1Þú mannsson, tak þér tigulstein, legg hann fyrir framan þig og drag þar upp borg, sem sé Jerúsalem.2Og reis þú hervirki gegn henni og hlað víggarð gegn henni. Hleyp upp jarðhrygg gegn henni, skipa hersetuliði um hana og set víghrúta umhverfis hana.3Og tak þér járnplötu og set hana sem járnvegg milli þín og borgarinnar. Snú því næst andliti þínu gegn henni, svo að hún komist undir hersetu og þú sitjir um hana. Þetta skal vera Ísraelsmönnum tákn.4En legg þú þig á vinstri hliðina og tak á þig misgjörð Ísraels húss. Alla þá daga, er þú liggur á henni, skalt þú bera misgjörð þeirra.5Og tel ég þér misgjörðarár þeirra til jafnmargra daga, þrjúhundruð og níutíu daga, og þannig skalt þú bera misgjörð Ísraels húss.6Og þegar þú hefir fullnað þessa daga, þá skalt þú leggjast á hægri hliðina hið annað sinn og bera misgjörð Júda húss, fjörutíu daga. Tel ég þér dag fyrir ár hvert.7Og þú skalt snúa andliti þínu og nöktum armlegg þínum gegn umsátri Jerúsalem, og þú skalt spá í gegn henni.8Og sjá, ég legg bönd á þig, svo að þú skalt ekki ná að snúa þér af einni hlið á aðra, uns þú hefir af lokið umsátursdögum þínum.9En tak þér hveiti, bygg, baunir, linsubaunir, hirsi og speldi. Lát það allt í eitt ker og gjör þér brauð af. Skalt þú hafa það til matar allan þann tíma, er þú liggur á hliðinni.10Og vega skal þér mat þinn, þann er þú neytir, tuttugu sikla á dag. Skalt þú neyta hans á ákveðnum tíma einu sinni á dag.11Mæla skal þér og vatn að drekka, sjöttung hínar í hvert sinn. Skalt þú drekka það á ákveðnum tíma einu sinni á dag.12Skalt þú eta það sem byggkökur, og þær skaltu baka við mannaþrekk fyrir augum þeirra.13Og Drottinn sagði: Svo munu Ísraelsmenn eta brauð sitt óhreint hjá þjóðum þeim, er ég rek þá til.14Þá sagði ég: Æ, Drottinn Guð! Sjá, ég hefi aldrei saurgað mig, og allt í frá barnæsku minni og fram á þennan dag hefi ég aldrei etið það, er sjálfdautt væri eða dýrrifið, og óhreint kjöt hefi ég aldrei lagt mér til munns.15Þá sagði hann við mig: Sjá þú, ég leyfi þér að hafa nautatað í stað mannaþrekks. Við það skalt þú gjöra brauð þitt.16Og hann sagði við mig: Þú mannsson, sjá, ég brýt sundur staf brauðsins í Jerúsalem, og þeir skulu eta brauðið eftir skammti og með angist, og vatnið skulu þeir drekka eftir mæli og með skelfingu,17til þess að þá skorti brauð og vatn og þeir skelfist hver með öðrum og veslist upp vegna misgjörðar sinnar.

4.6 Fjörutíu Esk 29.11; 1Mós 7.4; Matt 4.2
4.14 Óhrein fæða 3Mós 17.15; Post 10.14