{"id":21727,"date":"2018-01-02T01:03:38","date_gmt":"2018-01-02T01:03:38","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/joel-2-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:03:38","modified_gmt":"2018-01-02T01:03:38","slug":"joel-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/joel-2-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3el 2. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">J\u00f3el afm\u00e1lar yfirgang og ey\u00f0ileggingu engisprettanna; r\u00e6\u00f0ur f\u00f3lkinu af n\u00fdju a\u00f0 leita trausts hj\u00e1 Gu\u00f0i, og fullvissar \u00fea\u00f0 um hans b\u00e6nheyrslu.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00deeyti\u00f0 l\u00fa\u00f0urinn \u00e1 S\u00edonsfjalli! \u00e6pi\u00f0 her\u00f3p \u00e1 m\u00ednu heilaga fjalli! skelfist, allir innb\u00faar landsins! \u00fev\u00ed dagur Drottins kemur, hann er \u00ed n\u00e1nd,<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>hinn myrki og dimmi dagur, hinn sk\u00fdja\u00f0i og skuggalegi dagur. Eins og morgunro\u00f0i, brei\u00f0ir sig yfir fj\u00f6llin st\u00f3r og voldug \u00fej\u00f3\u00f0, hv\u00f6rrar l\u00edki ekki hefir veri\u00f0 fr\u00e1 upphafi veraldar, og mun ekki h\u00e9r eftir ver\u00f0a um alla \u00f3komna mannsaldra;<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>fyrir henni fer ey\u00f0andi eldur, eftir henni logi brennandi: landi\u00f0 fram undan henni er sem Edensgar\u00f0ur, en \u00e1 bak henni sem ey\u00f0i\u00f6r\u00e6fi; engi hlutur kemst undan henni.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>\u00c1s\u00fdndum eru \u00feeir sem hestar a\u00f0 sj\u00e1, og fr\u00e1ir sem riddarar.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00deegar \u00feeir st\u00f6kkva \u00e1 fjallatindunum, ver\u00f0ur gn\u00fdr, sem af v\u00f6gnum, e\u00f0a af eldsloga, sem snarkar \u00ed h\u00e1lmi \u00feeim, er hann brennir; \u00feeir eru eins og voldug \u00fej\u00f3\u00f0, b\u00fain til bardaga.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Fyrir \u00feessum m\u00faga skj\u00e1lfa \u00fej\u00f3\u00f0irnar, og \u00f6ll andlit blikna.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00deeir hlaupa sem hetjur, st\u00edga upp \u00e1 borgarvegginn, sem hermenn; s\u00e9rhv\u00f6r \u00feeirra gengur beint fram, og v\u00edkur ekki af stefnu sinni;<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>engi \u00feeirra \u00ferengir \u00f6\u00f0rum, heldur gengur hv\u00f6r s\u00edna braut: \u00feeir falla fyrir sver\u00f0um, en aftra ekki g\u00f6ngu sinni.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>\u00deeir \u00f3lmast um borgina, hlaupa \u00e1 borgarveggnum, st\u00edga upp \u00ed h\u00fasin, og fara inn um gluggana, sem \u00fej\u00f3far.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>J\u00f6r\u00f0in titrar fyrir \u00feeirra \u00e1sj\u00f3nu, himinninn skelfur, s\u00f3l og tungl ver\u00f0a myrk, og stj\u00f6rnurnar afturhalda lj\u00f3si s\u00ednu.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Drottinn upphefur s\u00edna <span class='VideyAth'>(\u00ferumu)<\/span>raust fyrir \u00f6ndver\u00f0u li\u00f0i s\u00ednu, \u00fev\u00ed herli\u00f0 hans er \u00e1kaflega miki\u00f0, og voldugur er s\u00e1, sem framkv\u00e6mir hans bo\u00f0; \u00fev\u00ed st\u00f3r og \u00f3gurlegur er dagur Drottins: hv\u00f6r getur afbori\u00f0 hann?<br \/><a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00dear fyrir, svo segir Drottinn, sn\u00fai\u00f0 y\u00f0ur n\u00fa til m\u00edn af \u00f6llu hjarta, me\u00f0 f\u00f6stum, gr\u00e1ti og kveini.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Sundurr\u00edfi\u00f0 y\u00f0ar hj\u00f6rtu, en ekki y\u00f0ar kl\u00e6\u00f0i; sn\u00fai\u00f0 y\u00f0ur til Drottins, y\u00f0vars Gu\u00f0s, \u00fev\u00ed hann er l\u00edknsamur, miskunnsamur, \u00feolinm\u00f3\u00f0ur, g\u00e6skur\u00edkur og vorkunnsamur \u00ed m\u00f3tl\u00e6tinu.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Hv\u00f6r veit, nema hann miskunni sig aftur yfir y\u00f0ur, og l\u00e1ti blessun eftir sig, matf\u00f3rn og dreypif\u00f3rn handa Drottni, Gu\u00f0i y\u00f0rum?<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>\u00deeyti\u00f0 l\u00fa\u00f0urinn \u00e1 S\u00edonsfjalli, haldi\u00f0 f\u00f6stu, stefni\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0isfund,<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>kalli\u00f0 saman l\u00fd\u00f0inn, kve\u00f0ji\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0fundar, stefni\u00f0 saman h\u00f6f\u00f0ingjum l\u00fd\u00f0sins, og ungum b\u00f6rnum, og jafnvel brj\u00f3stmylkingum, br\u00fa\u00f0guminn gangi \u00fat af herbergi s\u00ednu, og br\u00fa\u00f0urin \u00fat af br\u00fa\u00f0arsalnum.