{"id":21594,"date":"2018-01-02T01:02:54","date_gmt":"2018-01-02T01:02:54","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/jesaja-66-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:02:54","modified_gmt":"2018-01-02T01:02:54","slug":"jesaja-66-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/jesaja-66-kafli\/","title":{"rendered":"Jesaja 66. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">Hegning hinna \u00feverbrotnu Gy\u00f0inga og skur\u00f0go\u00f0a d\u00fdrkennda. Samans\u00f6fnun Gy\u00f0ingal\u00fd\u00f0s.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Svo segir Drottinn: Himinninn er mitt h\u00e1s\u00e6ti, og j\u00f6r\u00f0in m\u00edn f\u00f3tsk\u00f6r. Hva\u00f0a h\u00fas er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1, er \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 byggja m\u00e9r? og hv\u00f6r er s\u00e1 sta\u00f0ur, sem veri\u00f0 geti minn a\u00f0seturssta\u00f0ur?<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>M\u00edn h\u00f6nd gj\u00f6r\u00f0i allt \u00feetta, og \u00feannig er \u00fea\u00f0 allt til or\u00f0i\u00f0, segir Drottinn. En eg vil renna augum m\u00ednum anna\u00f0, til hins vola\u00f0a, til \u00feess, sem hefir sorgfullt hjarta, til \u00feess, sem \u00f3ttast m\u00edn or\u00f0.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>S\u00e1 sem sl\u00e1trar, og hinn sem vegur mann: s\u00e1 sem f\u00f3rnf\u00e6rir sau\u00f0, og hinn sem banar hundi: s\u00e1 sem f\u00e6rir matf\u00f3rn, og hinn sem framber sv\u00ednabl\u00f3\u00f0: s\u00e1 sem brennir reykelsi, og hinn sem tilbi\u00f0ur go\u00f0al\u00edkneski: \u00feessir \u00fatvelja, hv\u00f6r um sig, \u00fea\u00f0 sem er eftir eigin hug\u00fe\u00f3tta \u00feeirra, og l\u00e1ta s\u00e9r vel l\u00edka, \u00fea\u00f0 sem er vi\u00f0urstyggilegt.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Eg vil \u00fe\u00e1 og einnig \u00fatvelja \u00fea\u00f0, sem gj\u00f6rir \u00feeirra hlut a\u00f0 verra, og l\u00e1ta yfir \u00fe\u00e1 koma \u00fea\u00f0, sem \u00feeir hr\u00e6\u00f0ast, fyrst engi \u00feeirra gegndi, \u00fe\u00e1 eg kalla\u00f0i, og enginn heyr\u00f0i, \u00fe\u00e1 eg tala\u00f0i, heldur a\u00f0h\u00f6f\u00f0ust \u00fea\u00f0, sem m\u00e9r misl\u00edka\u00f0i, og \u00fatv\u00f6ldu \u00fea\u00f0, sem m\u00e9r \u00fe\u00f3kna\u00f0ist ekki.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins, \u00fe\u00e9r sem \u00f3ttist hans or\u00f0! Br\u00e6\u00f0ur y\u00f0ar, sem hata y\u00f0ur, og vilja ekkert samneyti vi\u00f0 y\u00f0ur hafa fyrir m\u00edns nafns sakir, \u00feeir segja: \u201egj\u00f6ri Drottinn sig d\u00fdr\u00f0legan, svo v\u00e9r megum sj\u00e1 y\u00f0ar f\u00f6gnu\u00f0\u201c; en \u00feeir skulu ver\u00f0a til sm\u00e1nar.<br \/><a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Einhv\u00f6r gn\u00fdr heyrist fr\u00e1 borginni, einhv\u00f6r raust fr\u00e1 musterinu; \u00fea\u00f0 er raust Drottins, sem geldur \u00f3vinum s\u00ednum \u00fea\u00f0, sem \u00feeir hafa til unni\u00f0.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>H\u00fan <span class='VideyAth'>(S\u00edonsborg)<\/span> f\u00e6\u00f0ir, \u00e1\u00f0ur en h\u00fan kennir s\u00edn; h\u00fan er or\u00f0in l\u00e9ttari a\u00f0 sveinbarni, \u00e1\u00f0ur en j\u00f3\u00f0s\u00f3ttin kemur a\u00f0 henni.