{"id":21665,"date":"2018-01-02T01:03:15","date_gmt":"2018-01-02T01:03:15","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/esekiel-14-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:03:15","modified_gmt":"2018-01-02T01:03:15","slug":"esekiel-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/esekiel-14-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 14. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">Esek\u00edel kennir, a\u00f0 Gu\u00f0 vilji \u00feunglega refsa \u00feeim hr\u00e6snurum, sem bl\u00f3tu\u00f0u \u00e1 laun, en komu \u00fe\u00f3 fram fyrir Drottinn til a\u00f0 a\u00f0spyrja hann 1\u201311; a\u00f0 Gu\u00f0 vilji v\u00e6gja nokkurum af \u00cdsraelsm\u00f6nnum, til \u00feess a\u00f0 opinbert ver\u00f0i, a\u00f0 hans d\u00f3mur hafi veri\u00f0 r\u00e9ttv\u00eds, 12\u201323.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Eitt sinn komu nokkurir til m\u00edn af forstj\u00f3rum \u00cdsraelsmanna, og settu sig ni\u00f0ur frammi fyrir m\u00e9r.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00de\u00e1 tala\u00f0i Drottinn til m\u00edn \u00feessum or\u00f0um:<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00fe\u00fa mannsins son, \u00feessir menn haf allan hugann \u00e1 s\u00ednum skur\u00f0go\u00f0um, og alltaf augun \u00e1 \u00fev\u00ed f\u00f3takeflinu, sem ver\u00f0ur \u00feeim til hr\u00f6sunar; skyldi eg \u00fe\u00e1 l\u00e1ta \u00fe\u00e1 a\u00f0spyrja mig?<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>\u00dear fyrir tala \u00fe\u00fa til \u00feeirra, og seg \u00feeim: Svo segir Drottinn alvaldur: hv\u00f6r s\u00e1 af \u00cdsraelsm\u00f6nnum, sem hefir allan hugann \u00e1 s\u00ednum skur\u00f0go\u00f0um, og augun allt af \u00e1 \u00fev\u00ed f\u00f3takeflinu, sem ver\u00f0ur honum til hr\u00f6sunar, og gengur ei a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur til fr\u00e9ttar vi\u00f0 einhv\u00f6rn sp\u00e1mannanna, honum skal eg Drottinn eftir \u00fev\u00ed sv\u00f6r gefa, sem hans margfalda afgu\u00f0ad\u00fdrkun vinnur til,<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>til \u00feess a\u00f0 f\u00e6ra \u00cdsraelsm\u00f6nnum heim sanninn um \u00fea\u00f0, a\u00f0 \u00feeir hafa gj\u00f6rst m\u00e9r fr\u00e1hverfir s\u00f6kum sinnar margf\u00f6ldu skur\u00f0go\u00f0ad\u00fdrkunar.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00de\u00fa skalt \u00fev\u00ed segja \u00cdsraelsm\u00f6nnum: Svo segir Drottinn alvaldur: umvendi\u00f0 y\u00f0ur, sn\u00fai\u00f0 y\u00f0ur fr\u00e1 y\u00f0ar skur\u00f0go\u00f0um, sn\u00fai\u00f0 augum y\u00f0ar fr\u00e1 y\u00f0ar margv\u00edslegu sv\u00edvir\u00f0ingum!<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00fev\u00ed a\u00f0 hv\u00f6r s\u00e1 af \u00cdsraelsm\u00f6nnum, e\u00f0a \u00feeim \u00fatlendingum, er b\u00faa \u00ed \u00cdsrael, sem gj\u00f6rist m\u00e9r fr\u00e1hverfur, sn\u00fdr huga s\u00ednum til skur\u00f0go\u00f0a, og hefir augun \u00e1 \u00fev\u00ed f\u00f3takeflinu sem ver\u00f0ur honum til hr\u00f6sunar, en gengur \u00fe\u00f3 til sp\u00e1mannsins, til a\u00f0 a\u00f0spyrja mig fyrir hans me\u00f0alg\u00f6ngu\u2014honum skal eg Drottinn gefa maklegt svar:<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Eg skal l\u00edta til \u00feess manns me\u00f0 rei\u00f0isvip, eg skal ey\u00f0ileggja hann, svo hann ver\u00f0i \u00f6\u00f0rum til vi\u00f0v\u00f6runar og spotts; eg skal afm\u00e1 hann af m\u00ednu f\u00f3lki, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 eg em Drottinn.