{"id":21701,"date":"2018-01-02T01:03:30","date_gmt":"2018-01-02T01:03:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/daniel-2-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:03:30","modified_gmt":"2018-01-02T01:03:30","slug":"daniel-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/daniel-2-kafli\/","title":{"rendered":"Dan\u00edel 2. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">Dan\u00edel \u00fat\u00fe\u00fd\u00f0ir draum Neb\u00fakadnesars um l\u00edkneskjuna.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00c1 \u00f6\u00f0ru \u00e1ri r\u00edkis Neb\u00fakadnesars dreymdi Neb\u00fakadnesar draum, og var\u00f0 hann svo angurv\u00e6r af draumnum, a\u00f0 hann f\u00e9kk andv\u00f6kur.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00de\u00e1 bau\u00f0 konungurinn a\u00f0 kalla til s\u00edn kunn\u00e1ttumenn, stj\u00f6rnuvitringa, galdramenn og Kaldeaspekinga, a\u00f0 \u00feeir skyldu segja konunginum, hva\u00f0 hann hef\u00f0i dreymt. \u00deeir komu, og gengu fyrir konunginn.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Konungur sag\u00f0i til \u00feeirra: draum dreymdi mig, og er eg mj\u00f6g \u00e1hyggjufullur a\u00f0 vita hva\u00f0a draumur \u00fea\u00f0 er.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Kaldear s\u00f6g\u00f0u til konungsins \u00e1 s\u00fdrlensku: nj\u00f3ti konungurinn langra l\u00edfdaga! Seg oss drauminn, \u00fej\u00f3num \u00fe\u00ednum, og munum v\u00e9r \u00fe\u00e1 segja \u00fe\u00e9r \u00fe\u00fd\u00f0inguna.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Konungurinn t\u00f3k til or\u00f0a og sag\u00f0i til Kaldea: minn \u00e1setningur stendur st\u00f6\u00f0ugur, a\u00f0 ef \u00fe\u00e9r ekki segi\u00f0 m\u00e9r drauminn og \u00fe\u00fd\u00f0ing hans, skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r ver\u00f0a h\u00f6ggnir \u00ed stykki og y\u00f0ar h\u00fas gj\u00f6r\u00f0 a\u00f0 moldarhr\u00fagum;<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>en ef \u00fe\u00e9r segi\u00f0 m\u00e9r drauminn og \u00fe\u00fd\u00f0ing hans, skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r af m\u00e9r \u00feiggja skenkingar, gjafir og miklar gersemar; segi\u00f0 m\u00e9r \u00feess vegna drauminn og hans \u00fatsk\u00fdring!<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u aftur og s\u00f6g\u00f0u: segi konungurinn oss drauminn, \u00fej\u00f3num s\u00ednum, og \u00fe\u00e1 munum v\u00e9r segja \u00fe\u00fd\u00f0inguna.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Konungur t\u00f3k til or\u00f0a og sag\u00f0i: eg veit me\u00f0 vissu, a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00e6tli\u00f0 a\u00f0 leita y\u00f0ur fresta, \u00fear e\u00f0 \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0, a\u00f0 m\u00edn fyrir\u00e6tlan stendur st\u00f6\u00f0ug;<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>\u00fev\u00ed ef \u00fe\u00e9r segi\u00f0 m\u00e9r ekki drauminn, \u00fe\u00e1 gengur y\u00f0ur \u00fea\u00f0 eitt til, a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 komi\u00f0 y\u00f0ur saman um a\u00f0 fara me\u00f0 fals og lygar fyrir m\u00e9r, og vilji\u00f0 svo b\u00ed\u00f0a \u00feess, a\u00f0 t\u00edminn breyti s\u00e9r. Segi\u00f0 m\u00e9r \u00fev\u00ed drauminn, og \u00fe\u00e1 mun eg tr\u00faa, a\u00f0 \u00fe\u00e9r megi\u00f0 og segja m\u00e9r \u00fe\u00fd\u00f0ing hans.