{"id":21110,"date":"2018-01-02T01:00:25","date_gmt":"2018-01-02T01:00:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/fyrri-samuelsbok-25-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:00:25","modified_gmt":"2018-01-02T01:00:25","slug":"fyrri-samuelsbok-25-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/fyrri-samuelsbok-25-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri Sam\u00faelsb\u00f3k 25. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">Sam\u00fael deyr. Nabals a\u00f0sj\u00e1lni.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Og Sam\u00fael d\u00f3, og allur \u00cdsrael samansafna\u00f0ist, og \u00feeir syrg\u00f0u hann, og gr\u00f3fu hann \u00ed s\u00ednu h\u00fasi \u00ed Rama <span class='VideyAth'>d)<\/span>. Og Dav\u00ed\u00f0 t\u00f3k sig upp og f\u00f3r \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina Paran <span class='VideyAth'>d)<\/span>.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>En \u00fear var ma\u00f0ur \u00ed Maon, sem haf\u00f0i b\u00fa \u00e1 Karmel, og hann var flugr\u00edkur, \u00e1tti 3 \u00fe\u00fasund sau\u00f0i s\u00edna \u00e1 Karmel.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>En ma\u00f0urinn h\u00e9t Nabal og nafn hans konu var Ab\u00edgael, og konan var vitur og fr\u00ed\u00f0 s\u00fdnum, en ma\u00f0urinn har\u00f0ur og vondur vi\u00f0ureignar, og af Kalebs\u00e6tt <span class='VideyAth'>f)<\/span>.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Og Dav\u00ed\u00f0 fr\u00e9tti \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni a\u00f0 Nabal klippti s\u00edna sau\u00f0i.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sendi Dav\u00ed\u00f0 10 s\u00edna sveina, og sag\u00f0i til sveinanna: fari\u00f0 til Karmel, og gangi\u00f0 fyrir Nabal, og spyrji\u00f0 \u00ed m\u00ednu nafni um hans velvegnan,<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>og m\u00e6li\u00f0 svo: Gu\u00f0 gefi \u00fe\u00e9r lukku! vegni \u00fe\u00e9r vel og \u00fe\u00ednu h\u00fasi og \u00f6llu er \u00fe\u00e9r vi\u00f0v\u00edkur!<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>og n\u00fa hefi eg heyrt a\u00f0 \u00feeir klippi \u00fe\u00edna sau\u00f0i; og n\u00fa hafa \u00fe\u00ednir hir\u00f0arar veri\u00f0 me\u00f0 oss, v\u00e9r h\u00f6fum ekkert mein gj\u00f6rt \u00feeim, og ekkert hafa \u00feeir misst nokkurn t\u00edma svo lengi sem \u00feeir voru \u00e1 Karmel.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Spyr \u00fe\u00fa \u00fe\u00edna sveina, \u00feeir munu l\u00e1ta \u00feig vita \u00fea\u00f0\u2014og svo \u00f3ska eg a\u00f0 m\u00ednir sveinar finni n\u00e1\u00f0 \u00ed \u00fe\u00ednum augum, \u00fev\u00ed \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0isdegi erum v\u00e9r til \u00fe\u00edn komnir, gef\u00f0u, vinur! \u00fe\u00ednum \u00fej\u00f3num og \u00fe\u00ednum syni Dav\u00ed\u00f0, \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa hefir fyrir hendi <span class='VideyAth'>g)<\/span>!<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>og svo komu Dav\u00ed\u00f0s sveinar og t\u00f6lu\u00f0u vi\u00f0 Nabal einmitt \u00feessi or\u00f0, \u00ed Dav\u00ed\u00f0s nafni, og \u00fe\u00f6gnu\u00f0u svo.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>En Nabal svara\u00f0i \u00fej\u00f3num Dav\u00ed\u00f0s og m\u00e6lti: hv\u00f6r er Dav\u00ed\u00f0? og hv\u00f6r er \u00cdsa\u00edson? n\u00fa \u00e1 d\u00f6gum gefast margir \u00fe\u00e9narar sem strj\u00faka fr\u00e1 s\u00ednum h\u00fassb\u00e6ndum.