{"id":21983,"date":"2018-01-02T01:05:02","date_gmt":"2018-01-02T01:05:02","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/hebreabrefid-1-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:05:02","modified_gmt":"2018-01-02T01:05:02","slug":"hebreabrefid-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/hebreabrefid-1-kafli\/","title":{"rendered":"Hebreabr\u00e9fi\u00f0 1. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">\u00cd fyrndinni l\u00e9t Gu\u00f0 sp\u00e1menn s\u00edna kunngj\u00f6ra fe\u00f0runum sinn vilja, en fyrir skemmstu l\u00e9t hann Son sinn, sem englunum er \u00e6\u00f0ri, gj\u00f6ra hi\u00f0 sama.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>S\u00e1 Gu\u00f0, er for\u00f0um tala\u00f0i til fe\u00f0ranna \u00ed fleiri skipti, og me\u00f0 m\u00f6rgu m\u00f3ti fyrir munn sinna sp\u00e1manna, hann hefir \u00e1 \u00feessum s\u00ed\u00f0ustu t\u00edmum til vor tala\u00f0 fyrir Soninn,<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>hv\u00f6rn hann setti erfingja allra hluta, fyrir hv\u00f6rn hann og svo heiminn sk\u00f3p,<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>hv\u00f6r, af \u00fev\u00ed hann er geisli hans d\u00fdr\u00f0ar og eftirmynd hans veru, sem \u00f6llu stj\u00f3rnar me\u00f0 s\u00ednu kr\u00f6ftuga or\u00f0i, \u00fe\u00e1 settist hann til h\u00e6gri hli\u00f0ar gu\u00f0legri h\u00e1tign \u00e1 h\u00e6\u00f0um, eftir \u00fea\u00f0 hann me\u00f0 dau\u00f0a s\u00ednum haf\u00f0i hreinsa oss fr\u00e1 syndunum,<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>og er or\u00f0inn englunum \u00feeim mun h\u00e6rri, sem hann hefir \u00feeim h\u00e1leitari tign \u00f6\u00f0last.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00dev\u00ed til hv\u00f6rs af englunum hefir Gu\u00f0 nokkurn t\u00edma sagt: \u00fe\u00fa ert minn Sonur, \u00ed dag gat eg \u00feig? og enn aftur segir hann: eg vil vera hans Fa\u00f0ir og hann skal vera minn Sonur;<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>en \u00fe\u00e1 hann \u00fear \u00e1 m\u00f3t bo\u00f0ar komu s\u00edns frumgetna Sonar \u00ed heiminn, kve\u00f0ur hann svo a\u00f0 or\u00f0i: allir englar Gu\u00f0s skulu tilbi\u00f0ja hann.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>En um englana ver\u00f0ur svo a\u00f0 or\u00f0i kve\u00f0i\u00f0: s\u00edna engla br\u00fakar hann, sem vinda og s\u00edna \u00fej\u00f3na sem eldingar.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>En um Soninn \u00fear \u00e1 m\u00f3t: \u00feitt h\u00e1s\u00e6ti, \u00f3 Gu\u00f0! varir um aldur og \u00e6vi, \u00feinn veldissproti er veldissp\u00edra r\u00e9ttv\u00edsinnar.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>\u00de\u00fa elskar r\u00e9ttindin en hatar rangindin, \u00feess vegna hefir Gu\u00f0, \u00feinn Gu\u00f0 smurt \u00feig me\u00f0 gle\u00f0innar vi\u00f0smj\u00f6ri fram yfir \u00fe\u00edna jafningja.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Og \u00e1 \u00f6\u00f0rum sta\u00f0 stendur: Drottinn! \u00ed \u00f6ndver\u00f0u grundvalla\u00f0ir \u00fe\u00fa j\u00f6r\u00f0ina og himnarnir eru \u00fe\u00edn handaverk.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00deeir munu undir lok l\u00ed\u00f0a, en \u00fe\u00fa varir vi\u00f0, allir munu \u00feeir fyrnast sem anna\u00f0 fat,<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>og l\u00edka sem m\u00f6ttul munt\u00fa \u00fe\u00e1 samanvefja, \u00feeir munu umbreytast, en \u00fe\u00fa ert hinn sami og \u00fe\u00edn \u00e1r munu ekki \u00ferj\u00f3ta.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>En til hv\u00f6rs af englunum hefir Gu\u00f0 nokkurn t\u00edma sagt: sit \u00fe\u00fa m\u00e9r til h\u00e6gri handar, \u00feanga\u00f0 til eg gj\u00f6ri \u00f3vini \u00fe\u00edna a\u00f0 \u00feinni f\u00f3task\u00f6r.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Eru \u00feeir ekki allir \u00fej\u00f3nustubundnir andar, sem sendir eru \u00ed \u00feeirra \u00fearfir, er \u00f6\u00f0last skulu s\u00e1luhj\u00e1lpina?<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\">V. 1. 4 M\u00f3s. b. 12,6.8. L\u00fak. 1,70. Gal. 4,4.  V. 2. Efes. 1,10. J\u00f3h. 1,3.  V. 3. J\u00f3h. 14,9. 2 Kor. 4,4. K\u00f3l. 1,15.16. Hebr. 8,1. Kap. 9,14.26.  V. 4. Fil. 2,9.10.  V. 5. S\u00e1lm. 2,7. 2 Sam. 7,14.  V. 6. R\u00f3m. 8,29. K\u00f3l. 1,15.17. S\u00e1lm. 97,7.  V. 7. S\u00e1lm. 104,4.  V. 8. S\u00e1lm. 45,7.8. V. 9. Post. g. b. 10,38.  V. 10. S\u00e1lm. 102,27.28.  V. 13. S\u00e1lm. 110,1. Efes. 1,20. Hebr. 10,12.  V. 14. S\u00e1lm. 34,8.<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd fyrndinni l\u00e9t Gu\u00f0 sp\u00e1menn s\u00edna kunngj\u00f6ra fe\u00f0runum sinn vilja, en fyrir skemmstu l\u00e9t hann Son sinn, sem englunum er \u00e6\u00f0ri, gj\u00f6ra hi\u00f0 sama. 1S\u00e1 Gu\u00f0, er for\u00f0um tala\u00f0i til fe\u00f0ranna \u00ed fleiri skipti, og me\u00f0 m\u00f6rgu m\u00f3ti fyrir munn sinna sp\u00e1manna, hann hefir \u00e1 \u00feessum s\u00ed\u00f0ustu t\u00edmum til vor tala\u00f0 fyrir Soninn,2hv\u00f6rn hann setti erfingja allra hluta, fyrir hv\u00f6rn hann og svo heiminn sk\u00f3p,3hv\u00f6r, af \u00fev\u00ed hann er geisli hans d\u00fdr\u00f0ar og eftirmynd hans veru, sem \u00f6llu stj\u00f3rnar me\u00f0 s\u00ednu kr\u00f6ftuga or\u00f0i, \u00fe\u00e1 settist hann til h\u00e6gri hli\u00f0ar gu\u00f0legri h\u00e1tign \u00e1 h\u00e6\u00f0um, eftir \u00fea\u00f0 hann me\u00f0 dau\u00f0a s\u00ednum haf\u00f0i <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/hebreabrefid-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21983","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21983","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21983"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21983\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21983"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}