{"id":21852,"date":"2018-01-02T01:04:30","date_gmt":"2018-01-02T01:04:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/johannesargudspjall-6-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:04:30","modified_gmt":"2018-01-02T01:04:30","slug":"johannesargudspjall-6-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/johannesargudspjall-6-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 6. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">Jes\u00fas mettar fimm \u00fe\u00fasundir manna; gengur \u00e1 vatninu; talar um \u00fe\u00e1 f\u00e6\u00f0u, sem dugir til eil\u00edfs l\u00edfs.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Eftir \u00feetta f\u00f3r Jes\u00fas yfir um st\u00f6\u00f0uvatni\u00f0 T\u00edber\u00edadis \u00ed Gal\u00edleu,<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>og margt f\u00f3lk fylgdi honum, \u00fev\u00ed menn s\u00e1u \u00feau teikn, er hann gj\u00f6r\u00f0i \u00e1 \u00feeim sj\u00faku.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>En Jes\u00fas gekk upp \u00e1 fjalli\u00f0 og settist \u00fear ni\u00f0ur me\u00f0 s\u00ednum l\u00e6risveinum.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>En \u00fe\u00e1 voru p\u00e1skar \u00ed n\u00e1nd, h\u00e1t\u00ed\u00f0 Gy\u00f0inga.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00deegar Jes\u00fas lita\u00f0ist n\u00fa um og s\u00e1 a\u00f0 fj\u00f6ldi f\u00f3lks kom til hans, sag\u00f0i hann vi\u00f0 Filippus: hva\u00f0an kaupum v\u00e9r brau\u00f0 svo a\u00f0 \u00feessum n\u00e6gi?<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u2014En hann sag\u00f0i \u00feetta til a\u00f0 reyna hann, \u00fev\u00ed sj\u00e1lfur vissi hann hva\u00f0 hann \u00e6tla\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 gj\u00f6ra.\u2014<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Filippus svara\u00f0i honum: brau\u00f0 fyrir tv\u00f6 hundru\u00f0 peninga <span class='VideyAth'>b)<\/span> duga \u00feeim ekki, svo a\u00f0 hv\u00f6r einn f\u00e1i l\u00edti\u00f0 eitt.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i Andr\u00e9s, einn af hans l\u00e6risveinum, br\u00f3\u00f0ir P\u00e9turs S\u00edm\u00f3nar:<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>h\u00e9r er eitt ungmenni, sem hefir fimm byggbrau\u00f0 og tvo sm\u00e1fiska, en hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 handa svo m\u00f6rgum?<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>En Jes\u00fas sag\u00f0i: l\u00e1ti\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 setjast ni\u00f0ur. \u00cd \u00feeim sta\u00f0 var gras miki\u00f0. \u00de\u00e1 settust ni\u00f0ur karlmenn a\u00f0 t\u00f6lu n\u00e6r fimm \u00fe\u00fasundir.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>En Jes\u00fas t\u00f3k brau\u00f0in, og \u00feegar hann haf\u00f0i blessa\u00f0, f\u00e9kk hann l\u00e6risveinunum, en l\u00e6risveinarnir \u00feeim, sem h\u00f6f\u00f0u sest ni\u00f0ur, s\u00f6mulei\u00f0is af fiskunum svo miki\u00f0, sem \u00feeir vildu.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>En sem \u00feeir voru mettir, segir hann vi\u00f0 s\u00edna l\u00e6risveina: taki\u00f0 saman leifarnar, sem afgangs eru svo ekkert spillist.