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Og skal eg n\u00fa taka mitt brau\u00f0 og mitt vatn og mitt kj\u00f6t sem eg hefi sl\u00e1tra\u00f0 handa \u00feeim sem klippa f\u00e9\u00f0, og gefa \u00fea\u00f0 m\u00f6nnum, sem eg ekki \u00feekki, ekki veit hva\u00f0an eru?<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Og Dav\u00ed\u00f0s sveinar f\u00f3ru s\u00edna lei\u00f0, sneru til baka, komu og s\u00f6g\u00f0u honum einmitt \u00f6ll \u00feessi or\u00f0.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00de\u00e1 m\u00e6lti Dav\u00ed\u00f0 til sinna manna: gir\u00f0ist n\u00fa, hv\u00f6r og einn y\u00f0ar, s\u00ednu sver\u00f0i! og \u00feeir girtust, hv\u00f6r s\u00ednu sver\u00f0i, og Dav\u00ed\u00f0 girtist og s\u00ednu sver\u00f0i, og \u00feeir f\u00f3ru me\u00f0 Dav\u00ed\u00f0, n\u00e1l\u00e6gt 4 hundru\u00f0 manns, og tv\u00f6 hundru\u00f0 voru eftir hj\u00e1 farangrinum.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>En sveinn nokkur af sveinunum sag\u00f0i Abigael, konu Nabals fr\u00e1, og m\u00e6lti: heyr\u00f0u! Dav\u00ed\u00f0 hefir sent sendimenn \u00far ey\u00f0im\u00f6rkinni, til a\u00f0 \u00f3ska h\u00fassb\u00f3nda vorum til lukku, en hann j\u00f3s yfir \u00fe\u00e1 f\u00e1ryr\u00f0um,<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>og mennirnir eru miki\u00f0 g\u00f3\u00f0ir vi\u00f0 oss, og \u00feeir hafa ekkert mein gj\u00f6rt oss, og v\u00e9r h\u00f6fum aldrei misst neitt, svo lengi sem v\u00e9r vorum me\u00f0 \u00feeim, \u00fe\u00e1 v\u00e9r vorum \u00e1 m\u00f6rkinni.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00deeir voru sem gir\u00f0ing \u00ed kringum oss dag og n\u00f3tt, svo lengi sem v\u00e9r vorum me\u00f0 \u00feeim og h\u00e9ldum f\u00e9nu til haga.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Og hugsa\u00f0u n\u00fa um og sj\u00e1\u00f0u til hva\u00f0 \u00fe\u00fa skalt gj\u00f6ra, \u00fev\u00ed \u00f3lukka er b\u00fain vorum h\u00fassb\u00f3nda og \u00f6llu hans h\u00fasi, og hann er sl\u00e6mur ma\u00f0ur <span class='VideyAth'>a)<\/span>, svo ma\u00f0ur getur ei vi\u00f0 hann tala\u00f0.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00de\u00e1 br\u00e1 Ab\u00edgael vi\u00f0, og t\u00f3k 2 hundru\u00f0 brau\u00f0, og 2 v\u00ednbr\u00fasa og 5 uppso\u00f0na sau\u00f0i, og 5 m\u00e6lira af steiktu axi, og hundra\u00f0 \u00feurra v\u00ednberjaklasa og 2 hundru\u00f0 f\u00edkjuk\u00f6kur, og klyfja\u00f0i asna,<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>og m\u00e6lti til sveinanna: fari\u00f0 \u00e1 undan m\u00e9r! sj\u00e1! eg kem \u00e1 eftir y\u00f0ur. En manni s\u00ednum Nabal sag\u00f0i h\u00fan ekkert.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i, \u00fe\u00e1 h\u00fan rei\u00f0 asnanum og var komin ni\u00f0ur af fjallinu, sj\u00e1! \u00fe\u00e1 komu \u00feeir Dav\u00ed\u00f0 og hans menn \u00e1 m\u00f3ti henni, og h\u00fan hitti \u00fe\u00e1 \u00fear.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>En Dav\u00ed\u00f0 haf\u00f0i sagt: j\u00e1! til einkis hefi eg vernda\u00f0 allt, sem \u00feeim manni tilheyr\u00f0i \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni, svo a\u00f0 ekkert af \u00fev\u00ed tapa\u00f0ist nokkurn t\u00edma sem hann \u00e1tti, og hann hefur launa\u00f0 m\u00e9r gott me\u00f0 illu <span class='VideyAth'>b)<\/span>.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>svo gj\u00f6ri Gu\u00f0 Dav\u00ed\u00f0s \u00f3vinum og enn fremur, eg skal ekki l\u00e1ta eftir ver\u00f0a \u00feegar birtir \u00e1 morgun, af \u00f6llu sem hann \u00e1, ekki svo miki\u00f0 sem hund <span class='VideyAth'>c)<\/span>!