1Asafs-sálmur. Vissulega er Guð góður við Ísrael, við þá sem hjartahreinir eru.2Nærri lá, að fætur mínir hrösuðu, lítið vantaði á, að ég skriðnaði í skrefi,3því að ég fylltist gremju út af hinum hrokafullu, þegar ég sá gengi hinna guðlausu.4Þeir hafa engar hörmungar að bera, líkami þeirra er heill og hraustur.5Þeim mætir engin mæða sem öðrum mönnum, og þeir verða eigi fyrir neinum áföllum eins og aðrir menn.6Fyrir því er hrokinn hálsfesti þeirra, þeir eru sveipaðir ofríki eins og yfirhöfn.7Frá mörhjarta kemur misgjörð þeirra, girndir þeirra ganga fram úr öllu hófi.8Þeir spotta og tala af illsku, mæla kúgunarorð í mikilmennsku sinni.9Með munni sínum snerta þeir himininn, en tunga þeirra er tíðförul um jörðina.10Fyrir því aðhyllist lýðurinn þá og teygar gnóttir vatns.11Þeir segja: Hvernig ætti Guð að vita og Hinn hæsti að hafa nokkra þekkingu?12Sjá, þessir menn eru guðlausir, og þó lifa þeir ætíð áhyggjulausir og auka efni sín.13Vissulega hefi ég til ónýtis haldið hjarta mínu hreinu og þvegið hendur mínar í sakleysi,14ég þjáist allan daginn, og á hverjum morgni bíður mín hirting.15Ef ég hefði haft í hyggju að tala þannig, sjá, þá hefði ég brugðið trúnaði við kyn barna þinna.16En ég hugsaði um, hvernig ég ætti að skilja það, það var erfitt í augum mínum,17uns ég kom inn í helgidóma Guðs og skildi afdrif þeirra:18Vissulega setur þú þá á sleipa jörð, þú lætur þá falla í rústir.19Sviplega verða þeir að auðn, líða undir lok, tortímdir af skelfingum.20Eins og draum er maður vaknar, þannig fyrirlítur þú, Drottinn, mynd þeirra, er þú ríst á fætur.21Þegar beiskja var í hjarta mínu og kvölin nísti hug minn,22þá var ég fáráðlingur og vissi ekkert, var sem skynlaus skepna gagnvart þér.23En ég er ætíð hjá þér, þú heldur í hægri hönd mína.24Þú munt leiða mig eftir ályktun þinni, og síðan munt þú taka við mér í dýrð.25Hvern á ég annars að á himnum? Og hafi ég þig, hirði ég eigi um neitt á jörðu.26Þótt hold mitt og hjarta tærist, er Guð bjarg hjarta míns og hlutskipti mitt um eilífð.27Því sjá, þeir sem fjarlægjast þig, farast, þú afmáir alla þá, sem eru þér ótrúir.28En mín gæði eru það að vera nálægt Guði, ég hefi gjört Drottin að athvarfi mínu og segi frá öllum verkum þínum.

73.1 Asaf Slm 50.1+ – Guð er góður Slm 25.8; 100.5; 119.68
73.3 Öfund Slm 37.1; Job 21.7; Jer 12.1 – oflátungar Slm 5.6; 75.5
73.6 Sveipaðir ofríki Slm 109.18; sbr Ef 4.22-24
73.7 Mörhjarta Slm 17.10+
73.10 Gengi hinna guðlausu Slm 10.5; 49.14
73.11 Hvað? sbr Slm 10.4+
73.12 Safna auðæfum Slm 49.7; sbr 62.11
73.13 Þvo hendur sínar Slm 26.6; 5Mós 21.6; sbr Matt 27.24
73.14 Þjást allan daginn Slm 44.23
73.20 Líkt og draumur Slm 90.5; Jes 29.7-8; Job 20.8
73.22-23 Hjá þér Slm 63.9 – heldur í sbr Slm 18.36; Jes 41.10
73.24 Leiða mig Slm 23.2; Okv 4.11 – taka við mér sbr Slm 16.10
73.26 Þótt hold og hjarta tærist Slm 32.3; Hab 3.16; Okv 5.11 – Guð, bjarg mitt sbr Slm 28.1+ – hlutskipti mitt Slm 16.5; 142.6
73.27 Ótrúir Slm 106.39; Hós 1.2+
73.28 Athvarf Slm 7.2+ – segja frá verkum þínum Slm 9.2; 22.23,32; 26.7; 48.14-15; 66.16; 77.13; 118.17