1Þessir voru niðjar Arons og Móse, þá er Drottinn talaði við Móse á Sínaífjalli.2Þessi voru nöfn Arons sona: Nadab frumgetinn og Abíhú, Eleasar og Ítamar.3Þessi voru nöfn Arons sona, hinna smurðu presta, sem vígðir voru til prestsþjónustu,4„en þeir Nadab og Abíhú dóu fyrir augliti Drottins, þá er þeir báru óvígðan eld fram fyrir Drottin í Sínaí-eyðimörk; en þeir áttu enga sonu. Þeir Eleasar og Ítamar þjónuðu því í prestsembætti frammi fyrir Aroni, föður sínum.“5Drottinn talaði við Móse og sagði:6Lát þú ættkvísl Leví koma og leið þú hana fyrir Aron prest, að þeir þjóni honum.7Þeir skulu annast það, sem annast þarf fyrir hann, og það, sem annast þarf fyrir allan söfnuðinn fyrir framan samfundatjaldið, og gegna þjónustu í búðinni.8Og þeir skulu sjá um öll áhöld samfundatjaldsins og það, sem annast þarf fyrir Ísraelsmenn, og gegna þjónustu í búðinni.9Og þú skalt gefa levítana Aroni og sonum hans. Þeir eru honum gefnir af Ísraelsmönnum til fullkominnar eignar.10En Aron og sonu hans skalt þú setja til þess að annast prestsembætti, og komi óvígður maður þar nærri, skal hann líflátinn verða.11Drottinn talaði við Móse og sagði:12Sjá, ég hefi tekið levítana af Ísraelsmönnum í stað allra frumburða Ísraelsmanna, þá er opna móðurlíf, og skulu levítarnir vera mín eign.13Því að ég á alla frumburði. Á þeim degi, er ég laust alla frumburði í Egyptalandi, helgaði ég mér alla frumburði í Ísrael, bæði menn og skepnur. Mínir skulu þeir vera. Ég er Drottinn.14Drottinn talaði við Móse í Sínaí-eyðimörk og sagði:15Tel þú sonu Leví eftir ættum þeirra og kynkvíslum. Alla karlmenn mánaðargamla og þaðan af eldri skalt þú telja.16Og Móse taldi þá að boði Drottins, eins og fyrir hann var lagt.17Þessir voru synir Leví eftir nöfnum þeirra: Gerson, Kahat og Merarí.18Þessi eru nöfn Gersons sona eftir kynkvíslum þeirra: Libní og Símeí.19Synir Kahats eftir kynkvíslum þeirra: Amram og Jísehar, Hebron og Ússíel.20Synir Merarí eftir kynkvíslum þeirra: Mahelí og Músí. Þessar eru kynkvíslir Leví eftir ættum þeirra.21Til Gersons telst kynkvísl Libníta og kynkvísl Símeíta. Þessar eru kynkvíslir Gersóníta.22Þeir er taldir voru af þeim eftir tölu á öllum karlkyns, mánaðargömlum og þaðan af eldri þeir er taldir voru af þeim, voru 7.500.23Kynkvíslir Gersóníta tjölduðu að baki búðarinnar, að vestanverðu.24Og höfuðsmaður yfir ætt Gersóníta var Eljasaf Laelsson.25Það sem Gersons synir áttu að annast í samfundatjaldinu, var búðin og tjaldið, þakið á því og dúkbreiðan fyrir dyrum samfundatjaldsins,26forgarðstjöldin og dúkbreiðan fyrir dyrum forgarðsins, sem liggur allt í kringum búðina og altarið, og stögin, sem þar til heyra allt sem að því þurfti að þjóna.27Til Kahats telst kynkvísl Amramíta, kynkvísl Jíseharíta, kynkvísl Hebróníta og kynkvísl Ússíelíta. Þessar eru kynkvíslir Kahatíta.28Eftir tölu á öllum karlkyns, mánaðargömlum og þaðan af eldri, voru þeir 8.600 og höfðu á hendi að annast helgidóminn.29Kynkvíslir Kahats sona tjölduðu á hlið við búðina, að sunnanverðu.30Og ætthöfðingi yfir kynkvíslum Kahatíta var Elísafan Ússíelsson.31Það sem þeir áttu að annast, var