<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>En er Ab\u00edgael s\u00e1 Dav\u00ed\u00f0, st\u00e9 h\u00fan skj\u00f3tast ni\u00f0ur af asnanum og f\u00e9ll fram fyrir Dav\u00ed\u00f0 \u00e1 sitt andlit, og beyg\u00f0i sig til jar\u00f0ar,<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>og f\u00e9ll honum til f\u00f3ta og m\u00e6lti: minn herra! allt bitni \u00e1 m\u00e9r! leyf\u00f0u samt \u00feinni amb\u00e1tt a\u00f0 tala fyrir \u00fe\u00ednum eyrum, og heyr\u00f0u tal \u00feinnar amb\u00e1ttar.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Minn herra gefi engan gaum \u00feessum vonda manni, Nabal, \u00fev\u00ed eins og hans nafn \u00fe\u00fd\u00f0ir, svo er hann Fl\u00f3n <span class='VideyAth'>(Nabal)<\/span> er hans nafn, og fl\u00f3nskan er honum eiginleg, og eg, \u00fe\u00edn \u00feerna, hefi ekki s\u00e9\u00f0 sveina m\u00edns herra, sem \u00fe\u00fa sendir.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Og n\u00fa, minn herra! svo sannarlega sem Drottinn lifir, og \u00fe\u00edn s\u00e1l lifir, Drottinn hefir aftra\u00f0 \u00fe\u00e9r fr\u00e1 a\u00f0 \u00fathella bl\u00f3\u00f0i og a\u00f0 \u00fatvega \u00fe\u00e9r li\u00f0semd me\u00f0 eigin hendi, og s\u00e9u \u00fe\u00ednir \u00f3vinir sem Nabal, og \u00feeir sem leita \u00f3fara herra m\u00edns!<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Og \u00feessa g\u00e1fu, sem \u00fe\u00edn \u00feerna hefur f\u00e6rt m\u00ednum herra, l\u00e1ti\u00f0 gefa hana sveinunum sem fylgja m\u00ednum herra.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Fyrirgef afbrot \u00feinnar amb\u00e1ttar! \u00fev\u00ed veita mun Drottinn m\u00ednum herra sta\u00f0fast h\u00fas, \u00fev\u00ed minn herra str\u00ed\u00f0ir Drottins str\u00ed\u00f0 <span class='VideyAth'>d)<\/span>, og ekki mun illt hj\u00e1 \u00fe\u00e9r finnast svo lengi sem \u00fe\u00fa lifir.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>Og \u00fe\u00f3 ma\u00f0ur s\u00e9 risinn upp til a\u00f0 ofs\u00e6kja \u00feig, og s\u00e6kjast eftir \u00fe\u00ednu l\u00edfi, \u00fe\u00e1 s\u00e9 l\u00edf m\u00edns herra bundi\u00f0 \u00ed bindini enna lifendu hj\u00e1 Drottni, \u00fe\u00ednum Gu\u00f0i, og l\u00edfi \u00feinna \u00f3vina mun hann mitt \u00far sl\u00f6ngunni burt \u00feeyta.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Og \u00feegar Drottinn hefir algj\u00f6rt \u00feetta vi\u00f0 minn herra eins og hann hefir \u00fe\u00e9r g\u00f3\u00f0u heiti\u00f0, og gj\u00f6rt \u00feig a\u00f0 fursta yfir \u00cdsrael <span class='VideyAth'>e)<\/span>:<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>svo mun \u00fea\u00f0 ekki ver\u00f0a til \u00e1steytingar e\u00f0a til hjartasorgar m\u00ednum herra, a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir \u00fathellt bl\u00f3\u00f0i \u00e1n orsaka, og a\u00f0 minn herra hafi hj\u00e1lpa\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r. En \u00feegar Drottinn gj\u00f6rir vel vi\u00f0 minn herra, svo minnstu \u00feinnar amb\u00e1ttar. <br \/><a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Og Dav\u00ed\u00f0 m\u00e6lti til Ab\u00edgael: lofa\u00f0ur veri Drottinn \u00cdsraels Gu\u00f0, sem sendi \u00feig \u00ed dag \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r!<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>Og vegsama\u00f0 s\u00e9 \u00feitt vit, og vegs\u00f6mu\u00f0 s\u00e9rt \u00fe\u00fa, a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00ed dag hindrar mig fr\u00e1 a\u00f0 baka m\u00e9r bl\u00f3\u00f0skuld, og \u00fatvega m\u00e9r hj\u00e1lp me\u00f0 minni hendi!