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Hv\u00f6r hefir heyrt sl\u00edkt? Hv\u00f6r hefir s\u00e9\u00f0 d\u00e6mi til sl\u00edks? Getur nokkurt land f\u00e6\u00f0st \u00e1 einum degi, e\u00f0a nokkur \u00fej\u00f3\u00f0 komi\u00f0 til allt \u00ed einu? Og \u00fe\u00f3 skuli S\u00edonsborg hafa f\u00e6tt b\u00f6rn s\u00edn, \u00e1\u00f0ur en h\u00fan kenndi s\u00f3ttar!\u2014<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Skylda eg, sem l\u00e6t f\u00e6\u00f0ingarsta\u00f0inn opnast, ekki geta l\u00e1ti\u00f0 f\u00f3stri\u00f0 f\u00e6\u00f0ast? segir Drottinn. Eg, sem l\u00e6t l\u00edfs\u00e1v\u00f6xtinn f\u00e6\u00f0ast, skylda eg sj\u00e1lfur vera \u00e1vaxtarlaus? segir \u00feinn Gu\u00f0.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Gle\u00f0ji\u00f0 y\u00f0ur \u00e1samt me\u00f0 Jer\u00fasalemsborg, fagni\u00f0 yfir henni, allir \u00fe\u00e9r, sem hafi\u00f0 hana k\u00e6ra! Veri\u00f0 gla\u00f0ir \u00e1samt me\u00f0 henni, allir \u00fe\u00e9r, sem voru\u00f0 hryggvir yfir henni.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00dev\u00ed \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 sj\u00faga, og saddir ver\u00f0a af hennar endurn\u00e6randi brj\u00f3stum; \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 teyga, og g\u00e6\u00f0a y\u00f0ur me\u00f0 hennar r\u00edkd\u00f3msgn\u00f3tt.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00dev\u00ed svo segir Drottinn: Sj\u00e1, eg veiti vels\u00e6ldinni til hennar, eins og vatnsstraumi, og r\u00edkd\u00f3mi hei\u00f0ingjanna, eins og bakkafullum l\u00e6k; \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 liggja \u00e1 brj\u00f3stum hennar, og h\u00fan skal bera y\u00f0ur, og hafa barnag\u00e6lur vi\u00f0 y\u00f0ur \u00e1 knj\u00e1m s\u00e9r.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Eins og m\u00f3\u00f0irin huggar barn sitt, eins skal eg y\u00f0ur hugga; \u00ed Jer\u00fasalemsborg skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r hugga\u00f0ir ver\u00f0a.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00de\u00e9r munu\u00f0 sj\u00e1 \u00fea\u00f0, og y\u00f0vart hjarta mun fagna, og y\u00f0ar bein bl\u00f3mgast, sem gras; \u00fev\u00ed h\u00f6nd Drottins mun au\u00f0kennd ver\u00f0a \u00e1 \u00fej\u00f3num hans, og hans rei\u00f0i \u00e1 \u00f3vinum hans.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>\u00dev\u00ed, sj\u00e1i\u00f0, Drottinn kemur \u00ed eldi\u2014hans vagn er sem vindbylur\u2014til a\u00f0 gjalda rei\u00f0i s\u00edna me\u00f0 heift, og h\u00f3tan s\u00edna me\u00f0 eldslogum.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00dev\u00ed me\u00f0 eldi og me\u00f0 s\u00ednu sver\u00f0i mun Drottinn allt hold d\u00e6ma, og \u00fe\u00e1 mun st\u00f3r ver\u00f0a s\u00e1 valk\u00f6stur, er Drottinn fellir.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00deeir sem helga sig og hreinsa innst \u00ed eikarg\u00f6r\u00f0unum, einn h\u00e9r og annar \u00fear; \u00feeir sem eta sv\u00ednakj\u00f6t, \u00f3hrein d\u00fdr og m\u00fasarh\u00e9ra, skulu allir undir lok l\u00ed\u00f0a, segir Drottinn.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Eg \u00feekki y\u00f0ar athafnir og hugsanir. S\u00e1 t\u00edmi kemur, a\u00f0 eg mun samansafna \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0um, hv\u00f6rrar tungu sem eru; \u00fe\u00e6r skulu koma og sj\u00e1 m\u00edna d\u00fdr\u00f0.