{"id":21684,"date":"2018-01-02T01:03:22","date_gmt":"2018-01-02T01:03:22","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/esekiel-33-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:03:22","modified_gmt":"2018-01-02T01:03:22","slug":"esekiel-33-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/esekiel-33-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 33. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">Esek\u00edel talar um s\u00edna skyldu, sem sp\u00e1manns, 1\u20139; um r\u00e9ttl\u00e6ti og miskunn Gu\u00f0s, 10\u201320. Fregn um innt\u00f6ku Jer\u00fasalemsborgar; Esek\u00edel sp\u00e1ir fyrir \u00feeim, sem eftir voru af J\u00fadam\u00f6nnum, 21\u201329; talar um \u00feau h\u00e1\u00f0syr\u00f0i, sem sumir gj\u00f6r\u00f0u a\u00f0 \u00e1minningum sp\u00e1mannanna, 30\u201333.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Drottinn tala\u00f0i til m\u00edn svol\u00e1tandi or\u00f0um:<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00fe\u00fa mannsins son! tala \u00fe\u00fa til landsmanna \u00feinna, og seg \u00feeim: \u00feegar eg l\u00e6t sver\u00f0i\u00f0 koma yfir eitthv\u00f6rt land, og landsf\u00f3lki\u00f0 \u00fatvelur einhv\u00f6rn mann \u00e1 me\u00f0al s\u00edn, og gj\u00f6rir hann a\u00f0 var\u00f0haldsmanni;<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>n\u00fa s\u00e9r hann sver\u00f0i\u00f0 falla yfir landi\u00f0, og bl\u00e6s \u00ed l\u00fa\u00f0urinn, og gj\u00f6rir f\u00f3lki\u00f0 vart vi\u00f0:<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>s\u00e9 \u00fear nokkur s\u00e1, sem heyrir l\u00fa\u00f0ur\u00feytinn, en vill \u00fe\u00f3 ekki vara sig, og kemur svo sver\u00f0i\u00f0 og sviptir honum \u00ed burtu, \u00fe\u00e1 er hann sj\u00e1lfur skuld \u00ed dau\u00f0a s\u00ednum.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Af \u00fev\u00ed hann heyr\u00f0i l\u00fa\u00f0ur\u00feytinn, en vildi \u00fe\u00f3 ekki vara sig, \u00feess vegna er hann sj\u00e1lfur skuld \u00ed dau\u00f0a s\u00ednum; \u00fev\u00ed ef hann hef\u00f0i vara\u00f0 sig, \u00fe\u00e1 hef\u00f0i hann fengi\u00f0 l\u00edfi s\u00ednu borgi\u00f0.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>En sj\u00e1i var\u00f0ma\u00f0ur sver\u00f0i\u00f0 koma, og bl\u00e6s \u00fe\u00f3 ekki \u00ed l\u00fa\u00f0urinn, svo f\u00f3lki\u00f0 f\u00e6r \u00f6ngva v\u00edsbendingu, og kemur svo sver\u00f0i\u00f0 og sviptir nokkurum \u00ed burt, \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur a\u00f0 v\u00edsu \u00feeim hinum sama burtu svipt fyrir sj\u00e1lfs hans skuld, en hans bl\u00f3\u00f0s vil eg krefja af hendi var\u00f0mannsins.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00deig, mannsins son, hefi eg sett sem var\u00f0mann \u00cdsraelsf\u00f3lks, til \u00feess \u00fe\u00fa heyrir or\u00f0i\u00f0 af m\u00ednum munni, og varir \u00fe\u00e1 vi\u00f0 fyrir m\u00edna h\u00f6nd.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00deegar eg segi til hins \u00f3gu\u00f0lega: \u00fe\u00fa hinn \u00f3gu\u00f0legi skalt deyja: og \u00fe\u00fa talar ekki, til \u00feess a\u00f0 vara hinn \u00f3gu\u00f0lega vi\u00f0 sinni breytni, \u00fe\u00e1 skal a\u00f0 v\u00edsu hinn \u00f3gu\u00f0legi deyja fyrir sinna illgj\u00f6r\u00f0a sakir, en bl\u00f3\u00f0 hans vil eg heimta af \u00feinni hendi.