1Sveinninn Samúel gegndi þjónustu Drottins hjá Elí. Orð frá Drottni var sjaldgæft á þeim dögum, vitranir voru þá fátíðar.2Þá bar svo til einn dag, að Elí svaf á sínum vanalega stað. En augu hans voru tekin að daprast, svo að hann var hættur að sjá,3og enn var ekki slokknað á Guðs lampa, en Samúel svaf í musteri Drottins, þar sem Guðs örk var.4Þá kallaði Drottinn á Samúel. Hann svaraði: Hér er ég.5Og hann hljóp til Elí og sagði: Hér er ég, því að þú kallaðir á mig. En Elí sagði: Ég hefi ekki kallað. Far þú aftur að sofa. Fór hann þá og lagðist til svefns.6En Drottinn kallaði enn að nýju: Samúel! Og Samúel reis upp og fór til Elí og sagði: Hér er ég, því að þú kallaðir á mig. En hann sagði: Ég hefi ekki kallað, sonur minn. Leggst þú aftur til svefns.7En Samúel þekkti ekki enn Drottin, og honum hafði ekki enn birst orð frá Drottni.8Þá kallaði Drottinn enn á Samúel, í þriðja skiptið. Og hann reis upp og fór til Elí og sagði: Hér er ég, því að þú kallaðir á mig. Þá skildi Elí, að það var Drottinn, sem var að kalla á sveininn.9Fyrir því sagði Elí við Samúel: Far þú og leggstu til svefns, og verði nú á þig kallað, þá svara þú: Tala þú, Drottinn, því að þjónn þinn heyrir. Fór Samúel þá og lagðist til svefns á sínum stað.10Þá kom Drottinn og gekk fram og kallaði sem hin fyrri skiptin: Samúel! Samúel! Og Samúel svaraði: Tala þú, því að þjónn þinn heyrir.11Drottinn mælti þá við Samúel: Þá hluti mun ég gjöra í Ísrael, að óma mun fyrir báðum eyrum allra þeirra, er það heyra.12Á þeim degi mun ég láta fram koma á Elí allt það, er ég hefi talað um hús hans frá upphafi til enda.13Því að ég hefi kunngjört honum, að ég muni dæma hús hans að eilífu vegna misgjörðar þeirrar, er honum var kunn, að synir hans leiddu bölvun yfir sig, og þó hafði hann ekki taum á þeim.14Og fyrir því hefi ég svarið húsi Elí: Sannlega skal eigi verða friðþægt fyrir misgjörð Elí húss með sláturfórn eða matfórn að eilífu.15Lá Samúel nú kyrr allt til morguns. Og um morguninn reis hann árla og lauk upp dyrunum á húsi Drottins. En Samúel þorði ekki að segja Elí frá sýninni.16Elí kallaði á Samúel og sagði: Samúel, sonur minn! Hann svaraði: Hér er ég.17Elí sagði: Hvað var það, sem hann talaði við þig? Leyndu mig því ekki. Guð láti þig gjalda þess nú og síðar, ef þú leynir mig nokkru af því, sem hann talaði við þig.18Þá sagði Samúel honum allt saman og leyndi hann engu. En Elí sagði: Hann er Drottinn. Gjöri hann það, sem honum þóknast!19Samúel óx, og Drottinn var með honum og lét ekkert af því, er hann hafði boðað, falla til jarðar.20Og allur Ísrael frá Dan til Beerseba kannaðist við, að Samúel væri falið að vera spámaður Drottins.21Og Drottinn hélt áfram að birtast í Síló, og Drottinn opinberaðist Samúel í Síló með orði sínu.

3.4 Drottinn kallaði 1Mós 22.1; 31.11; 2Mós 3.4; Jes 6.8
3.11 Óma fyrir eyrum 2Kon 21.12; Jer 19.3
3.12 Allt sem ég hef ógnað 1Sam 2-27-36
3.14 Aldrei bætt fyrir 1.Jóh 5.16+
3.18 Sem honum þóknast 2Sam 10.12; Job 1.21
3.20 Samúel spámaður 2Kro 35.18; Post 13.20