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00deeir s\u00f6fnu\u00f0u \u00feeim saman og fylltu t\u00f3lf karfir me\u00f0 leifar af \u00feeim fimm byggbrau\u00f0um, sem gengu af hj\u00e1 \u00feeim, er neytt h\u00f6f\u00f0u.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00deeir menn, sem s\u00e1u \u00fea\u00f0 teikn, er Jes\u00fas gj\u00f6r\u00f0i, s\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e1: \u00feessi er sannarlega s\u00e1 sp\u00e1ma\u00f0ur, sem \u00e1 a\u00f0 koma \u00ed heiminn.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Jes\u00fas, sem vissi a\u00f0 \u00feeir mundu koma og taka hann, til \u00feess \u00feeir gj\u00f6r\u00f0u hann a\u00f0 konungi, veik aftur afs\u00ed\u00f0is einsamall upp \u00e1 fjalli\u00f0. <br \/><a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>En er kv\u00f6ld var komi\u00f0, f\u00f3ru l\u00e6risveinar hans ni\u00f0ur a\u00f0 vatninu og gengu \u00e1 skipi\u00f0<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>og f\u00f3ru yfir vatni\u00f0 til Kapernaum; \u00fe\u00e1 var \u00feegar or\u00f0i\u00f0 dimmt og Jes\u00fas var ekki kominn til \u00feeirra.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>En ylgja var \u00e1 vatninu, \u00fev\u00ed ve\u00f0ur bl\u00e9s miki\u00f0.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00deegar \u00feeir h\u00f6f\u00f0u n\u00fa r\u00f3i\u00f0 h\u00e9r um bil 25 e\u00f0ur 30 skei\u00f0r\u00fam <span class='VideyAth'>a)<\/span> sj\u00e1 \u00feeir Jes\u00fam gangandi \u00e1 vatninu og kominn n\u00e1l\u00e6gt skipinu og ur\u00f0u hr\u00e6ddir.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Hann yrti \u00e1 \u00fe\u00e1 og sag\u00f0i: eg em \u00fea\u00f0, \u00f3ttist ekki!<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00deeir vildu \u00fe\u00e1 taka hann innbyr\u00f0is og strax rann skipi\u00f0 a\u00f0 landi \u00fear, sem \u00feeir r\u00e9ru a\u00f0. <br \/><a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Daginn eftir, \u00fear e\u00f0 f\u00f3lksfj\u00f6ldinn, sem haf\u00f0i sta\u00f0i\u00f0 hinumegin vi\u00f0 vatni\u00f0, vissi a\u00f0 ekkert skip haf\u00f0i \u00fear veri\u00f0 nema \u00fea\u00f0 eina, sem hans l\u00e6risveinar h\u00f6f\u00f0u gengi\u00f0 \u00e1 og a\u00f0 Jes\u00fas haf\u00f0i ekki fari\u00f0 \u00e1 skipi\u00f0 me\u00f0 s\u00ednum l\u00e6risveinum, heldur a\u00f0 l\u00e6risveinar hans h\u00f6f\u00f0u fari\u00f0 einir\u2014<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>en \u00fear komu \u00f6nnur skip fr\u00e1 T\u00edber\u00edas n\u00e1l\u00e6gt \u00feeim sta\u00f0, hvar \u00feeir \u00e1tu brau\u00f0in, eftir a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i gj\u00f6rt \u00feakkir\u2014<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Og \u00fear e\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 n\u00fa s\u00e1, a\u00f0 hverki var Jes\u00fas \u00fear n\u00e9 hans l\u00e6risveinar, gekk \u00fea\u00f0 einnig \u00e1 skipin og kom til Kapernaum til a\u00f0 leita a\u00f0 Jes\u00fa.