1Hann sagði við mig: Þú mannsson, statt á fætur, að ég megi tala við þig.2Þá kom andi í mig, er hann talaði þannig til mín, sem reisti mig á fætur, og ég heyrði til þess, er við mig talaði.3Og hann sagði við mig: Þú mannsson, ég ætla að senda þig til Ísraelsmanna, til hinna fráhorfnu, þeirra er mér hafa gjörst fráhverfir. Þeir og feður þeirra hafa rofið trúna við mig allt fram á þennan dag.4Ég sendi þig til þeirra, sem eru þrjóskir á svip og harðir í hjarta, og þú skalt segja við þá: Svo segir Drottinn Guð!5Og hvort sem þeir hlýða á það eða gefa því engan gaum því að þeir eru þverúðug kynslóð þá skulu þeir vita, að spámaður er á meðal þeirra.6En þú, mannsson, skalt ekki hræðast þá og ekki óttast orð þeirra, þótt netlur og þyrnar séu hjá þér og þótt þú búir meðal sporðdreka. Orð þeirra skalt þú ekki óttast og ekki skelfast fyrir augliti þeirra, því að þeir eru þverúðug kynslóð.7Heldur skalt þú tala orð mín til þeirra, hvort sem þeir hlýða á þau eða gefa þeim engan gaum, því að þeir eru þverúðin einber.8En þú, mannsson, heyr þú það, er ég tala til þín! Ver þú eigi einber þverúð, eins og hin þverúðuga kynslóð. Lúk upp munni þínum og et það, er ég fæ þér.9Ég sá þá, að hönd var út rétt móti mér. Í henni var bókrolla.10Og hann rakti hana sundur fyrir mér, og var hún rituð bæði utan og innan, og voru á hana rituð harmljóð, andvörp og kveinstafir.

2.3 Fráhvarf Ísraelsmanna 2Mós 17.1-7; 4Mós 14.1-4
2.6 Óttast ekki Esk 3.9; Jes 6.5-6; Jer 1.8