Biblían SVÖRT – mjúk spjöld 12×18 sm

10270 kr.

Á lager

Biblíufélagið hefur tekið við útgáfu Biblíunnar af JPV/Forlaginu. Þetta er þriðja prentun á Biblíunni í mjúku bandi, með gylltum síðuendum og litprentuðum landakortum. Þessi útgáfa er fáanleg í þremur litum rauðu, svörtu og hvítu.

Á lager

Vörunúmer: 978-9935-553-69-0 Flokkur:

Lýsing

Biblían skiptist í tvo aðalhluta, Gamla testamentið og Nýja testamentið. Í Gamla testamentinu eru 39 rit sem urðu til á mörgum öldum, en sumt af efni þeirra varðveittist í munnlegri geymd áður en það var fært í letur. Gamla testamentið rekur sögu Gyðingaþjóðarinnar og greinir frá trú hennar og menningu, en varpar jafnframt ljósi á sögu annarra fornra menningarþjóða í Mið-Austurlöndum.

Þessi útgáfa Biblíunnar inniheldur einnig 11 viðbótarrit, svokallaðar apókrýfar bækur Gamla testamentisins, sem hafa tilheyrt helgisafni kristinna manna frá upphafi kristni.

Í Nýja testamentinu eru 27 bækur, sem hafa að geyma sögur af Jesú sagðar af lærisveinum hans, þ.e. guðspjöllin, en hið elsta þeirra er talið ritað um 80 e. Kr. Auk þess inniheldur Nýja testamentið bréf postulanna til kristinna safnaða víðsvegar í rómverska ríkinu og er hið elsta þeirra ritað um 56 e. Kr.

Þessi Biblía er 1872 síður og inniheldur átta blaðsíður með litprentuðum kortum. Þessi Biblíuútgáfa var fyrst gefin út af JPV/Forlagi 2007, en er nú gefin út af Hinu íslenska biblíufélagi. Um er um að ræða þriðju prentun með lítilsháttar leiðréttingum frá fyrri prentunum.

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,62 kg
Ummál 12,5 × 3,5 × 18,6 cm
Fara efst