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Og sem \u00feeir fundu hann hinumeginn vi\u00f0 vatni\u00f0, s\u00f6g\u00f0u \u00feeir til hans: Meistari! n\u00e6r komstu hinga\u00f0?<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Jes\u00fas svara\u00f0i \u00feeim og sag\u00f0i: sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: \u00fe\u00e9r leiti\u00f0 m\u00edn ekki af \u00fev\u00ed \u00fe\u00e9r s\u00e1u\u00f0 teiknin, heldur af \u00fev\u00ed, \u00fe\u00e9r \u00e1tu\u00f0 af brau\u00f0unum og ur\u00f0u\u00f0 mettir.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Afli\u00f0 ekki y\u00f0ur \u00feeirrar f\u00e6\u00f0u, sem ey\u00f0ist, heldur \u00feeirrar f\u00e6\u00f0u, sem varir til eil\u00edfs l\u00edfs, hverja Mannsins Sonur mun gefa y\u00f0ur, \u00fev\u00ed \u00feennan hefir Gu\u00f0, Fa\u00f0irinn innsigla\u00f0 <span class='VideyAth'>b)<\/span>.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>\u00deeir s\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e1 til hans: hva\u00f0 eigum v\u00e9r a\u00f0 gj\u00f6ra, svo v\u00e9r vinnum verk Gu\u00f0s?<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: \u00fea\u00f0 er Gu\u00f0s verk, a\u00f0 \u00fe\u00e9r tr\u00fai\u00f0 \u00e1 \u00feann, sem hann sendi.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>\u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u \u00feeir til hans: hver teikn gj\u00f6rir \u00fe\u00fa, a\u00f0 v\u00e9r sj\u00e1um og tr\u00faum \u00fe\u00e9r? hva\u00f0 vinnur \u00fe\u00fa?<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>Vorir fe\u00f0ur \u00e1tu manna \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku eins og skrifa\u00f0 er: hann gaf \u00feeim brau\u00f0 af himni a\u00f0 eta.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas til \u00feeirra: sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: ekki gaf M\u00f3ses y\u00f0ur brau\u00f0 af himni, en minn Fa\u00f0ir gefur y\u00f0ur brau\u00f0 af himni, sem er hi\u00f0 r\u00e9tta;<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>\u00fev\u00ed \u00feetta Gu\u00f0s brau\u00f0 er s\u00e1, sem st\u00e9 ni\u00f0ur af himni og gefur heiminum l\u00edf.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>\u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u \u00feeir til hans: Herra! gef oss \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00feetta brau\u00f0.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>En Jes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: eg em l\u00edfsins brau\u00f0i\u00f0; s\u00e1, sem kemur til m\u00edn mun ekki ver\u00f0a hungra\u00f0ur og \u00feann mun aldrei \u00feyrsta, sem \u00e1 mig tr\u00fair.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>En eg hefi sagt y\u00f0ur: \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 s\u00e9\u00f0 mig og tr\u00fai\u00f0 \u00fe\u00f3 ekki.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>Allir, sem Fa\u00f0ir minn gefur m\u00e9r, koma til m\u00edn og \u00feann, sem til m\u00edn kemur mun eg ekki \u00fatreka.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 eg hefi ni\u00f0urstigi\u00f0 af himni, ekki til a\u00f0 gj\u00f6ra minn vilja, heldur vilja \u00feess sem mig sendi.