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Eg vil setja teikn \u00e1 nokkura \u00feeirra, og \u00fe\u00e1 af \u00feeim, sem undan hafa komist <span class='VideyAth'>(hegningunni)<\/span>, vil eg senda til hei\u00f0ingjanna \u00ed Tarsisborg, til F\u00fallands, L\u00fadlands, Bogmannalands, T\u00edberanalands, J\u00f3nalands <span class='VideyAth'>(Grikklands)<\/span>, og til fjarl\u00e6gra lands\u00e1lfa, sem ekki hafa neina fregn af m\u00e9r, og ekki s\u00e9\u00f0 m\u00edna d\u00fdr\u00f0; og \u00feeir skulu kunngj\u00f6ra m\u00edna d\u00fdr\u00f0 me\u00f0al hei\u00f0ingjanna.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Allir br\u00e6\u00f0ur y\u00f0ar skulu fluttir ver\u00f0a \u00far \u00f6llum hei\u00f0num l\u00f6ndum, Drottni til f\u00f3rna; \u00e1 hestum, kerrum, v\u00f6gnum, \u00e1 m\u00falum og \u00falf\u00f6ldum, til m\u00edns heilaga fjalls, til Jer\u00fasalemsborgar, segir Drottinn; eins og \u00fe\u00e1 \u00cdsraelsf\u00f3lk f\u00e6rir matarf\u00f3rn \u00ed hreinum kerum til Drottins h\u00fass.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Af \u00feeim vil eg einnig taka kennimenn og Lev\u00edta, segir Drottinn.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00dev\u00ed eins og hinn n\u00fdi himinn og hin n\u00fdja j\u00f6r\u00f0, sem eg skapa, standa fyrir m\u00ednu augliti, segir Drottinn, eins skal y\u00f0ar afsprengi og nafn standa.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Og fr\u00e1 einni tunglkomu til annarrar, fr\u00e1 einum hv\u00edldardegi til annars, skulu allir menn koma, til a\u00f0 tilbi\u00f0ja fyrir m\u00ednu augliti, segir Drottinn.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Og \u00feeir skulu \u00fatganga <span class='VideyAth'>(\u00far borginni)<\/span>, og sj\u00e1 hr\u00e6 \u00feeirra manna, sem falli\u00f0 hafa fr\u00e1 m\u00e9r; \u00fev\u00ed \u00feeirra ormur skal ekki deyja, og \u00feeirra eldur ekki \u00fatslokkna, og \u00feau skulu vera hv\u00f6rjum manni vi\u00f0urstyggileg.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\">V. 7. Borginni er h\u00e9r l\u00edkt vi\u00f0 m\u00f3\u00f0ur, en meiningin er: Eg mun vi\u00f0r\u00e9tta hag borgarinnar og alls Gy\u00f0ingal\u00fd\u00f0s, \u00e1\u00f0ur en nokkurn mann varir.<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hegning hinna \u00feverbrotnu Gy\u00f0inga og skur\u00f0go\u00f0a d\u00fdrkennda. Samans\u00f6fnun Gy\u00f0ingal\u00fd\u00f0s. 1Svo segir Drottinn: Himinninn er mitt h\u00e1s\u00e6ti, og j\u00f6r\u00f0in m\u00edn f\u00f3tsk\u00f6r. Hva\u00f0a h\u00fas er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1, er \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 byggja m\u00e9r? og hv\u00f6r er s\u00e1 sta\u00f0ur, sem veri\u00f0 geti minn a\u00f0seturssta\u00f0ur?2M\u00edn h\u00f6nd gj\u00f6r\u00f0i allt \u00feetta, og \u00feannig er \u00fea\u00f0 allt til or\u00f0i\u00f0, segir Drottinn. En eg vil renna augum m\u00ednum anna\u00f0, til hins vola\u00f0a, til \u00feess, sem hefir sorgfullt hjarta, til \u00feess, sem \u00f3ttast m\u00edn or\u00f0.3S\u00e1 sem sl\u00e1trar, og hinn sem vegur mann: s\u00e1 sem f\u00f3rnf\u00e6rir sau\u00f0, og hinn sem banar hundi: s\u00e1 sem f\u00e6rir matf\u00f3rn, og hinn sem framber sv\u00ednabl\u00f3\u00f0: <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/jesaja-66-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21594","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21594","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21594"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21594\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21594"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}