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Og l\u00e1ti nokkur sp\u00e1ma\u00f0ur hafa sig fyrir d\u00e1ra, og segi \u00feesskonar manni nokkurn sp\u00e1d\u00f3m, \u00fe\u00e1 skal eg Drottinn gj\u00f6ra sl\u00edkan sp\u00e1mann a\u00f0 d\u00e1ra, eg skal \u00fatr\u00e9tta m\u00edna h\u00f6nd m\u00f3ti honum, og afm\u00e1 hann af m\u00ednu f\u00f3lki \u00cdsrael;<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>\u00feeir skulu vera jafnsekir hv\u00f6r um sig, hinn sem til fr\u00e9ttar gengur, og sp\u00e1ma\u00f0urinn:<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>til \u00feess a\u00f0 \u00cdsraelsmenn ekki framar villist fr\u00e1 m\u00e9r, og flekki sig ekki framar me\u00f0 alls kyns yfirtro\u00f0slum, heldur s\u00e9u mitt f\u00f3lk, og eg \u00feeirra Gu\u00f0, segir Drottinn alvaldur. <br \/><a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Drottinn tala\u00f0i til m\u00edn \u00feessum or\u00f0um:<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00fe\u00fa mannsins son, ef eitt land syndga\u00f0i m\u00f3ti m\u00e9r me\u00f0 st\u00f3rkostlegum misgj\u00f6r\u00f0um, og eg \u00fatr\u00e9tti m\u00edna h\u00f6nd m\u00f3ti \u00fev\u00ed, l\u00e9ti \u00fear ver\u00f0a matarskort, sendi \u00fev\u00ed hungur, og eyddi \u00fear m\u00f6nnum og f\u00e9na\u00f0i,<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>og v\u00e6ri \u00fear \u00feeir \u00fer\u00edr menn, N\u00f3i, Dan\u00edel og Job, \u00fe\u00e1 skyldu \u00feeir s\u00f6kum r\u00e1\u00f0vendni sinnar frelsa l\u00edf sj\u00e1lfra \u00feeirra, segir Drottinn alvaldur.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Ef eg l\u00e9t sk\u00e6\u00f0 d\u00fdr fara yfir landi\u00f0, sem eyddi \u00fea\u00f0 af m\u00f6nnum, svo \u00fea\u00f0 yr\u00f0i a\u00f0 au\u00f0n, sem enginn \u00feyr\u00f0i um a\u00f0 fara fyrir d\u00fdrunum,<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 skyldu \u00fe\u00f3 \u00feessir \u00fer\u00edr menn, sem \u00fear v\u00e6ru\u2014svo sannarlega sem eg lifi, segir Drottinn alvaldur\u2014hv\u00f6rki f\u00e1 bjarga\u00f0 sonum n\u00e9 d\u00e6trum, heldur skyldu \u00feeir a\u00f0eins sj\u00e1lfir af komast, en \u00feess landi\u00f0 skyldi ver\u00f0a a\u00f0 au\u00f0n.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>E\u00f0a ef eg l\u00e9ti sver\u00f0 geysa yfir \u00fea\u00f0 sama land, og seg\u00f0i: far \u00fe\u00fa, sver\u00f0, yfir landi\u00f0, eg vil ey\u00f0a \u00fea\u00f0 a\u00f0 m\u00f6nnum og f\u00e9na\u00f0i;<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>og v\u00e6ri \u00fear hinir s\u00f6mu \u00fer\u00edr menn\u2014svo sannarlega sem eg lifi, segir Drottinn alvaldur\u2014\u00fe\u00e1 skyldu \u00feeir hv\u00f6rki f\u00e1 frelsa\u00f0 syni n\u00e9 d\u00e6tur, heldur a\u00f0eins sj\u00e1lfa sig.