<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>En \u00fea\u00f0 er vilji \u00feess, sem mig sendi, a\u00f0 eg glati engum af \u00feeim, sem hann gaf m\u00e9r, heldur uppveki hann \u00e1 efsta degi.<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>\u00dev\u00ed \u00feetta er vilji \u00feess, sem mig sendi: a\u00f0 hver, sem s\u00e9r Soninn og tr\u00fair \u00e1 hann, hafi eil\u00edft l\u00edf og eg mun uppvekja hann \u00e1 efsta degi.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>\u00de\u00e1 m\u00f6glu\u00f0u Gy\u00f0ingar m\u00f3ti honum, af \u00fev\u00ed hann sag\u00f0i: eg em \u00fea\u00f0 brau\u00f0, sem kom ni\u00f0ur af himni<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>og s\u00f6g\u00f0u: er ekki \u00feessi Jes\u00fas sonur J\u00f3seps, hvers f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur v\u00e9r \u00feekkjum? hvernig segir hann \u00fe\u00e1, a\u00f0 hann hafi st\u00edgi\u00f0 ni\u00f0ur af himni?<a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>Jes\u00fas svara\u00f0i \u00feeim og sag\u00f0i: n\u00f6ldri\u00f0 ekki innbyr\u00f0is.<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>Enginn getur komi\u00f0 til m\u00edn, nema Fa\u00f0irinn sem sendi mig, dragi hann, og eg mun uppvekja \u00feann \u00e1 efsta degi.<a name=\"45\"><span class=\"versanumer\">45<\/span><\/a>\u00dea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed sp\u00e1manna b\u00f3kunum: \u201e\u00feeir munu allir ver\u00f0a af Gu\u00f0i uppfr\u00e6ddir\u201c; hv\u00f6r s\u00e1, sem heyrir F\u00f6\u00f0urinn og l\u00e6rir af honum, s\u00e1 kemur til m\u00edn.<br \/><a name=\"46\"><span class=\"versanumer\">46<\/span><\/a>Ekki er \u00fea\u00f0 svo a\u00f0 skilja, sem nokkur hafi s\u00e9\u00f0 F\u00f6\u00f0urinn nema s\u00e1 sem er fr\u00e1 Gu\u00f0i, hann hefir s\u00e9\u00f0 F\u00f6\u00f0urinn.<a name=\"47\"><span class=\"versanumer\">47<\/span><\/a>Sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: hv\u00f6r, sem \u00e1 mig tr\u00fair hefir eil\u00edft l\u00edf.<a name=\"48\"><span class=\"versanumer\">48<\/span><\/a>Eg em l\u00edfsins brau\u00f0.<a name=\"49\"><span class=\"versanumer\">49<\/span><\/a>Fe\u00f0ur y\u00f0ar \u00e1tu manna \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni og d\u00f3u.<a name=\"50\"><span class=\"versanumer\">50<\/span><\/a>\u00deetta er brau\u00f0i\u00f0, \u00fea\u00f0 af himni ni\u00f0urstigna, svo a\u00f0 ma\u00f0ur neyti af \u00fev\u00ed og ekki deyi.<a name=\"51\"><span class=\"versanumer\">51<\/span><\/a>Eg em \u00fea\u00f0 lifanda brau\u00f0, sem kom ni\u00f0ur af himni; ef nokkur etur af \u00feessu brau\u00f0i, mun hann lifa til eil\u00edf\u00f0ar, og \u00fea\u00f0 brau\u00f0, sem eg mun gefa, er mitt hold, sem eg mun gefa heiminum til l\u00edfs.<a name=\"52\"><span class=\"versanumer\">52<\/span><\/a>\u00de\u00e1 \u00fer\u00e1ttu\u00f0u Gy\u00f0ingar innbyr\u00f0is og s\u00f6g\u00f0u: hv\u00f6rnig getur \u00feessi gefi\u00f0 oss sitt hold a\u00f0 eta?