{"id":21683,"date":"2018-01-02T01:03:22","date_gmt":"2018-01-02T01:03:22","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/esekiel-32-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:03:22","modified_gmt":"2018-01-02T01:03:22","slug":"esekiel-32-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/esekiel-32-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 32. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">Harmas\u00f6ngur yfir \u00f3f\u00f6rum Egyptalandskonungs, 1\u201316; l\u00edks\u00f6ngur yfir fara\u00f3, 17\u201332.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00c1 t\u00f3lfta \u00e1rinu, \u00feann fyrsta dag hins t\u00f3lfta m\u00e1na\u00f0ar, tala\u00f0i Drottinn til m\u00edn svol\u00e1tandi or\u00f0um:<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00fe\u00fa mannsins son, kyrja \u00fe\u00fa upp harmas\u00f6ng yfir fara\u00f3, Egyptalandskonungi, og seg til hans: \u00fe\u00fa varst eins og lj\u00f3nsk\u00e1lfur me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna; \u00fe\u00fa varst eins og kr\u00f3k\u00f3dill \u00ed h\u00f6funum, \u00fe\u00fa braust \u00e1fram \u00ed \u00fe\u00ednum vatnsstraumum, grugga\u00f0ir upp vatni\u00f0 me\u00f0 f\u00f3tum \u00fe\u00ednum, og sparka\u00f0ir ni\u00f0ur vatnsbakkana.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Svo segir Drottinn alvaldur: eg vil leggja fyrir \u00feig net mitt, og hafa vi\u00f0 manns\u00f6fnu\u00f0 af m\u00f6rgum \u00fej\u00f3\u00f0um, sem skulu draga \u00feig upp \u00ed m\u00ednu neti;<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>eg vil varpa \u00fe\u00e9r upp \u00e1 land, og l\u00e1ta \u00feig liggja \u00fear \u00e1 bersv\u00e6\u00f0i; s\u00ed\u00f0an vil eg l\u00e1ta alla fugla himinsins setjast \u00e1 \u00feig, og \u00f6ll villid\u00fdr jar\u00f0arinnar se\u00f0ja sig af \u00fe\u00e9r;<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>eg vil dreifa \u00fe\u00ednu hr\u00e6i \u00fat um fj\u00f6llin, og fylla dalina me\u00f0 \u00feinni rotnun;<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>eg vil v\u00f6kva landi\u00f0, sem \u00fe\u00fa sveimar \u00ed, me\u00f0 \u00fe\u00ednu bl\u00f3\u00f0i, allt upp til fjalla, og \u00e1rfarvegirnir skulu ver\u00f0a fullir af \u00fe\u00e9r.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00deegar \u00fe\u00fa \u00fatslokknar, vil eg byrgja himininn, og myrkva hans stj\u00f6rnur; eg vil hylja s\u00f3lina \u00ed sk\u00fdjum, og tungli\u00f0 skal ekki n\u00e1 a\u00f0 l\u00fdsa me\u00f0 s\u00ednu skini;<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00f6ll bj\u00f6rtu lj\u00f3sin \u00e1 himninum vil eg l\u00e1ta myrk ver\u00f0a uppi yfir \u00fe\u00e9r, og brei\u00f0a dimmu yfir \u00feitt land, segir Drottinn alvaldur.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Eg vil hrella hj\u00f6rtu margra \u00fej\u00f3\u00f0a, \u00feegar eg l\u00e6t fregnina um \u00fe\u00ednar \u00f3farir berast til \u00fej\u00f3\u00f0anna \u00ed \u00feeim l\u00f6ndum, sem \u00fe\u00fa \u00feektir ekki;<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>eg vil gj\u00f6ra margar \u00fej\u00f3\u00f0ir felmtsfullar \u00fat af \u00fe\u00e9r: \u00feeirra konungar skulu skelfast fyrir \u00fe\u00e9r, \u00feegar eg breg\u00f0 m\u00ednu sver\u00f0i fyrir augu \u00feeim: og \u00feann dag er \u00fe\u00fa fellur, skal hv\u00f6r \u00feeirra ver\u00f0a hr\u00e6ddur um l\u00edf sitt \u00e1 hv\u00f6rju augnabliki.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00dev\u00ed svo segir Drottinn alvaldur: sver\u00f0 Babelskonungs skal koma yfir \u00feig;<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>eg skal l\u00e1ta \u00feitt fj\u00f6lmenni falla fyrir sver\u00f0um ofureflismanna, sem allir eru hinir mestu ofstopar; \u00feeir skulu b\u00e6la ni\u00f0ur ofdramb Egyptalands, og allur \u00feess f\u00f3lksfj\u00f6ldi skal afm\u00e1\u00f0ur ver\u00f0a;<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>eg vil ey\u00f0ileggja allar \u00feess skepnur, sem eru \u00e1 beit hj\u00e1 \u00feeim m\u00f6rgu v\u00f6tnum; og enginn mannsf\u00f3tur og engin d\u00fdrsklauf skal framar grugga \u00feau;<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 vil eg l\u00e1ta \u00feeirra v\u00f6tn setjast, og \u00feeirra strauma fram flj\u00f3ta sem vi\u00f0smj\u00f6r, segir Drottinn alvaldur.