{"id":21704,"date":"2018-01-02T01:03:30","date_gmt":"2018-01-02T01:03:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/daniel-5-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:03:30","modified_gmt":"2018-01-02T01:03:30","slug":"daniel-5-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/daniel-5-kafli\/","title":{"rendered":"Dan\u00edel 5. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">Dan\u00edel les og \u00fat\u00fe\u00fd\u00f0ir letri\u00f0 \u00e1 veggnum.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Beltsasar konungur <span class='VideyAth'>a)<\/span> h\u00e9lt veislu mikla s\u00ednum 1000 st\u00f3rh\u00f6f\u00f0ingjum, og drakk v\u00edn me\u00f0 \u00feeim;<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>en er menn t\u00f3ku til a\u00f0 gj\u00f6rast \u00f6lhreifir, ba\u00f0 Beltsasar a\u00f0 s\u00e6kja \u00feau gullker og silfurker, sem Neb\u00fakadnesar, fa\u00f0ir hans, haf\u00f0i teki\u00f0 \u00far musterinu \u00ed Jer\u00fasalem, til \u00feess a\u00f0 konungurinn sj\u00e1lfur og hans st\u00f3rh\u00f6f\u00f0ingjar, konur hans og hj\u00e1konur, drykki \u00fear af.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00de\u00e1 voru fram borin \u00feau gullker, sem tekin h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 \u00far musterinu, \u00far Gu\u00f0sh\u00fasi \u00ed Jer\u00fasalem; og konungurinn, hans st\u00f3rh\u00f6f\u00f0ingjar, eiginkonur og hj\u00e1konur, drukku af \u00feeim.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>\u00deeir drukku n\u00fa v\u00edni\u00f0, og vegs\u00f6mu\u00f0u \u00fe\u00e1 gu\u00f0i, sem gj\u00f6r\u00f0ir voru af gulli, silfri, eiri, j\u00e1rni, tr\u00e9 og steini.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00c1 s\u00f6mu stundu komu fram eins og fingur \u00e1 mannshendi, sem ritu\u00f0u eitthva\u00f0 \u00e1 kalki\u00f0 \u00e1 veggnum \u00ed konungsh\u00f6llinni, gegnt lj\u00f3sahj\u00e1lminum, og s\u00e1 konungurinn inn \u00ed l\u00f3fa handarinnar, sem rita\u00f0i.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00de\u00e1 t\u00f3k konungurinn litaskipti og var\u00f0 skelka\u00f0ur: mja\u00f0mir hans engdust saman, og hans kn\u00e9 titru\u00f0u.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Konungurinn kalla\u00f0i h\u00e1st\u00f6fum, a\u00f0 \u00feanga\u00f0 skyldi lei\u00f0a stj\u00f6rnuvitringana, Kaldeaspekinga og sp\u00e1sagnarmennina; l\u00e9t konungur segja v\u00edsindam\u00f6nnunum \u00ed Babel: \u201ehv\u00f6r sem les \u00feetta letur og segir m\u00e9r \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00feess, s\u00e1 skal kl\u00e6ddur ver\u00f0a \u00ed purpura, bera gullfesti \u00e1 h\u00e1lsi s\u00e9r, og vera \u00feri\u00f0ji yfirh\u00f6f\u00f0ingi \u00ed r\u00edki m\u00ednu\u201c.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00de\u00e1 voru allir v\u00edsindamenn konungsins leiddir inn \u00feanga\u00f0, en \u00feeir g\u00e1tu hv\u00f6rki lesi\u00f0 letri\u00f0, n\u00e9 sagt konungi \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00feess;<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>hv\u00f6rs vegna Beltsasar konungur var\u00f0 mj\u00f6g skelfdur og litverpur, og st\u00f3rh\u00f6f\u00f0ingjar hans ur\u00f0u \u00f3ttaslegnir.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>En er svo var \u00e1statt fyrir konungi og st\u00f3rh\u00f6f\u00f0ingjum hans, gekk drottningin inn \u00ed drykkjustofuna, t\u00f3k til or\u00f0a og m\u00e6lti: nj\u00f3ti konungurinn langra l\u00edfdaga! vert ei \u00f3ttasleginn, og skipt ei svo \u00fe\u00ednum yfirlitum!