örkin, borðið, ljósastikan, ölturun og hin helgu áhöld, er þeir hafa við þjónustugjörðina, og dúkbreiðan og allt, sem að því þurfti að þjóna.32Höfðingi yfir höfðingjum levítanna var Eleasar Aronsson prests. Hann hafði umsjón yfir þeim, er höfðu á hendi að annast helgidóminn.33Til Merarí telst kynkvísl Mahelíta og kynkvísl Músíta. Þessar eru kynkvíslir Merarí.34Og þeir er taldir voru af þeim, eftir tölu á öllum karlkyns, mánaðargömlum og þaðan af eldri, voru 6.200.35Ætthöfðingi yfir kynkvíslum Merarí var Súríel Abíhaílsson. Tjölduðu þeir á hlið við búðina, að norðanverðu.36Merarí sonum var falin hirðing á þiljuborðum búðarinnar, á slám hennar, stólpum og undirstöðum og öllum áhöldum hennar, og allt sem að því þurfti að þjóna,37á stólpum forgarðsins allt í kring og undirstöðum þeirra, hælum og stögum.38Fyrir framan búðina, að austanverðu, fyrir framan samfundatjaldið, móti upprás sólar, tjölduðu þeir Móse og Aron og synir hans, og höfðu á hendi að annast helgidóminn, það er annast þurfti fyrir Ísraelsmenn. En komi óvígður maður þar nærri, skal hann líflátinn verða.39Allir þeir er taldir voru af levítunum, sem þeir Móse og Aron töldu eftir boði Drottins, eftir kynkvíslum þeirra allir karlkyns, mánaðargamlir og þaðan af eldri, voru 22.000.40Drottinn sagði við Móse: Tel þú alla frumburði karlkyns meðal Ísraelsmanna, mánaðargamla og þaðan af eldri, og haf þú tölu á nöfnum þeirra.41Og þú skalt taka levítana mér til handa ég er Drottinn í stað allra frumburða meðal Ísraelsmanna, og fénað levítanna í stað allra frumburða af fénaði Ísraelsmanna.42Móse taldi, svo sem Drottinn hafði boðið honum, alla frumburði meðal Ísraelsmanna.43Og allir frumburðir karlkyns, eftir nafnatölu, mánaðargamlir og þaðan af eldri, þeir er taldir voru af þeim, voru 22.273.44Drottinn talaði við Móse og sagði:45Tak þú levítana í stað allra frumburða meðal Ísraelsmanna og fénað levítanna í stað fénaðar þeirra, og skulu levítarnir vera mín eign. Ég er Drottinn.46Og að því er snertir lausnargjald þeirra tvö hundruð sjötíu og þriggja, þeirra af frumburðum Ísraelsmanna, sem umfram eru levítana,47þá skalt þú taka fimm sikla fyrir hvert höfuð. Eftir helgidómssikli skalt þú taka, tuttugu gerur í sikli.48Og þú skalt fá Aroni og sonum hans féð til lausnar þeim, sem umfram eru meðal þeirra.49Og Móse tók lausnargjaldið af þeim, er umfram voru þá, er leystir voru fyrir levítana.50Tók hann féð af frumburðum Ísraelsmanna, eitt þúsund þrjú hundruð sextíu og fimm sikla, eftir helgidóms sikli.51Og Móse seldi lausnargjaldið Aroni og sonum hans í hendur eftir boði Drottins, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

3.2 Synir Arons 4Mós 26.60; 2Mós 6.23; 28.1; 1Kro 5.29
3.3 Smurðir og vígðir 2Mós 29.29; 30.30; 3Mós 8
3.4 Nadab og Abíhú 4Mós 26.61; 3Mós 10.1-2 – Eleasar og Ítamar 3Mós 10.6-7
3.9 Til eignar 4Mós 8.16+
3.12 Levítarnir 4Mós 8.16
3.13 Frumburðir 4Mós 8.17; 2Mós 13.1-16; 22.29-30; 34.19-20
3.14-39 Manntal 4Mós 26.57-62; sbr 4.34-49
3.17 Synir Leví 2Mós 6.16-19; 1Kro 6.1-15
3.39 22.000 4Mós 26.62
3.41 Levítar sbr 2Mós 13.12; 22.29; 5Mós 15.19-23
3.47 Fimm siklar 3Mós 27.6