{"id":21271,"date":"2018-01-02T01:01:11","date_gmt":"2018-01-02T01:01:11","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/nehemiabok-9-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:01:11","modified_gmt":"2018-01-02T01:01:11","slug":"nehemiabok-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/nehemiabok-9-kafli\/","title":{"rendered":"Nehem\u00edab\u00f3k 9. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">A\u00f0 afli\u00f0inni laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0inni halda \u00cdsraelsmenn i\u00f0runarh\u00e1t\u00ed\u00f0 l\u00f6gm\u00e1lsins.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00c1 tuttugasta og fj\u00f3r\u00f0a deginum \u00ed \u00feessum m\u00e1nu\u00f0i, samans\u00f6fnu\u00f0ust \u00cdsraelsmenn me\u00f0 f\u00f6stu og sekkjum og moldu yfir h\u00f6f\u00f0um s\u00e9r.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Og \u00feeir skildu \u00cdsraelsni\u00f0ja fr\u00e1 \u00f6llum \u00fatlendra afkomendum og \u00feeir st\u00f3\u00f0u upp og me\u00f0kenndu s\u00ednar syndir og sinna fe\u00f0ra syndir.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Og hv\u00f6r st\u00f3\u00f0 upp \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0; og menn l\u00e1su \u00ed l\u00f6gm\u00e1lsb\u00f3k Gu\u00f0s Drottins \u00feeirra, fj\u00f3r\u00f0a part \u00far deginum og fj\u00f3r\u00f0a part af deginum gj\u00f6r\u00f0u \u00feeir j\u00e1tningu s\u00edna og f\u00e9llu fram fyrir Drottin sinn Gu\u00f0.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Og Jes\u00faa og Bani og Kadmiel, Sebania, Bunni, Serebia, Banni, Hanani stigu upp \u00ed r\u00e6\u00f0upall Lev\u00edtanna og \u00e1k\u00f6llu\u00f0u me\u00f0 h\u00e1rri r\u00f6ddu Drottin, \u00feeirra Gu\u00f0.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Lev\u00edtarnir: Jes\u00faa, Kadmiel, Bani, Hasabnia, Serebia, Hodia, Sebania, Petahia, s\u00f6g\u00f0u: r\u00edsi\u00f0 upp og vegsami\u00f0 Drottin y\u00f0ar Gu\u00f0, fr\u00e1 eil\u00edf\u00f0 til eil\u00edf\u00f0ar, menn vegsami \u00feitt d\u00fdr\u00f0lega nafn, sem er upphafi\u00f0 yfir alla blessan og vegsaman!<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00de\u00fa ert Drottinn, \u00fe\u00fa einn! \u00fe\u00fa hefir gj\u00f6rt himininn, j\u00e1! himnanna himna og allan \u00feeirra her, j\u00f6r\u00f0ina og allt sem er \u00e1 henni; h\u00f6fin og allt sem er \u00ed \u00feeim og \u00fe\u00fa gefur \u00fev\u00ed \u00f6llu l\u00edf\u2014ogsvo himnanna hersveitir beygja sig fyrir \u00fe\u00e9r.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00de\u00fa ert Drottinn Gu\u00f0! sem haf\u00f0ir vel\u00fe\u00f3knan \u00e1 Abraham og sem leiddir hann fr\u00e1 Ur \u00ed Kaldeu og gafst honum nafni\u00f0 Abraham.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00de\u00fa fannst hjarta hans hreinskili\u00f0 fyrir \u00fe\u00ednu augliti og gj\u00f6r\u00f0ir s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 hann a\u00f0 gefa honum land Kanan\u00edtanna, Het\u00edtanna, Amor\u00edtanna, Feres\u00edtanna og Jeb\u00fas\u00edtanna, Girgas\u00edtanna, og afkomendum hans og uppfylltir or\u00f0 \u00fe\u00edn, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert r\u00e9ttl\u00e1tur.