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Kaldear sv\u00f6ru\u00f0u konunginum og s\u00f6g\u00f0u: enginn er s\u00e1 ma\u00f0ur \u00ed heimi, a\u00f0 segja kunni \u00fea\u00f0 er konungurinn m\u00e6list til; enginn er s\u00e1 heldur konungur, hv\u00f6rsu mikill og voldugur sem veri\u00f0 hefir, a\u00f0 til sl\u00edks hafi m\u00e6lst af nokkurum kunn\u00e1ttumanni, stj\u00f6rnuvitringi e\u00f0a Kaldea spekingi;<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00fev\u00ed \u00fea\u00f0, sem konungurinn m\u00e6list til, er helst til torvelt, og enginn kann a\u00f0 kunngj\u00f6ra \u00fea\u00f0 konunginum, nema gu\u00f0irnir einir, hv\u00f6rra b\u00fasta\u00f0ir ekki eru hj\u00e1 m\u00f6nnum.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Af \u00feessu var\u00f0 konungurinn st\u00f3rlega rei\u00f0ur, og sag\u00f0i a\u00f0 taka skyldi af l\u00edfi alla v\u00edsindamenn \u00ed Babel;<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>gekk s\u00fa skipun \u00fat, a\u00f0 l\u00edfl\u00e1ta skyldi v\u00edsindamennina, og var leita\u00f0 a\u00f0 \u00feeim Dan\u00edel og f\u00e9l\u00f6gum hans, til a\u00f0 drepa \u00fe\u00e1.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00de\u00e1 leita\u00f0i Dan\u00edel eftir me\u00f0 viturleik og skynsemi vi\u00f0 Ar\u00edok, h\u00f6fu\u00f0var\u00f0arforingja konungsins, sem \u00fat var genginn til a\u00f0 afl\u00edfa v\u00edsindamennina \u00ed Babel;<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>hann t\u00f3k til m\u00e1ls og spur\u00f0i Ar\u00edok, valdsmann konungsins, hv\u00ed svo har\u00f0ur \u00farskur\u00f0ur v\u00e6ri \u00fat gefinn af konunginum; en Ar\u00edok sag\u00f0i Dan\u00edeli allan m\u00e1lav\u00f6xt.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gekk Dan\u00edel inn til konungs, og ba\u00f0 hann gefa s\u00e9r frest, a\u00f0 hann m\u00e6tti segja konunginum \u00fe\u00fd\u00f0inguna.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Eftir \u00fea\u00f0 gekk Dan\u00edel heim, og sag\u00f0i f\u00e9l\u00f6gum s\u00ednum fr\u00e1 \u00feessu, \u00feeim Hanan\u00edu, M\u00edsaeli og Asar\u00edu,<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>a\u00f0 \u00feeir b\u00e6\u00f0i Gu\u00f0 himnanna um \u00fe\u00e1 miskunn, a\u00f0 hann vildi birta \u00feeim \u00feenna leyndard\u00f3m, svo Dan\u00edel og hans f\u00e9lagar yr\u00f0i ei af l\u00edfi teknir me\u00f0 hinum \u00f6\u00f0rum v\u00edsindam\u00f6nnum \u00ed Babel.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>En um n\u00f3ttina var\u00f0 \u00feessi leyndard\u00f3mur opinbera\u00f0ur Dan\u00edeli \u00ed einni vitran, og \u00fe\u00e1 lofa\u00f0i Dan\u00edel himnanna Gu\u00f0.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Dan\u00edel t\u00f3k til m\u00e1ls og sag\u00f0i: vegsama\u00f0 veri nafni\u00f0 Gu\u00f0s fr\u00e1 eil\u00edf\u00f0 til eil\u00edf\u00f0ar! \u00fev\u00ed hans er v\u00edsd\u00f3murinn og m\u00e1tturinn;<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>hann umbreytir t\u00edmum og t\u00e6kif\u00e6rum, hann afsetur og innsetur konunga, hann gefur spekingunum speki og \u00feeim skynugu skilning,<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>hann opinberar \u00f3rannsakanlega og hulda hluti, hann veit hva\u00f0 \u00ed myrkrinu leynist, og lj\u00f3si\u00f0 b\u00fdr allavega \u00ed kring um hann.