-
Altarisbiblía Biblíufélagsins kemur í tveimur útgáfum. Ódýrari útgáfan er þessi hér og er með hefðbundna dumbrauða (burgundy) bókakápu og er ekki með gyllingu á blaðsíðuendum. Bókin er hönnuð með það í huga að vera notuð í helgihaldi safnaða og er því með stórum og læsilegum texta, en jafnframt létt miðað við stærð. Biblían hefur fjóra lesborða og kemur út í mjög takmörkuðu upplagi.
-
Altarisbiblía Biblíufélagsins kemur í tveimur útgáfum. Dýrari útgáfan er þessi hér og er með kápu úr endurunnu leðri og vandaðri gyllingu á blaðsíðuendum. Bókin er hönnuð með það í huga að vera notuð í helgihaldi safnaða og er því tignarleg, en jafnframt létt miðað við stærð og með stórum og læsilegum texta. Biblían hefur fjóra lesborða og kemur út í mjög takmörkuðu upplagi.
-
Biblíufélagið hefur tekið við útgáfu Biblíunnar af JPV/Forlaginu. Fyrsta endurútgáfa Biblíufélagsins á 2007 þýðingu Biblíunnar er komin út. Markmið nýju útgáfunnar var að útbúa Biblíu sem er vönduð að allri gerð en um leið á hagkvæmara verði en áður hefur þekkst. Við hjá Biblíufélaginu erum sannfærð um að það hafi tekist. Nýja Biblían kemur eingöngu í svartri kápu með smáum fallegum krossi á forsíðu.