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>\u00de\u00fa s\u00e1st ney\u00f0 fe\u00f0ra vorra \u00ed Egyptalandi og heyr\u00f0ir andvarpanir \u00feeirra vi\u00f0 Sefhafi\u00f0 <span class='VideyAth'>c)<\/span>.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa gj\u00f6r\u00f0ir t\u00e1kn og st\u00f3rmerki \u00e1 fara\u00f3 og \u00e1 \u00f6llum hans \u00fej\u00f3num og \u00e1 \u00f6llu f\u00f3lkinu \u00ed landi hans, \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa vissir a\u00f0 \u00feeir breyttu grimmdarlega vi\u00f0 \u00fe\u00e1, og \u00fe\u00fa tilbj\u00f3st \u00fe\u00e9r st\u00f3rt nafn eins og \u00e1 \u00feessum degi.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00de\u00fa klaufst hafi\u00f0 fyrir \u00feeirra augum, og \u00feeir gengu mitt \u00ed gegnum hafi\u00f0, eins og \u00e1 \u00feurrlendi, en \u00feeim sem eltu \u00fe\u00e1, steyptir \u00fe\u00fa \u00ed \u00f6ldurnar eins og steinum \u00ed hi\u00f0 \u00f6flga vatn.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00c1 daginn leiddir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 me\u00f0 sk\u00fdst\u00f3lpa og me\u00f0 eldst\u00f3lpa \u00e1 n\u00f3ttunni, til a\u00f0 l\u00fdsa \u00feeim \u00e1 \u00feeim vegi er \u00feeir skyldu fara.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00de\u00fa steigst ni\u00f0ur \u00e1 S\u00edna\u00edfjall og tala\u00f0ir fr\u00e1 himni vi\u00f0 \u00fe\u00e1, og gafst \u00feeim r\u00e9tta d\u00f3ma og sta\u00f0fast l\u00f6gm\u00e1l, g\u00f3\u00f0a setninga og bo\u00f0or\u00f0;<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>og gj\u00f6r\u00f0ir \u00feeim kunnugan \u00feinn helga hv\u00edldardag og gafst \u00feeim bo\u00f0or\u00f0, setninga og l\u00f6gm\u00e1l fyrir h\u00f6nd \u00fej\u00f3ns \u00fe\u00edns M\u00f3sis.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>F\u00e6\u00f0u gafstu \u00feeim fr\u00e1 himnum vi\u00f0 hungri \u00feeirra, og \u00fatleiddir vatn af hellunni handa \u00feeim vi\u00f0 \u00feorsta \u00feeirra, og \u00fe\u00fa bau\u00f0st \u00feeim a\u00f0 koma til a\u00f0 leggja undir sig landi\u00f0, sem \u00fe\u00fa haf\u00f0ir svari\u00f0 a\u00f0 gefa \u00feeim.<br \/><a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>En \u00feeir, og fe\u00f0ur vorir ur\u00f0u ofstopafullir og forhertir og hlustu\u00f0u ekki \u00e1 \u00fe\u00edn bo\u00f0,<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>veigru\u00f0u s\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a, og ekki minntust \u00feeir \u00feinna d\u00e1semdarverka, sem \u00fe\u00fa haf\u00f0ir gj\u00f6rt \u00feeim; forhertu sig og \u00ed \u00feeirra \u00fever\u00fa\u00f0, v\u00f6ldu yfirmenn til a\u00f0 lei\u00f0a \u00fe\u00e1 til baka til \u00fer\u00e6ld\u00f3msins. En \u00fe\u00fa Gu\u00f0 fyrirgefningarinnar ert n\u00e1\u00f0ugur og miskunnsamur, langlundarsamur og mikill a\u00f0 miskunn og yfirgafst \u00fe\u00e1 ekki.