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Eg \u00feakka \u00fe\u00e9r og lofa \u00feig, Gu\u00f0 fe\u00f0ra minna, fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa hefir l\u00e9nt m\u00e9r v\u00edsd\u00f3m og styrk; \u00fe\u00fa hefir n\u00fa opinbera\u00f0 m\u00e9r \u00fea\u00f0, sem v\u00e9r b\u00e1\u00f0um \u00feig um: \u00fea\u00f0 sem konungurinn vildi vita, hefir \u00fe\u00fa gj\u00f6rt oss opinbert.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Dan\u00edel gekk n\u00fa inn til Ar\u00edoks, hv\u00f6rjum konungur haf\u00f0i um bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 afl\u00edfa vitringana \u00ed Babel; hann kom og sag\u00f0i svo til hans: l\u00e1t ei afl\u00edfa vitringana \u00ed Babel, lei\u00f0 mig inn fyrir konunginn, eg vil segja konunginum \u00fe\u00fd\u00f0inguna.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an f\u00f3r Ar\u00edok me\u00f0 Dan\u00edel \u00ed skyndi inn fyrir konunginn, og m\u00e6lti svo til hans: eg hefi fundi\u00f0 einn mann \u00e1 me\u00f0al enna herleiddu fr\u00e1 J\u00fadalandi, sem getur sagt konunginum \u00fe\u00fd\u00f0inguna.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Konungurinn t\u00f3k til m\u00e1ls, og sag\u00f0i til Dan\u00edels, sem kalla\u00f0ur var Beltsasar: treystir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e9r til a\u00f0 segja m\u00e9r \u00feann draum, sem mig dreymdi, og \u00fe\u00fd\u00f0ingu hans?<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Dan\u00edel svara\u00f0i konunginum og sag\u00f0i: \u00feann leyndard\u00f3m, sem konunginn forvitnar a\u00f0 vita, kunna \u00f6ngvir v\u00edsindamenn, stj\u00f6rnuvitringar, kunn\u00e1ttumenn e\u00f0a sp\u00e1sagnarmenn a\u00f0 segja konunginum;<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>en \u00ed himninum er s\u00e1 Gu\u00f0, sem opinberar leynda hluti, hann hefir kunngj\u00f6rt konunginum Neb\u00fakadnesar, hva\u00f0 ver\u00f0a muni \u00e1 \u00feeim s\u00ed\u00f0ustu t\u00edmum. S\u00e1 draumur og \u00fe\u00e6r vitranir, sem fyrir \u00feig b\u00e1ru \u00ed s\u00e6ng \u00feinni, eru \u00feessar:<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00e1 s\u00e6ng \u00feinni uppst\u00e9 hj\u00e1 \u00fe\u00e9r, konungur, s\u00fa hugsan, hva\u00f0 h\u00e9r eftir ver\u00f0a mundi; og hann, sem leynda hluti opinberar, hefir kunngj\u00f6rt \u00fe\u00e9r, hva\u00f0 ver\u00f0a muni.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>En hva\u00f0 mig \u00e1hr\u00e6rir, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 ekki fyrir nokkurar visku sakir, sem eg hafi til a\u00f0 bera um fram alla menn a\u00f0ra, \u00fe\u00e1 er n\u00fa eru uppi, a\u00f0 \u00feessi leyndard\u00f3mur er m\u00e9r opinber or\u00f0inn, heldur til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ingin yr\u00f0i konunginum kunngj\u00f6r\u00f0, og \u00fe\u00fa fengir a\u00f0 vita \u00fe\u00ednar hjartans hugsanir.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>\u00de\u00fa s\u00e1st, konungur, og sj\u00e1! frammi fyrir \u00fe\u00e9r st\u00f3\u00f0 miki\u00f0 l\u00edkneski; \u00feessi l\u00edkneskja var h\u00e1, yfirtaks lj\u00f3mandi, og \u00f3gurleg \u00e1lits.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>H\u00f6fu\u00f0 l\u00edkneskjunnar var af sk\u00edru gulli, brj\u00f3stin og armleggirnir af silfri, kvi\u00f0urinn og lendarnar af eiri,<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>leggirnir af j\u00e1rni, en \u00fear sem f\u00e6turnir voru, var sumt af j\u00e1rni, sumt af leir.