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>\u00deegar eg hefi gj\u00f6rt Egyptaland a\u00f0 ey\u00f0im\u00f6rku, eytt \u00f6llu sem er \u00ed landinu, og \u00ed hel slegi\u00f0 alla landsins innb\u00faa, \u00fe\u00e1 skulu menn vi\u00f0urkenna, a\u00f0 eg em Drottinn.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00deetta er \u00fea\u00f0 harmakv\u00e6\u00f0i, sem kve\u00f0i\u00f0 skal ver\u00f0a; d\u00e6tur \u00fej\u00f3\u00f0anna skulu kve\u00f0a \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e6r skulu kve\u00f0a \u00fea\u00f0 yfir Egyptalandi og yfir \u00f6llum \u00feess mannfj\u00f6lda, segir Drottinn alvaldur.<br \/><a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00c1 t\u00f3lfta \u00e1rinu, \u00feann fimmt\u00e1nda dag hins sama m\u00e1na\u00f0ar, tala\u00f0i Drottinn til m\u00edn svol\u00e1tandi or\u00f0um:<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00fe\u00fa mannsins son, upphef sorgargr\u00e1t yfir Egyptalands mikla mannfj\u00f6lda, og l\u00e1t \u00fea\u00f0 \u00e1samt me\u00f0 d\u00e6trum hinna voldugu \u00fej\u00f3\u00f0a ni\u00f0urst\u00edga \u00ed undirheim, til \u00feeirra sem ni\u00f0urfarnir eru \u00ed gr\u00f6fina.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Hv\u00f6rju landi ertu n\u00fa \u00e1g\u00e6tara? far \u00fe\u00fa ni\u00f0ur, og leggst me\u00f0al \u00feeirra \u00f3umskornu:<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>\u00feeir ver\u00f0a a\u00f0 falla me\u00f0al hinna vopnbitnu; landi\u00f0 var ofurselt sver\u00f0inu; dragi\u00f0 \u00fea\u00f0 burt, og allan \u00feess mannfj\u00f6lda!<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00deeir \u00e1g\u00e6tustu kappar \u00ed myrkheimi, sem ni\u00f0urstignir eru, hinir \u00f3umskornu, sem liggja \u00fear vopnbitnir, skulu tala til konungsins og hans li\u00f0smanna:<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00fearna liggur Ass\u00fdr\u00edukonungur og allir hans menn, umhverfis \u00ed kringum hann eru grafir manna hans, allir eru \u00feeir \u00ed hel slegnir og fyrir sver\u00f0i fallnir;<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>honum er fenginn legsta\u00f0ur innst inn \u00ed grafhellirnum, og \u00fear umhverfis eru legsta\u00f0ir manna hans, sem allir eru \u00ed hel slegnir og fyrir sver\u00f0i fallnir, og haf\u00f0i \u00f3gn af \u00feeim sta\u00f0i\u00f0, me\u00f0an \u00feeir lif\u00f0u ofanjar\u00f0ar.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>\u00dear liggur Elamskonungur, og allir hans menn, legsta\u00f0ir \u00feeirra eru allt umhverfis, allir eru \u00feeir \u00ed hel slegnir og fyrir sver\u00f0i fallnir, og ni\u00f0urstignir til hinna \u00f3umskornu \u00ed undirheimi; me\u00f0an \u00feeir lif\u00f0u ofanjar\u00f0ar, st\u00f3\u00f0 \u00f3gn af \u00feeim, en n\u00fa hlj\u00f3ta \u00feeir a\u00f0 bera s\u00edna sv\u00edvir\u00f0ingu me\u00f0 \u00feeim sem \u00ed gr\u00f6fina eru ni\u00f0urstignir;<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>honum og \u00f6llum hans m\u00f6nnum er legsta\u00f0ur fenginn mitt \u00e1 me\u00f0al hinna vopnbitnu, og eru legsta\u00f0ir \u00feeirra allt umhverfis hann; allir eru \u00feeir \u00f3umskornir og me\u00f0 sver\u00f0i \u00ed hel slegnir; me\u00f0an \u00feeir lif\u00f0u ofanjar\u00f0ar, st\u00f3\u00f0 \u00f3gn af \u00feeim, en n\u00fa hlj\u00f3ta \u00feeir a\u00f0 bera s\u00edna sv\u00edvir\u00f0ingu \u00e1samt me\u00f0 \u00feeim, sem ni\u00f0urstignir eru \u00ed gr\u00f6fina; me\u00f0al \u00feeirra vopnbitnu er Elamskonungi r\u00fam fengi\u00f0.