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Jafnvel \u00fe\u00e1, er \u00feeir h\u00f6f\u00f0u gj\u00f6rt s\u00e9r steyptan k\u00e1lf, og s\u00f6g\u00f0u: \u201e\u00feetta er \u00feinn Gu\u00f0, sem leiddi \u00feig \u00fat af Egyptalandi,\u201c og h\u00f6f\u00f0ust a\u00f0 st\u00f3rar gu\u00f0lastanir.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00de\u00e1 yfirgafstu \u00fe\u00e1 samt ekki \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rkunni, vegna \u00feinnar miklu miskunnsemi. Sk\u00fdst\u00f3lpinn veik ekki fr\u00e1 \u00feeim um daga, til \u00feess a\u00f0 lei\u00f0a \u00fe\u00e1 \u00e1 veginum, n\u00e9 eldst\u00f3lpinn \u00e1 n\u00f3ttunni, til a\u00f0 l\u00fdsa \u00feeim \u00e1 \u00feeim vegi, sem \u00feeir \u00e1ttu a\u00f0 fara.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>\u00deinn g\u00f3\u00f0a anda gafstu til a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fe\u00e1 vitra, og ekki h\u00e9lst \u00fe\u00fa Manna fr\u00e1 munni \u00feeirra, og veittir \u00feeim vatn vi\u00f0 \u00feorsta \u00feeirra.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00cd fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r forsorga\u00f0ir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rkunni, svo \u00fe\u00e1 ekkert skorti; \u00feeirra f\u00f6t fyrntust ekki og \u00feeirra f\u00e6tur b\u00f3lgnu\u00f0u ekki.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00de\u00fa gafst \u00feeim konungsr\u00edki og \u00fej\u00f3\u00f0ir og skiptir \u00feeim hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0, svo \u00feeir eignu\u00f0ust landi\u00f0 S\u00edhon, og land k\u00f3ngsins \u00ed Hesbon og land Ogs k\u00f3ngs \u00ed Basan.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Og gj\u00f6r\u00f0ir afkomendur \u00feeirra svo marga, sem stj\u00f6rnur \u00e1 himni, og \u00fe\u00fa fluttir \u00fe\u00e1 inn \u00ed \u00fea\u00f0 land, sem \u00fe\u00fa haf\u00f0ir heiti\u00f0 fe\u00f0rum \u00feeirra, a\u00f0 \u00feeir \u00e6ttu a\u00f0 fara \u00feanga\u00f0 og eignast \u00fea\u00f0.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Og afkomendur \u00feeirra komust \u00feanga\u00f0 og eignu\u00f0ust landi\u00f0 og \u00fe\u00fa ni\u00f0ur\u00ferykktir fyrir \u00fe\u00e1, \u00feeim sem bjuggu \u00ed landinu; Kanaansmenn gafst \u00fe\u00fa \u00ed \u00feeirra hendur og k\u00f3nga \u00feeirra og \u00fej\u00f3\u00f0irnar \u00ed landinu, svo a\u00f0 \u00feeir breyttu vi\u00f0 \u00fe\u00e1 eins og \u00feeir vildu.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Og \u00feeir t\u00f3ku rambygg\u00f0ar borgir og feitt land og eignu\u00f0ust h\u00fas full af alls konar g\u00e6\u00f0um, brunna \u00fath\u00f6ggna \u00ed steini, v\u00edngar\u00f0a, vi\u00f0smj\u00f6rsvi\u00f0argar\u00f0a og aldintr\u00e9, full matar. \u00deeir neyttu og ur\u00f0u mettir og feitir og lif\u00f0u \u00ed s\u00e6ll\u00edfi sakir \u00feinnar miklu g\u00f3\u00f0girni. <br \/><a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>En \u00feeir ur\u00f0u \u00feverbrotnir og \u00f3hl\u00fd\u00f0ugir vi\u00f0 \u00feig og k\u00f6stu\u00f0u l\u00f6gm\u00e1li \u00fe\u00ednu \u00e1 bak s\u00e9r aftur, og dr\u00e1pu sp\u00e1menn \u00fe\u00edna, sem a\u00f0v\u00f6ru\u00f0u \u00fe\u00e1, a\u00f0 \u00feeir skyldu sn\u00faa s\u00e9r til \u00fe\u00edn; og fr\u00f6mdu miklar sm\u00e1nanir.