<a name=\"53\"><span class=\"versanumer\">53<\/span><\/a>\u00dev\u00ed sag\u00f0i Jes\u00fas til \u00feeirra: sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: ef a\u00f0 \u00fe\u00e9r eti\u00f0 ekki hold Mannsins Sonar og drekki\u00f0 ekki hans bl\u00f3\u00f0, hafi\u00f0 \u00fe\u00e9r ekki l\u00edfi\u00f0 \u00ed y\u00f0ur.<a name=\"54\"><span class=\"versanumer\">54<\/span><\/a>Hv\u00f6r, sem etur mitt hold og drekkur mitt bl\u00f3\u00f0, s\u00e1 hefir eil\u00edft l\u00edf og eg mun uppvekja hann \u00e1 efsta degi;<a name=\"55\"><span class=\"versanumer\">55<\/span><\/a>\u00fev\u00ed hold mitt er sannarlega f\u00e6\u00f0a og bl\u00f3\u00f0 mitt er sannarlega drykkur.<a name=\"56\"><span class=\"versanumer\">56<\/span><\/a>S\u00e1, sem etur mitt hold og drekkur mitt bl\u00f3\u00f0, s\u00e1 er \u00ed m\u00e9r og eg \u00ed honum;<a name=\"57\"><span class=\"versanumer\">57<\/span><\/a>eins og s\u00e1 lifandi Fa\u00f0ir sendi mig og eg \u00e1 F\u00f6\u00f0urnum l\u00edfi\u00f0 a\u00f0 \u00feakka, svo mun s\u00e1 eiga m\u00e9r l\u00edfi\u00f0 a\u00f0 \u00feakka, sem mig etur <span class='VideyAth'>a)<\/span>.<a name=\"58\"><span class=\"versanumer\">58<\/span><\/a>\u00deetta er \u00fea\u00f0 brau\u00f0, sem komi\u00f0 er af himni, ekki sem manna, er fe\u00f0ur y\u00f0ar \u00e1tu og d\u00f3u samt.<a name=\"59\"><span class=\"versanumer\">59<\/span><\/a>\u00deetta tala\u00f0i Jes\u00fas \u00ed samkundunni, \u00fe\u00e1 hann kenndi \u00ed Kapernaum.<a name=\"60\"><span class=\"versanumer\">60<\/span><\/a>Margir af hans l\u00e6risveinum, sem heyr\u00f0u \u00e1, s\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e1: \u00feung er \u00feessi r\u00e6\u00f0a, hv\u00f6r getur hl\u00fdtt \u00e1 hana?<a name=\"61\"><span class=\"versanumer\">61<\/span><\/a>En er Jes\u00fas vissi me\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r, a\u00f0 hans l\u00e6risveinar m\u00f6glu\u00f0u um \u00feetta, sag\u00f0i hann: hneykslar y\u00f0ur \u00feetta?<a name=\"62\"><span class=\"versanumer\">62<\/span><\/a>En ef \u00fe\u00e9r s\u00e6ju\u00f0 \u00fe\u00e1 Mannsins Son uppst\u00edga \u00feanga\u00f0, sem hann var \u00e1\u00f0ur?<a name=\"63\"><span class=\"versanumer\">63<\/span><\/a>Andinn er \u00fea\u00f0, sem l\u00edfgar, holdi\u00f0 gagnar til einkis; \u00feau or\u00f0, sem eg tala til y\u00f0ar, eru andi og l\u00edf.<a name=\"64\"><span class=\"versanumer\">64<\/span><\/a>En \u00feeir eru nokkrir me\u00f0al y\u00f0ar, sem ekki tr\u00faa; \u00fev\u00ed Jes\u00fas vissi fr\u00e1 upphafi hv\u00f6rjir \u00feeir voru, sem ekki tr\u00fa\u00f0u og hv\u00f6r s\u00e1 var, sem mundi sv\u00edkja hann.<a name=\"65\"><span class=\"versanumer\">65<\/span><\/a>Og hann sag\u00f0i: vegna \u00feess sag\u00f0i eg y\u00f0ur: enginn getur komi\u00f0 til m\u00edn, nema honum s\u00e9 \u00fea\u00f0 gefi\u00f0 af m\u00ednum F\u00f6\u00f0ur.<a name=\"66\"><span class=\"versanumer\">66<\/span><\/a>Upp fr\u00e1 \u00feessu f\u00f3ru margir af l\u00e6risveinum hans fr\u00e1 honum og voru ekki framar me\u00f0 honum.<a name=\"67\"><span class=\"versanumer\">67<\/span><\/a>Jes\u00fas sag\u00f0i \u00fev\u00ed vi\u00f0 \u00fe\u00e1 t\u00f3lf: vilji\u00f0 \u00fe\u00e9r einnig fara burt?