Job og dætur hans, trérista eftir William Blake, u.þ.b. 1823. Á meðal þeirra gjafa sem Job hlotnuðust eftir að gæfan tók að snúast honum í vil voru þrjár dætur sem urðu víðfrægar um allt land fyrir yndisleika. Tökum eftir því að þessar ungu konur eru allar nafngreindar og deila arfi föðurins jafnt með bræðrum sínum.