1Sjá þjón minn, sem ég leiði mér við hönd, minn útvalda, sem ég hefi þóknun á. Ég legg anda minn yfir hann, hann mun boða þjóðunum rétt.2Hann kallar ekki og hefir ekki háreysti og lætur ekki heyra raust sína á strætunum.3Brákaðan reyrinn brýtur hann ekki sundur, og dapran hörkveik slökkur hann ekki. Hann boðar réttinn með trúfesti.4Hann daprast eigi og gefst eigi upp, uns hann fær komið inn rétti á jörðu, og fjarlægar landsálfur bíða eftir boðskap hans.5Svo segir Drottinn Guð, sá er skóp himininn og þandi hann út, sá er breiddi út jörðina með öllu því, sem á henni vex, sá er andardrátt gaf mannfólkinu á jörðinni og lífsanda þeim, er á henni ganga:6Ég, Drottinn, hefi kallað þig til réttlætis og held í hönd þína. Ég mun varðveita þig og gjöra þig að sáttmála fyrir lýðinn og að ljósi fyrir þjóðirnar7til að opna hin blindu augun, til að leiða út úr varðhaldinu þá, er bundnir eru, og úr dýflissunni þá, er í myrkri sitja.8Ég er Drottinn, það er nafn mitt, og dýrð mína gef ég eigi öðrum né lof mitt úthöggnum líkneskjum.9Sjá, hinir fyrri hlutir eru fram komnir, en nú boða ég nýja hluti og læt yður heyra þá áður en fyrir þeim vottar.10Syngið Drottni nýjan söng, syngið lof hans til endimarka jarðarinnar, þér sjófarendur og allt sem í hafinu er, þér fjarlægar landsálfur og þeir sem þær byggja!11Eyðimörkin og borgir hennar og þorpin, þar sem Kedar býr, skulu hefja upp raustina. Fjallabúarnir skulu fagna, æpa af gleði ofan af fjallatindunum!12Þeir skulu gefa Drottni dýrðina og kunngjöra lof hans í fjarlægum landsálfum!13Drottinn leggur af stað sem hetja, elur á hugmóð sínum eins og bardagamaður. Hann kallar, hann lýstur upp herópi, sýnir hetjuskap á óvinum sínum:14Ég hefi þagað langan tíma, verið hljóður og stillt mig. Nú mun ég hljóða sem jóðsjúk kona, stynja og standa á öndinni í sama bili.15Ég mun svíða fjöllin og hálsana og skrælna láta allar jurtir, er þar vaxa. Ég mun gjöra ár að eyjum og þurrka upp tjarnirnar.16Ég mun leiða blinda menn um veg, er þeir ekki rata, færa þá um stigu, sem þeir ekki þekkja. Ég vil gjöra myrkrið fram undan þeim að ljósi og hólótt landið að jafnsléttu. Þessa hluti mun ég gjöra, og ég hætti eigi við þá.17Þeir sem treysta skurðgoðunum, hörfa aftur á bak og verða sér til skammar, þeir sem segja við steypt líkneski: Þér eruð guðir vorir.18Heyrið, þér hinir daufu! Lítið upp, þér hinir blindu, að þér megið sjá!19Hver er svo blindur sem þjónn minn og svo daufur sem sendiboði minn, er ég hefi sent? Hver er svo blindur sem trúnaðarmaðurinn og svo blindur sem þjónn Drottins?20Þú hefir séð margt, en athugar það ekki, eyrun eru opin, en þú heyrir þó ekki.21Fyrir sakir réttlætis síns hefir Drottni þóknast að gjöra kenninguna háleita og vegsamlega.22Og þó er þetta rændur og ruplaður lýður, þeir eru allir fjötraðir í gryfjum og byrgðir í myrkvastofum. Þeir eru orðnir að herfangi, og enginn frelsar þá, orðnir að ránsfeng, og enginn segir: Skilið þeim aftur!23Hver af yður vill hlýða á þetta, gefa því gaum og veita því athygli framvegis?24Hver hefir framselt Jakob til ráns og fengið Ísrael ræningjum í hendur? Er það ekki Drottinn, hann, sem vér höfum syndgað á móti? Á hans vegum vildu þeir ekki ganga, og hans lögmáli hlýddu þeir ekki.25Fyrir því jós hann yfir þá brennandi reiði sinni og styrjaldarofsa. Hún bálaðist umhverfis þá, en þeir skildu það eigi, hún brenndi þá, en þeir hugfestu það eigi.

42.1-4 sbr Matt 3.17 og hlst.; 12.18-21; 17.5 og hlst.
42.1 Þjónn minn Jes 49.3; 50.10; 52.13; sbr Jes 41.8+ – minn útvalda Jes 41.9; 43.20; 45.4 – anda minn Jes 11.2+ ; Dóm 3.10; sbr Jes 44.3; 48.16; Matt 3.16 og hlst. Jóh 1.32-33
42.3 Brákaður reyr 1Kon 14.15; 2Kon 18.21; Esk 29.6 – slekkur ekki Jes 43.17 – kemur á rétti Jes 61.3
42.4 Landsálfur Jes 40.15+
42.5 Drottinn, sem skapaði, útvaldi Kýrus Jes 44.24-28; 45.12-13; 48.13-14
42.6 Mótaði Jes 49.8 – þjóðirnar Jes 40.7+ – sáttmáli fyrir þjóðirnar Matt 26.28 – ljós fyrir lýðina Jes 49.6; 51.4; Lúk 2.32; sbr Jóh 8.12
42.7 Opna blind augu Jóh 9; Post 26.18 – úr varðhaldi Slm 107.10-14 – í myrkri sitja Lúk 1.79
42.8 Dýrð mína Jes 48.11
42.9 Fyrri hlutir Jes 43.9; 46.9; 48.3 – ég boða Jes 41.22; 48.6 – nýjir hlutir Jes 43.19; 48.6
42.10 Nýjan söng Slm 33.3+ ; Júdt 16.14 – eyjar Jes 40.15+
42.11 Kedar Jes 21.16+
42.13 Drottinn sem hetja Jes 10.21; 5Mós 10.17; Jer 20.11; 32.18; Slm 24.8; Neh 9.32; sbr Jes 9.5 – heldur af stað Dóm 5.4; Slm 68.8 – hugmóður Drottins Jes 59.17; 63.15; Sak 1.14
42.14 Ekki hafst að Jes 57.11; 62.1,6; 64.11; 65.6
42.15 Ár að þurrlendi Slm 107.33
42.16 Drottinn leiðir um veg 2Mós 13.21
42.18 Heyrnarlausir og blindir Jes 43.8
42.20 Hlustar ekki Jes 6.9 – gefur engar gaum Jes 44.18; Mrk 4.12
42.21 Lögin 5Mós 4.5-8