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>\u00de\u00fa horf\u00f0ir \u00e1 hana, \u00fear til steinn nokkur losna\u00f0i, \u00e1n \u00feess nokkur vi\u00f0 hann k\u00e6mi, hann lenti \u00e1 f\u00f3tum l\u00edkneskjunnar, sem voru af j\u00e1rni og leir, og braut \u00fe\u00e1 \u00ed sundur;<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sundurmuldist hva\u00f0 me\u00f0 \u00f6\u00f0ru, j\u00e1rni\u00f0, leirinn, silfri\u00f0 og gulli\u00f0, og var\u00f0 eins og s\u00e1\u00f0ir \u00e1 sumarl\u00e1fa, vindurinn feykti \u00fev\u00ed \u00e1 burt, svo \u00feess s\u00e1 engan sta\u00f0; en steinn s\u00e1, er laust l\u00edkneskjuna, var\u00f0 a\u00f0 st\u00f3ru fjalli, og t\u00f3k yfir alla j\u00f6r\u00f0ina.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>\u00deetta er draumurinn; n\u00fa viljum v\u00e9r segja konunginum \u00fe\u00fd\u00f0ingu hans:<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>\u00fe\u00fa, konungur, ert yfirkonungur annarra konunga, \u00fev\u00ed himnanna konungur hefir gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r r\u00edki\u00f0, m\u00e1ttinn, veldi\u00f0 og tignina;<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>og hvervetna \u00fear er menn b\u00faa, og d\u00fdr sk\u00f3gar og fuglar himins eru, \u00fear hefir hann selt allt \u00ed hendur \u00fe\u00e9r, og veitt \u00fe\u00e9r vald yfir \u00fev\u00ed \u00f6llu: \u00fe\u00fa ert gullh\u00f6fu\u00f0i\u00f0.<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>Eftir \u00feig mun hefjast anna\u00f0 konungsr\u00edki, minnah\u00e1ttar en \u00feitt er, og \u00fearn\u00e6st hi\u00f0 \u00feri\u00f0ja r\u00edki af eiri, sem drottna mun yfir allri ver\u00f6ldu;<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>fj\u00f3r\u00f0a r\u00edki\u00f0 mun hart ver\u00f0a sem j\u00e1rn; \u00fev\u00ed eins og j\u00e1rni\u00f0 sundurbr\u00fdtur og m\u00f6lvar allt, og molar alla \u00feessa m\u00e1lma, eins mun \u00feetta r\u00edki m\u00f6lva og sundurbrj\u00f3ta hin r\u00edkin.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>En \u00fear er \u00fe\u00fa s\u00e1st f\u00e6turnar og t\u00e6rnar, a\u00f0 sumt var af leirkeram\u00f3, sumt af j\u00e1rni, \u00fear mun r\u00edkinu ver\u00f0a skipt; \u00fe\u00f3 mun \u00fea\u00f0 nokkuru \u00ed s\u00e9r halda af h\u00f6rku j\u00e1rnsins, \u00fear sem \u00fe\u00fa s\u00e1st j\u00e1rni\u00f0 blanda\u00f0 saman vi\u00f0 deigulm\u00f3inn.<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>En \u00fear er t\u00e6rnar voru sums kostar af j\u00e1rni og sums kostar af leir, \u00fe\u00e1 mun \u00fea\u00f0 r\u00edki a\u00f0 nokkuru leyti ver\u00f0a \u00f6flugt, og a\u00f0 nokkuru leyti veikt;<a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>og \u00fear er \u00fe\u00fa s\u00e1st j\u00e1rni\u00f0 blanda\u00f0 saman vi\u00f0 deigulm\u00f3inn, \u00fe\u00e1 munu \u00feeir me\u00f0 kvonf\u00f6ngum samanblandast, og \u00fe\u00f3 ekki sam\u00fe\u00fd\u00f0ast hv\u00f6rrir \u00f6\u00f0rum, eins og j\u00e1rni\u00f0 samlagar sig ekki vi\u00f0 leirinn.