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>En hafir \u00fe\u00fa vara\u00f0 hinn \u00f3gu\u00f0lega vi\u00f0, a\u00f0 hann sn\u00fai fr\u00e1 sinni breytni, og hann samt ekki l\u00e6tur af s\u00ednu ath\u00e6fi, \u00fe\u00e1 skal hinn \u00f3gu\u00f0legi deyja fyrir sinna synda sakir, en \u00fe\u00fa ert \u00fe\u00e1 s\u00fdkn saka. <br \/><a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>\u00de\u00fa mannsins son! seg \u00cdsraelsm\u00f6nnum: \u00fe\u00e9r eru\u00f0 vanir a\u00f0 kve\u00f0a svo a\u00f0 or\u00f0i: vorar misgj\u00f6r\u00f0ir og syndir liggja \u00e1 oss, svo v\u00e9r vanmegnumst undir \u00feeim, hv\u00f6rsu megum v\u00e9r \u00fe\u00e1 lifa?<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Seg \u00feeim: svo sannarlega sem eg lifi, segir Drottinn alvaldur, hefi eg \u00f6ngva \u00fe\u00f3knun \u00e1 dau\u00f0a hins \u00f3gu\u00f0lega, heldur a\u00f0 hinn \u00f3gu\u00f0legi sn\u00fai s\u00e9r fr\u00e1 sinni breytni, og lifi. Sn\u00fai\u00f0 y\u00f0ur fr\u00e1 y\u00f0ar vondri breytni! Hv\u00ed vilji\u00f0 \u00fe\u00e9r deyja, \u00cdsraelsmenn!<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00de\u00fa mannsins son, seg landsm\u00f6nnum \u00fe\u00ednum: \u00feegar r\u00e1\u00f0vandur ma\u00f0ur fer og breytir ranglega, \u00fe\u00e1 skal hann ekki nj\u00f3ta \u00feess, a\u00f0 hann hefir r\u00e1\u00f0vandur veri\u00f0; og \u00feegar s\u00e1 \u00f3gu\u00f0legi sn\u00fdr fr\u00e1 sinni \u00f3gu\u00f0legu breytni, \u00fe\u00e1 skal hann ekki gjalda \u00feess, a\u00f0 hann hefir \u00f3gu\u00f0legur veri\u00f0; en s\u00e1 r\u00e1\u00f0vandi skal ekki heldur nj\u00f3ta r\u00e1\u00f0vendni sinnar, \u00feegar hann syndgar.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00deegar eg segi um \u00feann r\u00e1\u00f0vanda, \u201ehann skal lifa\u201c, og hann \u00ed trausti til sinnar r\u00e1\u00f0vendni fer og breytir ranglega, \u00fe\u00e1 skal \u00f6ll hans r\u00e1\u00f0vendni ekki a\u00f0 \u00e1litum gj\u00f6rast, heldur skal hann deyja fyrir \u00feau rangindi, sem hann gj\u00f6r\u00f0i;<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>og \u00feegar eg segi til \u00feess \u00f3gu\u00f0lega, \u201e\u00fe\u00fa skalt deyja\u201c, og hann l\u00e6tur af synd sinni og breytir r\u00e9tt og r\u00e1\u00f0vandlega,<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>svo a\u00f0 hann, sem \u00e1\u00f0ur var \u00f3gu\u00f0legur, skilar aftur ve\u00f0i, b\u00e6tir r\u00e1n, og breytir eftir l\u00edfsins bo\u00f0or\u00f0um, svo a\u00f0 hann a\u00f0hefst ekkert \u00fea\u00f0 sem rangt er: \u00fe\u00e1 skal hann lifa og ekki deyja;<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>engin af hans syndum, sem hann dr\u00fdgt hefir, skal a\u00f0 \u00e1litum gj\u00f6rast: hann breytir r\u00e9tt og r\u00e1\u00f0vandlega, og fyrir \u00fev\u00ed skal hann lifa.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Og \u00fe\u00f3 segja landsmenn \u00fe\u00ednir: vegur hins Alvalda er ekki r\u00e9ttur! \u00fear sem \u00fe\u00f3 vegur sj\u00e1lfra \u00feeirra er ekki r\u00e9ttur.