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Kennimennirnir, \u00fej\u00f3nar Drottins, standi milli sv\u00f6lugangsins og altarisins, og segi gr\u00e1tandi: \u00feyrm \u00fe\u00ednu f\u00f3lki, Drottinn! l\u00e1t eigi \u00feinn eiginlegan l\u00fd\u00f0 ver\u00f0a a\u00f0 spotti, svo hei\u00f0ingjarnir kve\u00f0i um hann h\u00e1\u00f0v\u00edsur; hv\u00ed skal sagt ver\u00f0a me\u00f0al hei\u00f0ingjanna: hvar er n\u00fa Gu\u00f0 \u00feeirra?<br \/><a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00de\u00e1 mun Drottinn r\u00e9tta hlut s\u00edns lands, og v\u00e6gja s\u00ednu f\u00f3lki.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Drottinn mun svara og segja vi\u00f0 sinn l\u00fd\u00f0: sj\u00e1i\u00f0, eg sendi y\u00f0ur korn, v\u00ednberjal\u00f6g og vi\u00f0smj\u00f6r, svo y\u00f0ur skal n\u00e6gja til sa\u00f0nings; og eg vil eigi l\u00e1ta y\u00f0ur h\u00e9r eftir ver\u00f0a a\u00f0 spotti me\u00f0al hei\u00f0ingjanna.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>\u00deeim s\u00e6g, sem fr\u00e1 nor\u00f0ri kom, skal eg st\u00f6kkva langt \u00ed burt fr\u00e1 y\u00f0ur, og keyra hann \u00fat \u00e1 au\u00f0nir og \u00f6r\u00e6fi, skal fararbroddur hans lenda \u00ed austurhafinu, en halaflokkurinn \u00ed vesturhafinu; \u00fear skal f\u00fdla og illur daun upp af honum st\u00edga, s\u00f6kum \u00feess st\u00f3rr\u00e6\u00f0is, sem hann hefir \u00ed frammi haft.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00d3ttast eigi, <span class='VideyAth'>(\u00cdsraels)<\/span>land, ver gla\u00f0v\u00e6rt og fagna, \u00fev\u00ed Drottinn hefir framkv\u00e6mt mikla hluti.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00d3ttist eigi, \u00fe\u00e9r d\u00fdr sem lifi\u00f0 \u00e1 v\u00ed\u00f0avangi, \u00fev\u00ed grashagar ey\u00f0imerkurinnar gr\u00e6nka; tr\u00e9n bera \u00e1v\u00f6xt, f\u00edkjutr\u00e9n og v\u00edntr\u00e9n gefa sinn gr\u00f3\u00f0a.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Og \u00fe\u00e9r S\u00edonsb\u00f6rn, fagni\u00f0 og veri\u00f0 gl\u00f6\u00f0 \u00ed Drottni, Gu\u00f0i y\u00f0rum, \u00fev\u00ed hann gefur y\u00f0ur regn \u00ed h\u00e6filegan t\u00edma, og l\u00e6tur vord\u00f6gg og haustregn ofan til y\u00f0ar koma, sem fyrrum.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>L\u00e1farnir skulu ver\u00f0a fullir af korni, og lagarkerin flj\u00f3ta af \u00fer\u00fagnalegi og vi\u00f0smj\u00f6ri.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>\u00de\u00e1 vil eg b\u00e6ta y\u00f0ur upp \u00feau hall\u00e6ris\u00e1rin, sem ur\u00f0u, \u00feegar eg sendi m\u00f3ti y\u00f0ur \u00feann hinn mikla herskara minn, fernar tegundir engispretta.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>\u00de\u00e9r skulu\u00f0 eta og mettir ver\u00f0a, og lofa nafn Drottins, y\u00f0vars Gu\u00f0s, sem hefir gj\u00f6rt d\u00e1samlega hluti y\u00f0ar \u00e1 me\u00f0al; og mitt f\u00f3lk skal aldrei a\u00f0 eil\u00edfu til sm\u00e1nar ver\u00f0a.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 eg er mitt \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelsmanna, og a\u00f0 eg Drottinn er y\u00f0ar Gu\u00f0, en enginn annar, og mitt f\u00f3lk skal aldrei a\u00f0 eil\u00edfu til sm\u00e1nar ver\u00f0a.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\">V. 23. S\u00edonsb\u00f6rn, innbyggjendur Jer\u00fasalemsborgar.<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>J\u00f3el afm\u00e1lar yfirgang og ey\u00f0ileggingu engisprettanna; r\u00e6\u00f0ur f\u00f3lkinu af n\u00fdju a\u00f0 leita trausts hj\u00e1 Gu\u00f0i, og fullvissar \u00fea\u00f0 um hans b\u00e6nheyrslu. 1\u00deeyti\u00f0 l\u00fa\u00f0urinn \u00e1 S\u00edonsfjalli! \u00e6pi\u00f0 her\u00f3p \u00e1 m\u00ednu heilaga fjalli! skelfist, allir innb\u00faar landsins! \u00fev\u00ed dagur Drottins kemur, hann er \u00ed n\u00e1nd,2hinn myrki og dimmi dagur, hinn sk\u00fdja\u00f0i og skuggalegi dagur. Eins og morgunro\u00f0i, brei\u00f0ir sig yfir fj\u00f6llin st\u00f3r og voldug \u00fej\u00f3\u00f0, hv\u00f6rrar l\u00edki ekki hefir veri\u00f0 fr\u00e1 upphafi veraldar, og mun ekki h\u00e9r eftir ver\u00f0a um alla \u00f3komna mannsaldra;3fyrir henni fer ey\u00f0andi eldur, eftir henni logi brennandi: landi\u00f0 fram undan henni er sem Edensgar\u00f0ur, en \u00e1 bak henni <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/joel-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21727","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21727","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21727"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21727\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21727"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}