Postular sendir

1 Og Jesús kallaði til sín lærisveina sína tólf og gaf þeim vald til að reka út óhreina anda og lækna hvers kyns sjúkdóm og veikindi. 2 Nöfn postulanna tólf eru þessi: Fyrstur Símon, sem kallast Pétur, og Andrés bróðir hans, þá Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróðir hans, 3 Filippus og Bartólómeus, Tómas og Matteus tollheimtumaður, Jakob Alfeusson og Taddeus, 4 Símon vandlætari og Júdas Ískaríot, sá er sveik hann.

Fyrirmæli

5 Þessa tólf sendi Jesús út og mælti svo fyrir: „Leggið ekki leið yðar til heiðinna manna og farið ekki í samverska borg. 6 Farið heldur til týndra sauða af Ísraelsætt. 7 Farið og prédikið: Himnaríki er í nánd. 8 Læknið sjúka, vekið upp dauða, hreinsið líkþráa, rekið út illa anda. Gefins hafið þér fengið, gefins skuluð þér láta í té. 9 Takið ekki gull, silfur né eir í belti, 10 eigi mal til ferðar né tvo kyrtla og hvorki skó né staf. Verður er verkamaðurinn fæðis síns.
11 Hvar sem þér komið í borg eða þorp, spyrjist þá fyrir um hver þar sé verðugur og þar sé aðsetur yðar uns þér leggið upp að nýju. 12 Þegar þér komið í hús þá árnið því góðs 13 og sé það verðugt skal friður yðar koma yfir það en sé það ekki verðugt skal friður yðar aftur hverfa til yðar. 14 Og taki einhver ekki við yður né hlýði á orð yðar, farið þá úr því húsi eða þeirri borg og hristið dustið af fótum yðar. 15 Sannlega segi ég yður: Bærilegra mun landi Sódómu og Gómorru á dómsdegi en þeirri borg.

Varið yður

16 Ég sendi yður eins og sauði meðal úlfa. Verið því kænir sem höggormar og falslausir sem dúfur. 17 Varið yður á mönnunum. Þeir munu draga yður fyrir dómstóla og húðstrýkja yður í samkundum sínum. 18 Þér munuð leiddir fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna til þess að bera vitni um mig fyrir þeim og heiðingjunum. 19 En þá er menn draga yður fyrir rétt skuluð þér ekki hafa áhyggjur af því hvernig eða hvað þér eigið að tala. Yður verður gefið á sömu stundu hvað segja skal. 20 Það eruð ekki þér sem talið heldur talar andi föður yðar í yður.