<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>En \u00e1 d\u00f6gum \u00feessara konunga, mun Gu\u00f0 himnanna hefja eitt r\u00edki, sem aldrei skal til grunna ganga, og \u00fea\u00f0 r\u00edki skal \u00f6ngvu \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki \u00ed hendur fengi\u00f0 ver\u00f0a, \u00fea\u00f0 mun knosa og a\u00f0 engu gj\u00f6ra \u00f6ll \u00feessi r\u00edki, en sj\u00e1lft skal \u00fea\u00f0 standa a\u00f0 eil\u00edfu,<a name=\"45\"><span class=\"versanumer\">45<\/span><\/a>fyrst a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e1st, a\u00f0 steinn nokkur losna\u00f0i vi\u00f0 fjalli\u00f0, \u00e1n handa tilverkna\u00f0ar, og m\u00f6lva\u00f0i j\u00e1rni\u00f0, eiri\u00f0, leirinn, silfri\u00f0 og gulli\u00f0. S\u00e1 hinn mikli Gu\u00f0 hefir kunngj\u00f6rt konunginum, hva\u00f0 h\u00e9r eftir muni ver\u00f0a. Draumurinn er sannur, og \u00fe\u00fd\u00f0ing hans \u00e1rei\u00f0anleg.<a name=\"46\"><span class=\"versanumer\">46<\/span><\/a>\u00de\u00e1 f\u00e9ll Neb\u00fakadnesar konungur fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu s\u00edna, og laut Dan\u00edeli, og bau\u00f0 a\u00f0 f\u00f3rna honum matarf\u00f3rn og reykelsi.<a name=\"47\"><span class=\"versanumer\">47<\/span><\/a>Konungurinn svara\u00f0i Dan\u00edeli og sag\u00f0i: \u00ed sannleika er y\u00f0ar Gu\u00f0 yfirgu\u00f0 gu\u00f0anna, yfirkonungur konunganna og opinberari leyndra hluta, me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa m\u00e1ttir \u00feenna leyndard\u00f3m augl\u00fdsa.<a name=\"48\"><span class=\"versanumer\">48<\/span><\/a>Eftir \u00fea\u00f0 gj\u00f6r\u00f0i konungurinn Dan\u00edel a\u00f0 miklum manni, og gaf honum st\u00f3rmiklar og margar gjafir, setti hann h\u00f6f\u00f0ingja yfir allt Babels h\u00e9ra\u00f0, og gj\u00f6r\u00f0i hann a\u00f0 \u00e6\u00f0sta forstj\u00f3ra yfir \u00f6llum v\u00edsindam\u00f6nnum \u00ed Babel;<a name=\"49\"><span class=\"versanumer\">49<\/span><\/a>en Dan\u00edel m\u00e6ltist til af konunginum, a\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i \u00fe\u00e1 Sadrak, Mesak og Abedneg\u00f3 a\u00f0 s\u00fdslum\u00f6nnum yfir Babels h\u00e9ra\u00f0i, en sj\u00e1lfur var Dan\u00edel vi\u00f0 hir\u00f0 konungsins.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\"><\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Dan\u00edel \u00fat\u00fe\u00fd\u00f0ir draum Neb\u00fakadnesars um l\u00edkneskjuna. 1\u00c1 \u00f6\u00f0ru \u00e1ri r\u00edkis Neb\u00fakadnesars dreymdi Neb\u00fakadnesar draum, og var\u00f0 hann svo angurv\u00e6r af draumnum, a\u00f0 hann f\u00e9kk andv\u00f6kur.2\u00de\u00e1 bau\u00f0 konungurinn a\u00f0 kalla til s\u00edn kunn\u00e1ttumenn, stj\u00f6rnuvitringa, galdramenn og Kaldeaspekinga, a\u00f0 \u00feeir skyldu segja konunginum, hva\u00f0 hann hef\u00f0i dreymt. \u00deeir komu, og gengu fyrir konunginn.3Konungur sag\u00f0i til \u00feeirra: draum dreymdi mig, og er eg mj\u00f6g \u00e1hyggjufullur a\u00f0 vita hva\u00f0a draumur \u00fea\u00f0 er.4Kaldear s\u00f6g\u00f0u til konungsins \u00e1 s\u00fdrlensku: nj\u00f3ti konungurinn langra l\u00edfdaga! Seg oss drauminn, \u00fej\u00f3num \u00fe\u00ednum, og munum v\u00e9r \u00fe\u00e1 segja \u00fe\u00e9r \u00fe\u00fd\u00f0inguna.5Konungurinn t\u00f3k til or\u00f0a og sag\u00f0i til Kaldea: minn \u00e1setningur stendur st\u00f6\u00f0ugur, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/daniel-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21701","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21701","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21701"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21701\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21701"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}