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Sn\u00fai s\u00e1 r\u00e1\u00f0vandi s\u00e9r fr\u00e1 sinni r\u00e1\u00f0vendni og breyti ranglega, \u00fe\u00e1 skal hann deyja \u00fear fyrir;<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>og sn\u00fai hinn \u00f3gu\u00f0legi s\u00e9r fr\u00e1 s\u00ednu \u00f3gu\u00f0lega ath\u00e6fi, og breyti r\u00e9tt og r\u00e1\u00f0vandlega, \u00fe\u00e1 skal hann lifa fyrir \u00fea\u00f0 sama.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og \u00fe\u00f3 segi\u00f0 \u00fe\u00e9r: vegur hins Alvalda er ekki r\u00e9ttur! S\u00e9rhv\u00f6rn y\u00f0ar \u00cdsraelsmanna vil eg d\u00e6ma eftir sinni breytni.<br \/><a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00c1 t\u00f3lfta \u00e1rinu, \u00feann fimmta dag \u00feess t\u00edunda m\u00e1na\u00f0ar, eftir \u00fea\u00f0 a\u00f0 v\u00e9r vorum herleiddir, kom fl\u00f3ttama\u00f0ur nokkur til m\u00edn fr\u00e1 Jer\u00fasalem me\u00f0 \u00feau t\u00ed\u00f0indi, a\u00f0 borgin v\u00e6ri inntekin.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>H\u00f6nd Drottins var yfir m\u00e9r um kv\u00f6ldi\u00f0, \u00e1\u00f0ur en fl\u00f3ttama\u00f0urinn kom; en Drottinn upplauk m\u00ednum munni, \u00feegar ma\u00f0urinn kom til m\u00edn um morguninn; \u00fe\u00e1 var minn munnur upplokinn, og eg var ekki lengur or\u00f0laus.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>\u00de\u00e1 tala\u00f0i Drottinn til m\u00edn \u00feessum or\u00f0um:<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>\u00fe\u00fa mannsins son! \u00feeir, sem b\u00faa \u00ed \u00feeim ey\u00f0il\u00f6g\u00f0u st\u00f6\u00f0um \u00cdsraelslands, segja: Abraham var ekki nema einn, og \u00fe\u00f3 f\u00e9kk hann \u00feetta land til eignar; v\u00e9r erum margir, landi\u00f0 er gefi\u00f0 oss til eignar.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>\u00dear fyrir seg \u00feeim: Svo segir Drottinn alvaldur: \u00fe\u00e9r eti\u00f0 kj\u00f6ti\u00f0 me\u00f0 bl\u00f3\u00f0inu, \u00fe\u00e9r upphefji\u00f0 y\u00f0ar augu til skur\u00f0go\u00f0a og \u00fathelli\u00f0 bl\u00f3\u00f0i; eigi\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 a\u00f0 f\u00e1 landi\u00f0 til eignar?<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>\u00fe\u00e9r rei\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur \u00e1 y\u00f0ar sver\u00f0, fremji\u00f0 sv\u00edvir\u00f0ingar, sm\u00e1ni\u00f0 hv\u00f6r annars eiginkonur; eigi\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 a\u00f0 f\u00e1 landi\u00f0 til eignar?<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>\u00fe\u00fa skalt segja svo til \u00feeirra: Svo segir Drottinn alvaldur: svo sannarlega sem eg lifi! \u00feeir, sem b\u00faa \u00ed \u00feeim ni\u00f0urbrotnu r\u00fastum, skulu fyrir sver\u00f0i falla; \u00fe\u00e1, sem \u00fati b\u00faa \u00e1 landsbygg\u00f0inni, skal eg l\u00e1ta ver\u00f0a d\u00fdrum a\u00f0 br\u00e1\u00f0; og \u00feeir, sem b\u00faa \u00ed virkjum og hellrum, skulu deyja af dreps\u00f3tt;<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>eg skal gj\u00f6ra landi\u00f0 a\u00f0 au\u00f0n og \u00f6r\u00e6fum, svo \u00fea\u00f0 skal ei lengur treysta mega \u00e1 veldi sitt; \u00cdsraelsfj\u00f6ll skulu svo \u00ed ey\u00f0i liggja, a\u00f0 \u00fear skal enginn um fara.