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>\u00dear liggja Meseks og T\u00fabals konungar, og allir \u00feeirra menn, og eru legsta\u00f0ir \u00feeirra umhverfis \u00fe\u00e1; allir eru \u00feeir \u00f3umskornir og me\u00f0 sver\u00f0i vegnir, \u00fev\u00ed \u00f3tti st\u00f3\u00f0 af \u00feeim, me\u00f0an \u00feeir lif\u00f0u ofanjar\u00f0ar.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Eiga \u00feeir ekki a\u00f0 liggja \u00ed hervopnum s\u00ednum og me\u00f0 sver\u00f0 s\u00edn undir h\u00f6f\u00f0um s\u00e9r hj\u00e1 \u00feeim f\u00f6llnu ofureflism\u00f6nnum, hj\u00e1 \u00feeim \u00f3umskornu, sem ni\u00f0ur eru stignir \u00ed myrkheim? \u00feeirra skuld hv\u00edlir yfir beinum \u00feeirra, me\u00f0 \u00fev\u00ed ofureflism\u00f6nnunum st\u00f3\u00f0 \u00f3tti af \u00feeim, me\u00f0an \u00feeir lif\u00f0u ofanjar\u00f0ar.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Einnig skalt \u00fe\u00fa kremjast me\u00f0al hinna \u00f3umskornu, og liggja hj\u00e1 \u00feeim vopnbitnu.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00dear liggja Edomsmenn og \u00feeirra konungar og allir h\u00f6f\u00f0ingjar \u00feeirra, sem voru afbur\u00f0armenn a\u00f0 hreysti, en eru \u00fe\u00f3 n\u00fa komnir me\u00f0al \u00feeirra, sem me\u00f0 sver\u00f0i eru vegnir, og liggja hj\u00e1 \u00feeim \u00f3umskornu, sem \u00ed gr\u00f6fina eru ni\u00f0ur farnir.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>\u00dear liggja allir h\u00f6f\u00f0ingjar Nor\u00f0urr\u00edkjanna og allir S\u00eddonsmenn, sem eru ni\u00f0urfallnir til hinna \u00f3umskornu, \u00fer\u00e1tt fyrir \u00feann \u00f3tta, sem st\u00f3\u00f0 af hreysti \u00feeirra; me\u00f0 kinnro\u00f0a hlj\u00f3ta \u00feeir sem \u00f3umskornir a\u00f0 liggja hj\u00e1 \u00feeim sver\u00f0bitnu, og bera s\u00edna sv\u00edvir\u00f0ing \u00e1samt me\u00f0 \u00feeim, sem ofan eru farnir \u00ed gr\u00f6fina.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>\u00deess skal fara\u00f3 sj\u00e1, og hugga sig \u00fear vi\u00f0 me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum mannfj\u00f6lda; \u00fev\u00ed fara\u00f3 og allur hans her er me\u00f0 sver\u00f0i \u00ed hel sleginn, segir Drottinn alvaldur;<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>\u00fev\u00ed eg l\u00e9t standa \u00f3gn af honum, me\u00f0an hann lif\u00f0i ofanjar\u00f0ar; \u00feess vegna liggur hann n\u00fa, fara\u00f3 og allur hans mannfj\u00f6ldi, \u00e1 me\u00f0al hinna \u00f3umskornu, hj\u00e1 \u00feeim sem me\u00f0 sver\u00f0inu eru \u00ed hel slegnir, segir Drottinn alvaldur.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\"><\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Harmas\u00f6ngur yfir \u00f3f\u00f6rum Egyptalandskonungs, 1\u201316; l\u00edks\u00f6ngur yfir fara\u00f3, 17\u201332. 1\u00c1 t\u00f3lfta \u00e1rinu, \u00feann fyrsta dag hins t\u00f3lfta m\u00e1na\u00f0ar, tala\u00f0i Drottinn til m\u00edn svol\u00e1tandi or\u00f0um:2\u00fe\u00fa mannsins son, kyrja \u00fe\u00fa upp harmas\u00f6ng yfir fara\u00f3, Egyptalandskonungi, og seg til hans: \u00fe\u00fa varst eins og lj\u00f3nsk\u00e1lfur me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna; \u00fe\u00fa varst eins og kr\u00f3k\u00f3dill \u00ed h\u00f6funum, \u00fe\u00fa braust \u00e1fram \u00ed \u00fe\u00ednum vatnsstraumum, grugga\u00f0ir upp vatni\u00f0 me\u00f0 f\u00f3tum \u00fe\u00ednum, og sparka\u00f0ir ni\u00f0ur vatnsbakkana.3Svo segir Drottinn alvaldur: eg vil leggja fyrir \u00feig net mitt, og hafa vi\u00f0 manns\u00f6fnu\u00f0 af m\u00f6rgum \u00fej\u00f3\u00f0um, sem skulu draga \u00feig upp \u00ed m\u00ednu neti;4eg vil varpa \u00fe\u00e9r upp \u00e1 land, og l\u00e1ta <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/esekiel-32-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21683","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21683","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21683"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21683\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21683"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}