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gafstu \u00fe\u00e1 \u00ed hendur \u00f3vina \u00feeirra, er \u00fej\u00e1\u00f0u \u00fe\u00e1, en \u00e1 t\u00edma \u00ferengingarinnar hr\u00f3pu\u00f0u \u00feeir til \u00fe\u00edn, og \u00fe\u00fa heyr\u00f0ir \u00fe\u00e1 af himnum ofan, og sakir \u00feinnar miklu miskunnsemi gafstu \u00feeim frelsara, og \u00feeir frelsu\u00f0u \u00fe\u00e1 \u00far h\u00f6ndum \u00f3vina \u00feeirra;<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>En \u00fe\u00e1 \u00feeir voru komnir til hv\u00edldar, sneru \u00feeir s\u00e9r til a\u00f0 gj\u00f6ra illt fyrir \u00fe\u00e9r; \u00fe\u00e1 gafstu \u00fe\u00e1 \u00ed hendur \u00f3vina \u00feeirra svo \u00feeir drottnu\u00f0u yfir \u00feeim; \u00fe\u00e1 sneru \u00feeir s\u00e9r og hr\u00f3pu\u00f0u til \u00fe\u00edn, og \u00fe\u00fa heyr\u00f0ir \u00fe\u00e1 fr\u00e1 himni ofan, og frelsa\u00f0ir \u00fe\u00e1 \u00ed m\u00f6rg skipti sakir \u00feinnar miskunnar.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00de\u00fa \u00e1minntir \u00fe\u00e1 innilega a\u00f0 \u00feeir l\u00e9tu s\u00e9r sn\u00faa til l\u00f6gm\u00e1ls \u00fe\u00edns, en \u00feeir gj\u00f6r\u00f0ust frekir og g\u00e1fu ekki gaum a\u00f0 bo\u00f0um \u00fe\u00ednum og syndgu\u00f0u \u00e1 m\u00f3ti l\u00f6gm\u00e1li \u00fe\u00ednu; en s\u00e1 ma\u00f0ur sem g\u00e6tir \u00feeirra, hann mun lifa; en \u00feeir \u00feversk\u00f6llu\u00f0ust, gj\u00f6r\u00f0ust har\u00f0sv\u00edra\u00f0ir og hl\u00fdddu ekki,<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>en \u00fe\u00fa dr\u00f3st <span class='VideyAth'>(samt a\u00f0 straffa)<\/span> \u00ed m\u00f6rg \u00e1r, og \u00e1minntir \u00fe\u00e1 me\u00f0 anda \u00fe\u00ednum fyrir sp\u00e1menn \u00fe\u00edna, en ekki sneru \u00feeir eyrum s\u00ednum a\u00f0 \u00fev\u00ed; \u00feess vegna ofurgafstu \u00fe\u00e1 \u00ed hendur \u00fej\u00f3\u00f0anna \u00ed l\u00f6ndunum;<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>en s\u00f6kum \u00feinnar mikillrar miskunnsemdar gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00fa ekki alveg \u00fat af vi\u00f0 \u00fe\u00e1, e\u00f0a yfirgafst \u00fe\u00e1, \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa ert Gu\u00f0 n\u00e1\u00f0ugur og miskunnsamur.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Og n\u00fa, Gu\u00f0 vor! \u00fe\u00fa mikli, sterki og \u00f3ttalegi Gu\u00f0, sem g\u00e6tir fyrirheita \u00feinna og miskunnseminnar, l\u00e1t \u00fe\u00e9r eigi litla s\u00fdnast alla arm\u00e6\u00f0u \u00fe\u00e1, sem fr\u00e1 d\u00f6gum enna ass\u00fdrisku k\u00f3nga og allt til \u00feessa dags hefir m\u00e6tt konungum vorum, yfirm\u00f6nnum, prestum, sp\u00e1m\u00f6nnum, og fe\u00f0rum vorum og gj\u00f6rvallri \u00fej\u00f3\u00f0 vorri.