1Ísraelsmenn, allur söfnuðurinn, komu í eyðimörkina Sín í fyrsta mánuðinum, og lýðurinn settist um kyrrt í Kades. Þar dó Mirjam og var þar grafin.2Fólkið hafði ekki vatn. Söfnuðust þeir þá saman í gegn Móse og Aroni.3Og lýðurinn þráttaði við Móse og sagði: Guð gæfi að vér hefðum dáið, þá er bræður vorir dóu fyrir augliti Drottins.4Hví leidduð þið söfnuð Drottins í eyðimörk þessa, að vér og fénaður vor dæjum þar?5Hví létuð þið oss í burt fara af Egyptalandi, til þess að leiða oss í þennan vonda stað, þar sem eigi verður sáð, engar fíkjur vaxa né vínviður né granatepli, og eigi er vatn til að drekka?6Móse og Aron gengu þá burt frá söfnuðinum að dyrum samfundatjaldsins og féllu fram á ásjónur sínar. Birtist þeim þá dýrð Drottins.7Drottinn talaði við Móse og sagði:8Tak stafinn og safna saman lýðnum, þú og Aron bróðir þinn, og mælið við klettinn í áheyrn þeirra, og mun hann vatn gefa. Og þú skalt leiða út vatn handa þeim af klettinum og gefa fólkinu og fénaði þeirra að drekka.9Þá sótti Móse stafinn inn í helgidóminn, eins og Drottinn hafði boðið honum.10Og Móse og Aron söfnuðu saman lýðnum við klettinn, og Móse sagði við þá: Heyrið þér, þrjóskir menn. Hvort munum vér leiða mega vatn út af kletti þessum handa yður?11Síðan hóf Móse upp hönd sína og laust klettinn tveim sinnum með staf sínum. Spratt þá upp vatn mikið, svo að fólkið drakk og fénaður þeirra.12Þá sagði Drottinn við Móse og Aron: Fyrir því að þið trúðuð mér eigi, svo að þið helguðuð mig í augum Ísraelsmanna, þá skuluð þið eigi leiða söfnuð þennan inn í landið, sem ég hefi gefið þeim.13Þetta eru Meríbavötn, þar sem Ísraelsmenn þráttuðu við Drottin og hann sýndi heilagleik sinn á þeim.14Móse sendi frá Kades menn á fund Edómkonungs: Svo mælir bróðir þinn Ísrael: Þú þekkir allar þær þrautir, er oss hafa mætt.15Feður vorir fóru suður til Egyptalands, og vér höfum verið í Egyptalandi langa ævi og hafa Egyptar þjáð oss, sem og feður vora.16En vér hrópuðum til Drottins, og hann heyrði bæn vora og sendi engil, og leiddi hann oss brott af Egyptalandi. Og sjá, nú erum vér í Kades, borginni við landamæri þín.17Leyf oss að fara um land þitt. Eigi munum vér fara yfir akra né víngarða, og eigi munum vér drekka vatn úr brunnum, heldur munum vér fara Konungsveg og eigi hneigja af til hægri handar eða vinstri, þar til er vér erum komnir út úr landi þínu.18En Edóm svaraði honum: Eigi mátt þú fara um land mitt, ella mun ég fara í móti þér með sverði.19Þá sögðu Ísraelsmenn við hann: Vér munum þræða brautarveginn, og ef vér drekkum af vatni þínu, ég og fénaður minn, þá mun ég fé fyrir gjalda. Hér er eigi til meira mælst en að ég megi fara um fótgangandi.20En hann sagði: Eigi mátt þú fara um landið. Og Edóm fór í móti honum með miklu liði og sterkri hendi.21Og er Edóm skoraðist undan að leyfa Ísrael yfirför um land sitt, þá sneri Ísrael af leið frá honum.22Nú lögðu þeir upp frá Kades, og Ísraelsmenn, allur söfnuðurinn, komu til fjallsins Hór.23Og Drottinn talaði við Móse og Aron á Hórfjalli, við landamæri Edómlands, og sagði:24Aron skal safnast til fólks síns, því að eigi skal hann komast í það land, sem ég hefi gefið Ísraelsmönnum, af því að þið þrjóskuðust gegn skipan minni hjá Meríbavötnum.25Tak þú Aron og Eleasar son hans og leið þá upp á Hórfjall.26Fær þú Aron úr klæðum sínum og skrýð Eleasar son hans þeim, en Aron skal safnast til fólks síns og deyja þar.27Móse gjörði svo sem Drottinn bauð honum, og þeir gengu upp á Hórfjall í augsýn alls fólksins.28Og Móse færði Aron úr klæðum hans og skrýddi Eleasar son hans þeim. Og Aron dó þar á háfjallinu. Gengu þeir Móse og Eleasar þá niður af fjallinu.29En er allt fólkið sá, að Aron var andaður, grétu allir Ísraelsmenn Aron þrjátíu daga.

20.2-13 Meríbavötn 2Mós 17.1-7
20.3 Möglað gegn Móse 4Mós 14.2+
20.6 Dýrð Drottins 3Mós 9.23+
20.11 Vatn af kletti Slm 78.15-16; 1Kor 10.4
20.14-21 Edóm neitar Dóm 11.16-17; sbr 4Mós 21.21-32
20.16 Við hrópuðum 2Mós 2.23-25; 5Mós 26.7-8 – engill 2Mós 14.19; 23.20; 33.2
20.17 Valda ekki tjóni 4Mós 21.22
20.24 Til forfeðra sinna 1Mós 25.8
20.28 Aron deyr 4Mós 33.38-39
20.29 Sorg í þrjátíu daga 5Mós 34.8; sbr 1Mós 50.3,10; 1Sam 31.13