1Vitur sonur hlýðir umvöndun föður síns, en spottarinn sinnir engum átölum.2Maðurinn nýtur góðs af ávexti munnsins, en svikarana þyrstir í ofbeldi.3Sá sem gætir munns síns, varðveitir líf sitt, en glötun er búin þeim, er ginið glennir.4Sál letingjans girnist og fær ekki, en sál hinna iðnu mettast ríkulega.5Réttlátur maður hatar fals, en hinn óguðlegi fremur skömm og svívirðu.6Réttlætið verndar grandvara breytni, en guðleysið steypir syndaranum.7Einn þykist ríkur, en á þó ekkert, annar læst vera fátækur, en á þó mikinn auð.8Auðæfi mannsins eru lausnargjald fyrir líf hans, en hinn fátæki hlýðir ekki á neinar ávítur.9Ljós réttlátra logar skært, en á lampa óguðlegra slokknar.10Með hroka vekja menn aðeins þrætur, en hjá ráðþægnum mönnum er viska.11Skjótfenginn auður minnkar, en sá sem safnar smátt og smátt, verður ríkur.12Langdregin eftirvænting gjörir hjartað sjúkt, en uppfyllt ósk er lífstré.13Sá sem fyrirlítur áminningarorð, býr sér glötun, en sá sem óttast boðorðið, hlýtur umbun.14Kenning hins vitra er lífslind til þess að forðast snöru dauðans.15Góðir vitsmunir veita hylli, en vegur svikaranna leiðir í glötun.16Kænn maður gjörir allt með skynsemd, en heimskinginn breiðir út vitleysu.17Óguðlegur sendiboði steypir í ógæfu, en trúr sendimaður er meinabót.18Fátækt og smán hlýtur sá, er lætur áminning sem vind um eyrun þjóta, en sá sem tekur umvöndun, verður heiðraður.19Uppfyllt ósk er sálunni sæt, en að forðast illt er heimskingjunum andstyggð.20Haf umgengni við vitra menn, þá verður þú vitur, en illa fer þeim, sem leggur lag sitt við heimskingja.21Óhamingjan eltir syndarana, en gæfan nær hinum réttlátu.22Góður maður lætur eftir sig arf handa barnabörnunum, en eigur syndarans eru geymdar hinum réttláta.23Nýbrotið land fátæklinganna gefur mikla fæðu, en mörgum er burtu kippt fyrir ranglæti sitt.24Sá sem sparar vöndinn, hatar son sinn, en sá sem elskar hann, agar hann snemma.25Hinn réttláti etur nægju sína, en kviður óguðlegra líður skort.

13.1 Hinn þvermóðskufulli Okv 15.12; 24.9; 1.22+
13.3 Málæði Okv 10.14,19; 18.6-7; Sír 5.13; Jak 3.1-12; sbr Okv 12.6+ ; 17.27,28
13.9 Hlutskipti réttlátra og ranglátra Okv 3.33+
13.10 Hroki og auðmýkt Okv 11.2+
13.13 Umbun Okv 13.21; 5Mós 4.40; 7.12-15; 11.22-25; sbr Okv 11.31+
13.14 Speki og líf Okv 4.13+
13.17 Ótrúr sendiboði 2Sam 1.1-16
13.18 Taka umvöndum Okv 15.5+
13.21 Heill, óheill Okv 3.33+ , sbr 11.31+
13.24 Líkamleg ögun Okv 10.13; 19.29; 23.13,14; 29.15,17
13.25 Nægju sína Okv 10.3+