<a name=\"68\"><span class=\"versanumer\">68<\/span><\/a>S\u00edmon P\u00e9tur svara\u00f0i honum: Herra! til hv\u00f6rs skulum v\u00e9r fara?<a name=\"69\"><span class=\"versanumer\">69<\/span><\/a>\u00fe\u00fa hefir or\u00f0 eil\u00edfs l\u00edfs og v\u00e9r h\u00f6fum tr\u00faa\u00f0 og kannast vi\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa ert s\u00e1 heilagi Gu\u00f0s.<a name=\"70\"><span class=\"versanumer\">70<\/span><\/a>Jes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: hefi eg ekki \u00fatvali\u00f0 y\u00f0ur t\u00f3lf? og einn af y\u00f0ur er dj\u00f6full.<a name=\"71\"><span class=\"versanumer\">71<\/span><\/a>En hann meinti J\u00fadas S\u00edmonsson fr\u00e1 Kar\u00edot, \u00fev\u00ed hann var\u00f0 s\u00ed\u00f0an til a\u00f0 sv\u00edkja hann og var einn af \u00feeim t\u00f3lf.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\">V. 3\u201321. Sj\u00e1 Matt. 14,13\u201333. Mark. 6,32. skg. L\u00fak, 9.10. fl.  V. 7. b. \u00dea\u00f0 er n\u00e1l\u00e6gt hundra\u00f0 r\u00edxort heil.  V. 19. a. Eitt skei\u00f0r\u00fam (stadium) er 625 fet.  V. 27. b. Au\u00f0kennt sem sinn erindisreka og elskulegan Son.  V. 31. 2 M\u00f3s. 16,14.15. 4 M\u00f3s. 11,7. S\u00e1lm. 78,24.  V. 35. Esa. 55,1.  V. 45. Esa. 54,13. Jer. 13,33. M\u00edkk. 4,2.  V. 57. Kap. 15,4. a. \u00deegar saman eru borin vers 40, 51, 56 og 63 h\u00e9r \u00e1 eftir, er au\u00f0s\u00e9\u00f0 a\u00f0 \u00feessir talsh\u00e6ttir: sj\u00e1 Soninn og tr\u00faa honum, a\u00f0 eta hold og drekka bl\u00f3\u00f0 Mannsins Sonar, og a\u00f0 vera \u00ed honum og hafa hann \u00ed s\u00e9r, hafa allir s\u00f6mu \u00fe\u00fd\u00f0ingu. Allt \u00feetta \u00e1 a\u00f0 gj\u00f6ra s\u00f6mu verkun: gefa m\u00f6nnunum eil\u00edf l\u00edf.  V. 69. Matt. 16,16.<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Jes\u00fas mettar fimm \u00fe\u00fasundir manna; gengur \u00e1 vatninu; talar um \u00fe\u00e1 f\u00e6\u00f0u, sem dugir til eil\u00edfs l\u00edfs. 1Eftir \u00feetta f\u00f3r Jes\u00fas yfir um st\u00f6\u00f0uvatni\u00f0 T\u00edber\u00edadis \u00ed Gal\u00edleu,2og margt f\u00f3lk fylgdi honum, \u00fev\u00ed menn s\u00e1u \u00feau teikn, er hann gj\u00f6r\u00f0i \u00e1 \u00feeim sj\u00faku.3En Jes\u00fas gekk upp \u00e1 fjalli\u00f0 og settist \u00fear ni\u00f0ur me\u00f0 s\u00ednum l\u00e6risveinum.4En \u00fe\u00e1 voru p\u00e1skar \u00ed n\u00e1nd, h\u00e1t\u00ed\u00f0 Gy\u00f0inga.5\u00deegar Jes\u00fas lita\u00f0ist n\u00fa um og s\u00e1 a\u00f0 fj\u00f6ldi f\u00f3lks kom til hans, sag\u00f0i hann vi\u00f0 Filippus: hva\u00f0an kaupum v\u00e9r brau\u00f0 svo a\u00f0 \u00feessum n\u00e6gi?6\u2014En hann sag\u00f0i \u00feetta til a\u00f0 reyna hann, \u00fev\u00ed sj\u00e1lfur vissi hann hva\u00f0 hann \u00e6tla\u00f0i s\u00e9r <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/johannesargudspjall-6-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21852","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21852","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21852"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21852\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21852"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}