{"id":21572,"date":"2018-01-02T01:02:48","date_gmt":"2018-01-02T01:02:48","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/jesaja-44-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:02:48","modified_gmt":"2018-01-02T01:02:48","slug":"jesaja-44-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/jesaja-44-kafli\/","title":{"rendered":"Jesaja 44. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">Drottinn sannar enn gu\u00f0d\u00f3m sinn me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann muni sameina hei\u00f0ingja og Gy\u00f0ing, afm\u00e1lun skur\u00f0go\u00f0ad\u00fdrkunarinnar; frelsun Gy\u00f0inga \u00far herlei\u00f0ingunni.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Heyr \u00fe\u00f3, minn \u00fej\u00f3n, \u00fe\u00fa afspringur Jakobs, og \u00fe\u00fa \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0ur, er eg \u00fatvaldi.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Svo segir Drottinn, s\u00e1 er \u00feig hefir gj\u00f6rt og mynda\u00f0, og hj\u00e1lpa\u00f0 \u00fe\u00e9r allt \u00ed fr\u00e1 m\u00f3\u00f0urkvi\u00f0i: \u00f3ttast \u00fe\u00fa eigi, minn \u00fej\u00f3n, afsprengi Jakobs, \u00fe\u00fa afspringur \u00cdsraels, hv\u00f6rn eg \u00fatvaldi!<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00dev\u00ed eg vil vatni ausa yfir hi\u00f0 \u00feyrsta landi\u00f0, og \u00e1rstraumum yfir \u00feurrlendi\u00f0; eg vil \u00fathella m\u00ednum anda yfir afsprengi \u00feitt, og minni blessan yfir \u00fe\u00edna afkomendur,<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>svo \u00feeir skulu vaxa, eins og gras \u00e1 engi, og sem v\u00ed\u00f0ir hj\u00e1 vatnsl\u00e6kjum.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Einn mun segja: \u201eeg tilheyri Drottni;\u201c annar mun kenna sig vi\u00f0 Jakob; \u00feessi mun rita inni \u00ed h\u00f6nd s\u00edna, \u201ehelga\u00f0ur Drottni\u201c, og nefna sig eftir \u00cdsrael.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Svo segir Drottinn, konungur og frelsari \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0s, Drottinn allsherjar: eg em hinn fyrsti, og eg em hinn s\u00ed\u00f0asti, og fyrir utan mig er enginn Gu\u00f0 til.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Hv\u00f6r er sem eg, a\u00f0 hann \u00e1kvar\u00f0i, kunngj\u00f6ri og r\u00e1\u00f0stofni \u00fea\u00f0 <span class='VideyAth'>(hi\u00f0 \u00f3komna)<\/span>, eins og eg hefi gj\u00f6rt, allt \u00ed fr\u00e1 \u00fev\u00ed er eg h\u00f3f \u00feessa hina \u00f6rg\u00f6mlu \u00fej\u00f3\u00f0? Kunngj\u00f6ri \u00feau <span class='VideyAth'>(skur\u00f0go\u00f0in)<\/span> eins s\u00ednum d\u00fdrkenndum hi\u00f0 \u00f3komna, og \u00fea\u00f0 sem h\u00e9r eftir mun ver\u00f0a!<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00d3ttist \u00fev\u00ed eigi, og skelfist eigi! L\u00e9t eg \u00feig ekki heyra \u00fea\u00f0, og kunngj\u00f6r\u00f0a eg \u00fea\u00f0 ekki l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur? \u00de\u00e9r eru\u00f0 m\u00ednir vottar; er nokkur Gu\u00f0 til, nema eg? Nei, ekkert anna\u00f0 hellubjarg er til, eg veit af \u00f6ngvu \u00f6\u00f0ru.<br \/><a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Allir \u00feeir, sem tilb\u00faa go\u00f0al\u00edkneskjur, eru h\u00e9g\u00f3mi, og \u00feeirra kostulegu verk eru til engrar nytsemdar; \u00feeir geta ekki reki\u00f0 sig \u00far vitni um \u00fea\u00f0, a\u00f0 \u00fe\u00e6r sj\u00e1 ekkert og skynja ekkert, og \u00fev\u00ed hlj\u00f3ta \u00feeir a\u00f0 fyrirver\u00f0a sig.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Hv\u00f6r mundi geta tilb\u00fai\u00f0 Gu\u00f0, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 steypa \u00fea\u00f0 l\u00edkneski, sem til einskis er n\u00fdtt?