<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>S\u00e1 ma\u00f0ur er \u00ed r\u00edki \u00fe\u00ednu, \u00ed hv\u00f6rjum a\u00f0 b\u00fdr andi heilagra gu\u00f0a; \u00fev\u00ed \u00e1 d\u00f6gum f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00edns fannst hj\u00e1 \u00feeim manni lj\u00f3s, skilningur og v\u00edsd\u00f3mur, l\u00edkur v\u00edsd\u00f3mi gu\u00f0anna; og \u00fev\u00ed gj\u00f6r\u00f0i Neb\u00fakadnesar fa\u00f0ir \u00feinn, hann a\u00f0 yfirh\u00f6f\u00f0ingja kunn\u00e1ttumannanna, stj\u00f6rnuvitringanna, Kaldeaspekinga og sp\u00e1sagnarmanna. \u00deetta gj\u00f6r\u00f0i fa\u00f0ir \u00feinn, konungur,<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 hj\u00e1 honum fannst fr\u00e1b\u00e6r g\u00e1fa kunn\u00e1ttu og skilnings, til a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a drauma, r\u00e1\u00f0a g\u00e1tur og grei\u00f0a \u00far vandam\u00e1lum; hann heitir Dan\u00edel, en konungurinn l\u00e9t kalla hann Beltsasar. Kalli n\u00fa \u00e1 Dan\u00edel, og mun hann segja hva\u00f0 \u00feetta merkir.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an var Dan\u00edel leiddur inn fyrir konunginn; \u00fe\u00e1 m\u00e6lti konungur \u00feessum or\u00f0um til Dan\u00edels: ert\u00fa Dan\u00edel einn af \u00feeim herleiddu Gy\u00f0ingum, sem konungurinn, fa\u00f0ir minn, l\u00e9t hinga\u00f0 flytja fr\u00e1 J\u00fadalandi?<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Eg hefi heyrt af \u00fe\u00e9r sagt, a\u00f0 andi gu\u00f0anna s\u00e9 \u00ed \u00fe\u00e9r, og a\u00f0 hj\u00e1 \u00fe\u00e9r finnist lj\u00f3s, skilningur og fr\u00e1b\u00e6r v\u00edsd\u00f3mur.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>N\u00fa hefi eg l\u00e1ti\u00f0 lei\u00f0a inn fyrir mig v\u00edsindamenn og stj\u00f6rnuvitringa, til a\u00f0 lesa \u00feetta letur og segja m\u00e9r \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00feess, en \u00feeir hafa ekki geta\u00f0 \u00fea\u00f0.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>En eg heyri um \u00feig, a\u00f0 \u00fe\u00fa kunnir \u00fe\u00fd\u00f0ingar a\u00f0 r\u00e1\u00f0a og \u00far vandm\u00e6lum a\u00f0 grei\u00f0a. N\u00fa ef \u00fe\u00fa getur lesi\u00f0 \u00feetta letur og sagt m\u00e9r \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00feess, \u00fe\u00e1 skaltu kl\u00e6ddur ver\u00f0a \u00ed purpura, bera gullfesti \u00e1 h\u00e1lsi \u00fe\u00e9r, og vera hinn \u00feri\u00f0ji yfirh\u00f6f\u00f0ingi \u00ed r\u00edkinu.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00de\u00e1 t\u00f3k Dan\u00edel til or\u00f0a og svara\u00f0i konunginum: halt\u00fa sj\u00e1lfur \u00feinni g\u00e1fu, og veit gjafir \u00fe\u00ednar einhv\u00f6rjum \u00f6\u00f0rum. En ei a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur mun eg lesa \u00feetta letur fyrir konunginum, og segja \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00feess.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00de\u00fa konungur! Gu\u00f0 s\u00e1 hinn h\u00e6sti veitti Neb\u00fakadnesar, f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00ednum, r\u00edki, vald, \u00e1g\u00e6ti og vegsemd;<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>og s\u00f6kum \u00feess veldis, sem hann haf\u00f0i veitt honum, hr\u00e6ddust hann allar \u00fej\u00f3\u00f0ir, f\u00f3lk og tungum\u00e1l, og h\u00f6f\u00f0u beyg af honum, \u00fev\u00ed hann afl\u00edfa\u00f0i hv\u00f6rn sem hann vildi, og l\u00e9t lifa hv\u00f6rn sem hann vildi, hann h\u00f3f hv\u00f6rn er hann vildi, og l\u00edtill\u00e6tti hv\u00f6rn er hann vildi.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>En er hjarta hans metna\u00f0ist og hugur hans gj\u00f6r\u00f0ist ofdrambsfullur, \u00fe\u00e1 var honum hrundi\u00f0 \u00far konungsh\u00e1s\u00e6tinu, og metor\u00f0in tekin af honum;<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>hann var rekinn \u00far mannaf\u00e9lagi, hans hjarta var\u00f0 l\u00edkt d\u00fdrshjarta, hann \u00e1tti bygg\u00f0 me\u00f0al sk\u00f3garasna, \u00e1t gras sem uxar, og l\u00edkami hans var\u00f0 votur af himind\u00f6gginni, allt \u00fear til hann kanna\u00f0ist vi\u00f0, a\u00f0 hinn h\u00e6sti Gu\u00f0 hefir vald yfir r\u00edkjum mannanna, og veitir \u00feau hv\u00f6rjum sem hann vill.