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>\u00de\u00fa ert r\u00e9ttl\u00e1tur \u00ed \u00f6llu sem \u00fe\u00fa hefir l\u00e1ti\u00f0 koma yfir oss, \u00fe\u00fa hefir au\u00f0s\u00fdnt oss g\u00e6sku, en v\u00e9r h\u00f6fum breytt \u00f3gu\u00f0lega;<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>og svo vorir k\u00f3ngar, yfirmenn, prestar og fe\u00f0ur, hafa ekki heldur breytt eftir l\u00f6gm\u00e1li \u00fe\u00ednu og ekki athuga\u00f0 bo\u00f0 \u00fe\u00edn og a\u00f0varanir, me\u00f0 hv\u00f6rjum \u00fe\u00fa haf\u00f0ir a\u00f0vara\u00f0 \u00fe\u00e1,<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>og ekki hafa \u00feeir \u00fej\u00f3na\u00f0 \u00fe\u00e9r og ekki sn\u00fai\u00f0 s\u00e9r fr\u00e1 sinni vondu breytni \u00ed konungstign sinni, \u00ed velgengninni, er \u00fe\u00fa \u00fathluta\u00f0ir \u00feeim og \u00ed \u00fev\u00ed v\u00ed\u00f0lenda og frj\u00f3vsama landi er \u00fe\u00fa veittir \u00feeim.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>Sj\u00e1! v\u00e9r erum \u00fer\u00e6lar og landi\u00f0 sem \u00fe\u00fa gafst fe\u00f0rum vorum, svo \u00feeir nytu \u00e1vaxtanna og g\u00e6\u00f0anna, sj\u00e1! \u00fear erum v\u00e9r \u00fer\u00e6lar.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>Margfaldan \u00e1g\u00f3\u00f0a veitir \u00fea\u00f0 k\u00f3ngunum, sem \u00fe\u00fa hefir sett yfir oss, vegna synda vorra; og \u00feeir drottna yfir l\u00edk\u00f6mum vorum og f\u00e9na\u00f0i vorum, eftir eigin hug\u00fe\u00f3tta, og v\u00e9r erum \u00ed st\u00f3rri ney\u00f0.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\">V. 9. c. \u00de. e. Rau\u00f0ahafi\u00f0.  V. 32. a. Sj\u00e1 5 M\u00f3s. 5,12\u201315. 3 M\u00f3s. 23,3\u20135.15\u201321.24\u201328.36. Sbr. 26,35. b. 3 M\u00f3s. 25,1\u20138.<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>A\u00f0 afli\u00f0inni laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0inni halda \u00cdsraelsmenn i\u00f0runarh\u00e1t\u00ed\u00f0 l\u00f6gm\u00e1lsins. 1\u00c1 tuttugasta og fj\u00f3r\u00f0a deginum \u00ed \u00feessum m\u00e1nu\u00f0i, samans\u00f6fnu\u00f0ust \u00cdsraelsmenn me\u00f0 f\u00f6stu og sekkjum og moldu yfir h\u00f6f\u00f0um s\u00e9r.2Og \u00feeir skildu \u00cdsraelsni\u00f0ja fr\u00e1 \u00f6llum \u00fatlendra afkomendum og \u00feeir st\u00f3\u00f0u upp og me\u00f0kenndu s\u00ednar syndir og sinna fe\u00f0ra syndir.3Og hv\u00f6r st\u00f3\u00f0 upp \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0; og menn l\u00e1su \u00ed l\u00f6gm\u00e1lsb\u00f3k Gu\u00f0s Drottins \u00feeirra, fj\u00f3r\u00f0a part \u00far deginum og fj\u00f3r\u00f0a part af deginum gj\u00f6r\u00f0u \u00feeir j\u00e1tningu s\u00edna og f\u00e9llu fram fyrir Drottin sinn Gu\u00f0.4Og Jes\u00faa og Bani og Kadmiel, Sebania, Bunni, Serebia, Banni, Hanani stigu upp \u00ed r\u00e6\u00f0upall Lev\u00edtanna og \u00e1k\u00f6llu\u00f0u me\u00f0 h\u00e1rri r\u00f6ddu Drottin, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/nehemiabok-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21271","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21271","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21271"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21271\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21271"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}