<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Sj\u00e1, allir sem \u00fear eiga hlut a\u00f0, ver\u00f0a a\u00f0 blyg\u00f0ast s\u00edn. Smi\u00f0irnir sj\u00e1lfir, \u00feeir eru \u00fe\u00f3 ekki nema menn. L\u00e1t \u00fe\u00e1 alla koma saman: \u00feeir hlj\u00f3ta \u00fe\u00f3 a\u00f0 standa smeykir og fyrirver\u00f0a sig, hv\u00f6r me\u00f0 \u00f6\u00f0rum.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>J\u00e1rnsmi\u00f0urinn meitlar j\u00e1rni\u00f0 \u00ed sundur, eldar \u00fea\u00f0 vi\u00f0 gl\u00f3\u00f0ina, og lagar \u00fea\u00f0 me\u00f0 hamrinum: hann vinnur j\u00e1rni\u00f0 me\u00f0 s\u00ednum sterka armlegg: hann sveltur svo a\u00f0 hann vanmegnast: hann drekkur ekki vatn, svo hann ver\u00f0ur m\u00f3\u00f0ur.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Tr\u00e9smi\u00f0urinn leggur m\u00e6li\u00fer\u00e1\u00f0inn \u00e1 tr\u00e9\u00f0, markar \u00fea\u00f0 me\u00f0 rau\u00f0steini, heflar og sirklar \u00fea\u00f0: s\u00ed\u00f0an lagar hann \u00fea\u00f0 eftir einhv\u00f6rri mannsmynd, og b\u00fdr til \u00far \u00fev\u00ed fagran mann, til \u00feess hann b\u00fai \u00ed <span class='VideyAth'>(go\u00f0a)<\/span>h\u00fasinu.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Hann h\u00f6ggur s\u00e9r sedrustr\u00e9, har\u00f0an vi\u00f0 og eik, og velur um me\u00f0al sk\u00f3gartrj\u00e1nna, e\u00f0a hann gr\u00f3\u00f0ursetur arantr\u00e9, sem sprettur upp \u00ed regnsk\u00farunum.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Af \u00feessum trj\u00e1m, sem menn hafa til eldivi\u00f0ar, tekur hann nokku\u00f0 til a\u00f0 verma sig vi\u00f0, hann kveikir eld vi\u00f0 \u00feau og bakar brau\u00f0; en af \u00feessum hinum s\u00f6mu trj\u00e1m gj\u00f6rir hann go\u00f0, og tilbi\u00f0ur \u00fea\u00f0, hann b\u00fdr til l\u00edkneski af \u00feeim, og fellur fram fyrir trj\u00e1num.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Helming trj\u00e1nna brennir hann \u00ed eldi, vi\u00f0 hinn helminginn s\u00fd\u00f0ur hann kj\u00f6t, sem hann etur, steikir steik, og etur sig saddan; og \u00feegar hann er or\u00f0inn heitur, segir hann: \u201en\u00fa \u00feykir m\u00e9r v\u00e6nt, m\u00e9r er heitt, og hefi lj\u00f3si\u00f0 til a\u00f0 horfa \u00ed!\u201c<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00dar \u00fev\u00ed, sem \u00fe\u00e1 er eftir, gj\u00f6rir hann go\u00f0al\u00edkneski handa s\u00e9r, kn\u00e9kr\u00fdpur \u00fev\u00ed, fellur fram, tilbi\u00f0ur \u00fea\u00f0, og segir: \u201efrelsa mig, \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa ert minn gu\u00f0!\u201c<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00deeir hafa hv\u00f6rki skyn n\u00e9 skilning; augu \u00feeirra eru afturlukt, svo \u00feeir sj\u00e1 ekki, og hj\u00f6rtu \u00feeirra, svo \u00feau skynja ekki.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Manninum dettur ekki \u00ed hug, hann hefir ekki vitsmuni e\u00f0a skilning til a\u00f0 hugsa me\u00f0 s\u00e9r: \u201ehelming \u00feessa tr\u00e9s brennda eg \u00ed eldi, baka\u00f0i brau\u00f0 vi\u00f0 gl\u00e6\u00f0ur \u00feess, steikti kj\u00f6t og \u00e1t; skylda eg \u00fe\u00e1 b\u00faa til vi\u00f0urstyggilegt go\u00f0 af \u00fev\u00ed, sem afgangs er, og kn\u00e9falla fyrir tr\u00e9drumbi?\u201c<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Hann hleypur eftir h\u00e9g\u00f3manum, hans t\u00e1ldregna hjarta lei\u00f0ir hann afvega, svo hann f\u00e6r ekki s\u00e1lu sinni borgi\u00f0, og hann spyr \u00fev\u00ed ekki sj\u00e1lfan sig: \u201eeru \u00fea\u00f0 ekki svik, sem eg hefi handa milli?\u201c<br \/><a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Huglei\u00f0 \u00feetta, \u00fe\u00fa Jakobs\u00e6tt og \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0ur, \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa ert minn \u00fej\u00f3n, eg hefi tilb\u00fai\u00f0 \u00feig; \u00fe\u00fa, \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0ur, ert minn \u00fej\u00f3n, gleym \u00fe\u00fa m\u00e9r eigi!