Föstudagur 14. ágúst
Kl. 10:00-18:00 Biblíusýning opin í Auðunarstofu.
Kl. 20:00 Hólabiblíur – um þrjár fyrstu biblíuútgáfur Íslendinga.
Sr. Sigurður Ægisson flytur erindi í Auðunarstofu.
Laugardagur 15. ágúst
Kl. 10:00 Pílagrímaganga frá Gröf heim að Hólum með biblíulestrum. Lagt af stað frá Grafarkirkju kl. 10:00 og tekur gangan um sex tíma. Helgistund við heimkomu í Hóladómkirkju.
kl 13.00 Ganga yfir Hrísháls í fylgd Önnu Þóru Jónsdóttur frá Vatnsleysu. Gengið inn í söguna. Lagt af stað frá Enni kl. 13:00 og tekur gangan 3-4 tíma heim að Hólum.
Á veginum verða hin ýmsu óvæntu fyrirbæri og ævintýraverur úr raunveruleika fyrri tima.
Sundlaugin á Hólum opin kl. 14:00-18:00
Kl. 17:00 Dagskrá fyrir börn á öllum aldri og fjölskyldur þeirra í Hóladómkirkju í umsjá Helga Zimsen og Rósu Jóhannesdóttur.
Kl. 18:00 Kvöldverður. Hlaðborð með gómsætum Biblíumat Undir Byrðunni. Uppskriftirnar eru úr bók sr. Svavars Jónssonar.
Sunnudagur 16. ágúst
Kl. 10:30 Dr. Gunnlaugur A. Jónsson flytur erindið: Áhrifasaga Saltarans. Um áhrif Davíðssálma í sögu og samtíð á bókmentir, listir og kvikmyndir.
Kl. 14:00 Hátíðarmessa í Hóladómkirkju. Prestsvígsla. Mag. theol Halla Rut Stefánsdóttir verður vígð til að gegna sóknarprestsembætti í Hofsós- og Hólaprestakalli.
Veislukaffi í Hólaskóla.
Kl. 16:30 Hátíðarsamkoma í Hóladómkirkju Ólöf Nordal innanríkisráðherra flytur hátíðaræðu.
Ragnhildur Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags flytur ávarp.
Kirkjukór Hóladómkirkju flytur biblíuljóð.