Flótti Davíðs

13 Nú kom sendiboði til Davíðs: „Ísraelsmenn eru orðnir hliðhollir Absalon.“ 14 Davíð sagði þá við alla þjóna sína í Jerúsalem: „Komið, við verðum að flýja, annars komumst við ekki undan Absalon. Flýtið ykkur af stað, annars nær hann okkur fljótt, steypir okkur í ógæfu og brytjar niður borgarbúa.“ 15 Þjónar konungs svöruðu: „Við gerum allt sem herra okkar og konungur ákveður. Við erum þjónar þínir.“
16 Konungur hélt þá burt úr borginni og öll fjölskylda hans fylgdi honum. Samt skildi hann tíu hjákonur eftir til að gæta hússins.
17 Konungur fór út úr borginni ásamt öllum hernum. Þeir námu staðar við ysta húsið 18 en allir þjónar hans gengu fram hjá honum, allir Kretarnir og Pletarnir. Gatítarnir sex hundruð, sem höfðu fylgt honum frá Gat, gengu einnig fram hjá konunginum. 19 Þá sagði konungurinn við Ittaí frá Gat: „Hvers vegna ætlar þú einnig að koma með okkur? Snúðu við og vertu með nýja konunginum því að þú ert útlendingur og útlægur úr heimabyggð. 20 Þú komst í gær, ætti ég þá í dag að taka þig með okkur út í óvissuna? Ég verð að fara eitthvað en veit ekki hvert. Snúðu við og taktu landa þína með þér og megi Drottinn sýna þér náð og trúfesti.“ 21 Ittaí svaraði konungi og sagði: „Svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem herra minn, konungurinn, lifir, þá mun þjónn þinn einnig verða þar sem herra minn, konungurinn, verður, hvort sem það verður til dauða eða lífs.“ 22 Þá sagði Davíð við Ittaí: „Haltu þá áfram og gakktu fram hjá.“
Ittaí frá Gat gekk þá fram hjá ásamt öllum mönnum sínum sem höfðu farangur sinn með sér.[ 23 Allir hágrétu, þegar herinn gekk fram hjá konunginum. Síðan fór konungur yfir Kedrondal og allur herinn hélt veginn út í eyðimörkina.
24 Sadók var þarna einnig ásamt Levítunum sem báru örk sáttmála Guðs. Þegar þeir höfðu komið örk Guðs fyrir færði Abjatar brennifórnir þar til allt fólkið var farið úr borginni.
25 Konungur sagði við Sadók: „Farðu aftur með örk Guðs til borgarinnar. Ef Drottinn telur mig verðan velvildar sinnar flytur hann mig þangað aftur og leyfir mér á ný að sjá örk Guðs og bústað hennar. 26 En segi hann: Þú ert mér ekki lengur kær, þá mun hann fara með mig eins og hann vill.“ 27 Enn fremur sagði konungur við Sadók prest: „Skilurðu hvernig þessu er háttað? Farðu í friði aftur til borgarinnar. Akímaas, sonur þinn, og Jónatan, sonur Abjatars, eiga báðir að fara með ykkur. 28 Takið eftir þessu: Ég mun bíða við vöðin yfir til eyðimerkurinnar þar til fréttir koma frá ykkur.“
29 Sadók og Abjatar fluttu þá örk Guðs aftur til Jerúsalem og voru þar um kyrrt.
30 Nú gekk Davíð grátandi og með huldu höfði upp á Olíufjallið. Hann var berfættur og allt fólkið, sem fylgdi honum, huldi höfuð sitt og gekk grátandi upp eftir. 31 Davíð var nú tilkynnt: „Akítófel er meðal þeirra sem hafa gert samsæri með Absalon.“ Þá sagði hann: „Drottinn, snúðu ráði Akítófels í óráð.“
32 Þegar Davíð var kominn upp á fjallstindinn, þar sem siður er að menn falli fram fyrir Guði, kom Arkítinn Húsaí óvænt á móti honum í rifnum klæðum og hafði ausið mold á höfuð sér. 33 Davíð sagði við hann: „Ef þú kemur með mér verður þú aðeins til trafala. 34 En þú getur kollvarpað ráðabruggi Akítófels ef þú ferð inn í borgina og segir við Absalon: „Konungur, ég vil gerast þjónn þinn. Áður var ég þjónn föður þíns en nú vil ég gerast þjónn þinn.“ 35Prestarnir Sadók og Abjatar verða þarna hjá þér. Allt, sem þú fréttir við hirð konungsins, skaltu segja prestunum Sadók og Abjatar. 36 Þeir hafa syni sína þarna hjá sér, Akímaas Sadóksson og Jónatan Abjatarsson. Allt, sem þið heyrið fréttnæmt, skuluð þið láta mig vita með þeim.“ 37 Húsaí, vinur Davíðs, kom til borgarinnar í sama mund og Absalon hélt inn í Jerúsalem.