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>E\u00f0a ef eg l\u00e9ti dreps\u00f3tt ganga yfir \u00feetta land, og \u00fatjysi yfir \u00fea\u00f0 minni rei\u00f0i me\u00f0 faraldri, svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 eyddist a\u00f0 m\u00f6nnum og f\u00e9na\u00f0i,<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>og v\u00e6ru \u00feeir N\u00f3i, Dan\u00edel og Job \u00fear innan lands, \u00fe\u00e1 skyldu \u00feeir \u00fe\u00f3\u2014svo sannarlega sem eg lifi, segir Drottinn alvaldur\u2014hv\u00f6rki f\u00e1 frelsa\u00f0 syni n\u00e9 d\u00e6tur, heldur skyldu \u00feeir a\u00f0eins f\u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r bjarga\u00f0 fyrir sakir r\u00e1\u00f0vendni sinnar.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>N\u00fa \u00fear \u00e1 m\u00f3ti\u2014svo segir Drottinn alvaldur\u2014jafnvel \u00fe\u00f3 eg sendi m\u00edna fj\u00f3ra refsid\u00f3ma, sver\u00f0, hungur, sk\u00e6\u00f0 d\u00fdr og dreps\u00f3tt, yfir Jer\u00fasalem, til a\u00f0 ey\u00f0a \u00fear m\u00f6nnum og f\u00e9na\u00f0i:<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00f3 nokkurir ver\u00f0a \u00ed borginni, sem af skulu komast og \u00fea\u00f0an \u00fatleiddir ver\u00f0a, b\u00e6\u00f0i synir og d\u00e6tur; \u00feessir skulu hinga\u00f0 til y\u00f0ar <span class='VideyAth'>a)<\/span> koma, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 sj\u00e1 \u00feeirra afdrif og breytni, og huggast vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00f3g\u00e6fu, sem eg l\u00e9t koma yfir Jer\u00fasalem, og vi\u00f0 allt \u00fea\u00f0, sem eg l\u00e9t vi\u00f0 hana framkoma;<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>j\u00e1, \u00feeir skulu hugga y\u00f0ur, \u00feegar \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 \u00feeirra afdrif og breytni, og hlj\u00f3ti\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0urkenna, a\u00f0 eg ekkert hefi gj\u00f6rt \u00e1n orsaka af \u00fev\u00ed, sem eg l\u00e9t fram vi\u00f0 borgina koma, segir Drottinn alvaldur.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\">V. 22. a. Til \u00fatlaganna \u00ed Kaldealandi.<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Esek\u00edel kennir, a\u00f0 Gu\u00f0 vilji \u00feunglega refsa \u00feeim hr\u00e6snurum, sem bl\u00f3tu\u00f0u \u00e1 laun, en komu \u00fe\u00f3 fram fyrir Drottinn til a\u00f0 a\u00f0spyrja hann 1\u201311; a\u00f0 Gu\u00f0 vilji v\u00e6gja nokkurum af \u00cdsraelsm\u00f6nnum, til \u00feess a\u00f0 opinbert ver\u00f0i, a\u00f0 hans d\u00f3mur hafi veri\u00f0 r\u00e9ttv\u00eds, 12\u201323. 1Eitt sinn komu nokkurir til m\u00edn af forstj\u00f3rum \u00cdsraelsmanna, og settu sig ni\u00f0ur frammi fyrir m\u00e9r.2\u00de\u00e1 tala\u00f0i Drottinn til m\u00edn \u00feessum or\u00f0um:3\u00fe\u00fa mannsins son, \u00feessir menn haf allan hugann \u00e1 s\u00ednum skur\u00f0go\u00f0um, og alltaf augun \u00e1 \u00fev\u00ed f\u00f3takeflinu, sem ver\u00f0ur \u00feeim til hr\u00f6sunar; skyldi eg \u00fe\u00e1 l\u00e1ta \u00fe\u00e1 a\u00f0spyrja mig?4\u00dear fyrir tala \u00fe\u00fa til \u00feeirra, og seg <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/esekiel-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21665","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21665","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21665"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21665\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21665"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}