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00deeir skulu \u00fe\u00e1 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 eg em Drottinn, \u00feegar eg gj\u00f6ri landi\u00f0 a\u00f0 au\u00f0n og \u00f6r\u00e6fum, s\u00f6kum allra \u00feeirra sv\u00edvir\u00f0ingu, sem \u00feeir hafa frami\u00f0.<br \/><a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>\u00de\u00fa mannsins son! landsmenn \u00fe\u00ednir tala um \u00feig hj\u00e1 veggjunum og h\u00fasadyrunum, og segja hv\u00f6r vi\u00f0 annan, n\u00e1b\u00fai vi\u00f0 n\u00e1b\u00faa: komi\u00f0, l\u00e1tum oss heyra, hva\u00f0 Drottinn segir!<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>\u00deeir koma til \u00fe\u00edn fj\u00f6lmennir, sitja frammi fyrir \u00fe\u00e9r, eins og v\u00e6ri \u00feeir mitt f\u00f3lk, og hl\u00fd\u00f0a \u00e1 or\u00f0 \u00fe\u00edn, en vilja ei eftir \u00feeim breyta; \u00ed or\u00f0i l\u00e1ta \u00feeir, sem \u00fea\u00f0 s\u00e9 sitt yndi a\u00f0 breyta eftir \u00feeim, en hjarta \u00feeirra s\u00e6kist eftir rangfengnu f\u00e9.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Sj\u00e1! \u00fe\u00fa ert \u00feeim eins og vel sungi\u00f0 og fallega leiki\u00f0 gamankv\u00e6\u00f0i; \u00feeir hlusta \u00e1 or\u00f0 \u00fe\u00edn, en breyta ekki eftir \u00feeim. En \u00feegar \u00fea\u00f0 kemur fram\u2014og fram skal \u00fea\u00f0 koma\u2014\u00fe\u00e1 skulu \u00feeir vi\u00f0urkenna, a\u00f0 sp\u00e1ma\u00f0ur hefir veri\u00f0 me\u00f0al \u00feeirra.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\"><\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Esek\u00edel talar um s\u00edna skyldu, sem sp\u00e1manns, 1\u20139; um r\u00e9ttl\u00e6ti og miskunn Gu\u00f0s, 10\u201320. Fregn um innt\u00f6ku Jer\u00fasalemsborgar; Esek\u00edel sp\u00e1ir fyrir \u00feeim, sem eftir voru af J\u00fadam\u00f6nnum, 21\u201329; talar um \u00feau h\u00e1\u00f0syr\u00f0i, sem sumir gj\u00f6r\u00f0u a\u00f0 \u00e1minningum sp\u00e1mannanna, 30\u201333. 1Drottinn tala\u00f0i til m\u00edn svol\u00e1tandi or\u00f0um:2\u00fe\u00fa mannsins son! tala \u00fe\u00fa til landsmanna \u00feinna, og seg \u00feeim: \u00feegar eg l\u00e6t sver\u00f0i\u00f0 koma yfir eitthv\u00f6rt land, og landsf\u00f3lki\u00f0 \u00fatvelur einhv\u00f6rn mann \u00e1 me\u00f0al s\u00edn, og gj\u00f6rir hann a\u00f0 var\u00f0haldsmanni;3n\u00fa s\u00e9r hann sver\u00f0i\u00f0 falla yfir landi\u00f0, og bl\u00e6s \u00ed l\u00fa\u00f0urinn, og gj\u00f6rir f\u00f3lki\u00f0 vart vi\u00f0:4s\u00e9 \u00fear nokkur s\u00e1, sem heyrir l\u00fa\u00f0ur\u00feytinn, en vill \u00fe\u00f3 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/esekiel-33-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21684","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21684","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21684"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21684\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21684"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}