Ef þú sleppir honum ekki mun ég drepa frumburð þinn.“
24 Það gerðist á leiðinni á næturstað einum að Drottinn réðst á hann og ætlaði að drepa hann. 25 Þá tók Sippóra tinnustein og skar yfirhúðina af syni sínum. Hún snerti með henni fætur [ hans og sagði: „Þú ert mér blóðbrúðgumi.“ 26 Þá sleppti hann honum. Það var þá sem hún notaði orðið „blóðbrúðgumi“ vegna umskurnarinnar.
27 Drottinn sagði við Aron: „Farðu út í eyðimörkina til móts við Móse.“ Hann fór, mætti honum við fjall Guðs og kyssti hann. 28 Móse skýrði Aroni frá öllum fyrirmælum Drottins sem hann hafði gefið honum og öllum þeim táknum sem hann hafði boðið honum að gera. 29 Síðan héldu Móse og Aron af stað og stefndu saman öllum öldungum Ísraelsmanna. 30 Aron flutti allt það sem Drottinn hafði boðað Móse. Hann gerði líka táknin í augsýn fólksins 31 og það trúði. Þegar Ísraelsmenn heyrðu að Drottinn hefði liðsinnt þeim vegna þess að hann hefði séð þjáningu þeirra lutu þeir og féllu fram.

Title

Fara efst