<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Eg l\u00e9t \u00fe\u00ednar misgj\u00f6r\u00f0ir burtu hverfa, sem \u00feoku, og \u00fe\u00ednar syndir, sem sk\u00fd; sn\u00fa \u00fe\u00e9r til m\u00edn, \u00fev\u00ed eg em \u00feinn frelsari.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Lofsyngi\u00f0, \u00fe\u00e9r himnar, \u00fev\u00ed Drottinn er m\u00e1ttugur; kalli\u00f0 h\u00e1tt, \u00fe\u00e9r undirheimar; hefji\u00f0 fagna\u00f0ar s\u00f6ng, \u00fe\u00e9r fj\u00f6ll, sk\u00f3gar og \u00f6ll sk\u00f3gartr\u00e9, \u00fev\u00ed Drottinn endurleysir Jakobsni\u00f0ja, og gj\u00f6rir sig d\u00e1samlegan me\u00f0al \u00cdsraelsmanna.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Svo segir Drottinn, \u00feinn endurlausnari, s\u00e1 er \u00feig hefir tilb\u00fai\u00f0 \u00ed fr\u00e1 m\u00f3\u00f0urkvi\u00f0i: Eg em Drottinn, s\u00e1 er sk\u00f3p alla hluti, eg \u00fat\u00feanda himininn aleinn, og \u00fatbreiddi j\u00f6r\u00f0ina af eigin m\u00e6tti m\u00ednum.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Eg \u00f3n\u00fdti t\u00e1kn svikaranna, og gj\u00f6ri lygisp\u00e1mennina a\u00f0 f\u00edflum; eg v\u00edsa vitringunum aftur, og gj\u00f6ri visku \u00feeirra a\u00f0 heimsku.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Eg sta\u00f0festi or\u00f0 \u00fej\u00f3na minna, og framkv\u00e6mi atkv\u00e6\u00f0i minna sendibo\u00f0a; eg em s\u00e1, er segi um Jer\u00fasalemsborg: \u201eh\u00fan skal ver\u00f0a uppbygg\u00f0\u201c, og til J\u00fadar\u00edkisborga: \u201e\u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ver\u00f0a uppbygg\u00f0ar\u201c; og eg reisi af n\u00fdju \u00fe\u00e1 ena ni\u00f0urbrotnu sta\u00f0i.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Eg segi til dj\u00fapsins: \u201e\u00feverra \u00fe\u00fa, eg vil l\u00e1ta \u00fe\u00edna strauma upp\u00feorna\u201c.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Eg segi S\u00fdrusi a\u00f0 vera minn hir\u00f0ir, hann skal framkv\u00e6ma allan minn vilja, og segja til Jer\u00fasalemsborgar: \u201e\u00fe\u00fa skalt uppbygg\u00f0 ver\u00f0a\u201c, og til musterisins: \u201e\u00fe\u00fa skalt ver\u00f0a grundvalla\u00f0\u201c.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\"><\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Drottinn sannar enn gu\u00f0d\u00f3m sinn me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann muni sameina hei\u00f0ingja og Gy\u00f0ing, afm\u00e1lun skur\u00f0go\u00f0ad\u00fdrkunarinnar; frelsun Gy\u00f0inga \u00far herlei\u00f0ingunni. 1Heyr \u00fe\u00f3, minn \u00fej\u00f3n, \u00fe\u00fa afspringur Jakobs, og \u00fe\u00fa \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0ur, er eg \u00fatvaldi.2Svo segir Drottinn, s\u00e1 er \u00feig hefir gj\u00f6rt og mynda\u00f0, og hj\u00e1lpa\u00f0 \u00fe\u00e9r allt \u00ed fr\u00e1 m\u00f3\u00f0urkvi\u00f0i: \u00f3ttast \u00fe\u00fa eigi, minn \u00fej\u00f3n, afsprengi Jakobs, \u00fe\u00fa afspringur \u00cdsraels, hv\u00f6rn eg \u00fatvaldi!3\u00dev\u00ed eg vil vatni ausa yfir hi\u00f0 \u00feyrsta landi\u00f0, og \u00e1rstraumum yfir \u00feurrlendi\u00f0; eg vil \u00fathella m\u00ednum anda yfir afsprengi \u00feitt, og minni blessan yfir \u00fe\u00edna afkomendur,4svo \u00feeir skulu vaxa, eins og gras \u00e1 engi, og sem v\u00ed\u00f0ir hj\u00e1 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/jesaja-44-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21572","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21572","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21572"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21572\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21572"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}