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa Beltsasar, sonur hans, hefir ekki l\u00edtill\u00e6tt \u00feitt hjarta, enn \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00fa vissir allt \u00feetta,<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>heldur hefir \u00fe\u00fa sett \u00feig upp \u00e1 m\u00f3ti Drottni himnanna, og l\u00e1ti\u00f0 f\u00e6ra \u00fe\u00e9r kerin \u00far hans h\u00fasi og drukki\u00f0 v\u00edn af \u00feeim \u00e1samt me\u00f0 st\u00f3rh\u00f6f\u00f0ingjum \u00fe\u00ednum, eiginkonum og hj\u00e1konum; \u00fe\u00fa hefir og lof sungi\u00f0 \u00feeim gu\u00f0um, sem gj\u00f6r\u00f0ir eru af silfri, gulli, eiri, j\u00e1rni, tr\u00e9 og steini, sem ekki sj\u00e1, ekki heyra og ekkert vita, en \u00feann Gu\u00f0, \u00ed hv\u00f6rs hendi \u00feinn andardr\u00e1ttur er og r\u00e1\u00f0 hefir \u00e1 \u00f6llum \u00fe\u00ednum h\u00f6gum, hann hefir \u00fe\u00fa ekki vegsama\u00f0.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>\u00deess vegna er \u00feessi handarl\u00f3fi fr\u00e1 honum sendur, og \u00feetta letur rita\u00f0.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>En letri\u00f0, sem rita\u00f0 er, er svol\u00e1tandi: Mene, Tekel, Peres.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>\u00deessi er \u00fe\u00fd\u00f0ing letursins: Mene, tali\u00f0, \u00fe. e. Gu\u00f0 hefir tali\u00f0 \u00fe\u00edn r\u00edkis\u00e1r og leitt \u00feau til enda;<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Tekel, vegi\u00f0, \u00fe. e. \u00fe\u00fa ert veginn \u00ed sk\u00e1lum og l\u00e9ttv\u00e6gur fundinn;<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Peres, deilt, \u00fe. e. \u00feitt r\u00edki er deilt og gefi\u00f0 Medum og Persum.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00dev\u00ed n\u00e6st bau\u00f0 Beltsasar a\u00f0 skr\u00fd\u00f0a Dan\u00edel purpura, og l\u00e1ta gullfesti \u00e1 h\u00e1ls honum, og gj\u00f6ra heyrumkunnugt, a\u00f0 hann skyldi vera \u00feri\u00f0ji yfirh\u00f6f\u00f0ingi \u00ed r\u00edkinu.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>En \u00e1 hinni s\u00f6mu n\u00f3ttu var Beltsasar Kaldeakonungur drepinn.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\">V. 1. a. L\u00edklega s\u00e1 seinasti k\u00f3ngur \u00ed Babylon, sem a\u00f0rir nefna Nabonned.<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Dan\u00edel les og \u00fat\u00fe\u00fd\u00f0ir letri\u00f0 \u00e1 veggnum. 1Beltsasar konungur a) h\u00e9lt veislu mikla s\u00ednum 1000 st\u00f3rh\u00f6f\u00f0ingjum, og drakk v\u00edn me\u00f0 \u00feeim;2en er menn t\u00f3ku til a\u00f0 gj\u00f6rast \u00f6lhreifir, ba\u00f0 Beltsasar a\u00f0 s\u00e6kja \u00feau gullker og silfurker, sem Neb\u00fakadnesar, fa\u00f0ir hans, haf\u00f0i teki\u00f0 \u00far musterinu \u00ed Jer\u00fasalem, til \u00feess a\u00f0 konungurinn sj\u00e1lfur og hans st\u00f3rh\u00f6f\u00f0ingjar, konur hans og hj\u00e1konur, drykki \u00fear af.3\u00de\u00e1 voru fram borin \u00feau gullker, sem tekin h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 \u00far musterinu, \u00far Gu\u00f0sh\u00fasi \u00ed Jer\u00fasalem; og konungurinn, hans st\u00f3rh\u00f6f\u00f0ingjar, eiginkonur og hj\u00e1konur, drukku af \u00feeim.4\u00deeir drukku n\u00fa v\u00edni\u00f0, og vegs\u00f6mu\u00f0u \u00fe\u00e1 gu\u00f0i, sem gj\u00f6r\u00f0ir voru af gulli, silfri, eiri, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/daniel-5-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21704","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21704","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21704"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21704\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21704"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}