<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>En svo sannarlega sem Drottinn lifir, \u00cdsraels Gu\u00f0, sem aftra\u00f0i m\u00e9r fr\u00e1 a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fe\u00e9r illt! hef\u00f0ir \u00fe\u00fa ekki svo flj\u00f3tt komi\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r, \u00fe\u00e1 hef\u00f0i ekkert af Nabal veri\u00f0 eftir or\u00f0i\u00f0 \u00ed birtingu \u00e1 morgun, ekki einn hundur.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>Og Dav\u00ed\u00f0 t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti af hennar hendi \u00fev\u00ed sem h\u00fan kom me\u00f0, og sag\u00f0i til hennar: far \u00fe\u00fa \u00ed fri\u00f0i heim til \u00fe\u00edn! sj\u00e1! eg hefi hl\u00fdtt \u00feinni raust og gefi\u00f0 gaum \u00fe\u00ednu m\u00e1lefni <span class='VideyAth'>a)<\/span>.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>En er Ab\u00edgael kom til Nabals, sj\u00e1! \u00fe\u00e1 haf\u00f0i hann veislu \u00ed s\u00ednu h\u00fasi, sem k\u00f3ngaveislu, og hjarta Nabals var k\u00e1tt og hann var \u00e6\u00f0i drukkinn. Og h\u00fan l\u00e9t hann ekkert vita, hv\u00f6rki st\u00f3rt n\u00e9 sm\u00e1tt, allt til \u00feess a\u00f0 morgni. <br \/><a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i um morguninn, \u00feegar <span class='VideyAth'>(\u00f6li\u00f0)<\/span> var runni\u00f0 af Nabal, \u00fe\u00e1 sag\u00f0i kona hans honum fr\u00e1 \u00feessu; \u00fe\u00e1 d\u00f3 hans hjarta \u00ed hans kropp, og hann var\u00f0 sem steinn.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>Og n\u00fa li\u00f0u h\u00e9r um bil 10 dagar, \u00fe\u00e1 sl\u00f3 <span class='VideyAth'>b)<\/span> Drottinn Nabal, svo hann d\u00f3.<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>Og \u00fe\u00e1 Dav\u00ed\u00f0 heyr\u00f0i a\u00f0 Nabal v\u00e6ri dau\u00f0ur, m\u00e6lti hann: lofa\u00f0ur s\u00e9 Drottinn, sem heyrt hefir \u00fe\u00e1 sv\u00edvir\u00f0ing er Nabal gj\u00f6r\u00f0i m\u00e9r og sem h\u00e9lt s\u00ednum \u00fej\u00f3n fr\u00e1 illu, en Nabals vonsku hefir Drottinn l\u00e1ti\u00f0 bitna \u00e1 sj\u00e1lfs hans h\u00f6f\u00f0i. Og Dav\u00ed\u00f0 sendi og tala\u00f0i vi\u00f0 Ab\u00edgael, til a\u00f0 l\u00e1ta taka s\u00e9r hana fyrir konu.<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>Og \u00fej\u00f3nar Dav\u00ed\u00f0s komu til Ab\u00edgael \u00ed Karmel, og t\u00f6lu\u00f0u vi\u00f0 hana og s\u00f6g\u00f0u: Dav\u00ed\u00f0 hefir sent oss til \u00fe\u00edn, til a\u00f0 taka \u00feig handa s\u00e9r fyrir konu.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>\u00de\u00e1 st\u00f3\u00f0 h\u00fan upp, og beyg\u00f0i sitt andlit til jar\u00f0ar og m\u00e6lti: sj\u00e1! \u00fe\u00edn \u00feerna er sem amb\u00e1tt, til a\u00f0 \u00fevo f\u00e6tur \u00e1 \u00fej\u00f3num m\u00edns herra.<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>Og Ab\u00edgael t\u00f3k sig flj\u00f3tt upp, og rei\u00f0 \u00e1 asna, og 5 hennar \u00feernur fylgdu henni, og h\u00fan f\u00f3r me\u00f0 sendim\u00f6nnum Dav\u00ed\u00f0s, og var\u00f0 hans kona. <br \/><a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>L\u00edka t\u00f3k Dav\u00ed\u00f0 s\u00e9r Ah\u00edn\u00f3am af Jesreel, og b\u00e1\u00f0ar ur\u00f0u hans konur.<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>En S\u00e1l gaf Mikal d\u00f3ttur s\u00edna konu Dav\u00ed\u00f0s, Palti Laissyni af Gallim.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\">V. 1. d. Kap. 28,3. e. Gen. 21,21.  V. 3. f. J\u00f3s. 15,13.  V. 8. g. Kap. 10,7. D\u00f3m. 9,33.  V. 17. a. Hebr. Bel\u00edalssonur sbr v. 25. 2 Sam. 20,1.  V. 21. b. Kap. 24,18. S\u00e1lm. 35,12.  V. 22. c. Sbr. v. 34. 1 K\u00f3ng. 14,10. 2 K\u00f3ng. 9,8.  V. 28. d. Kap. 18,17.  V. 30. e. 2 Sam. 5,2.  V. 35. a. Hebr. me\u00f0teki\u00f0 e\u00f0a upphafi\u00f0 \u00feitt andlit.  V. 38. b. 2 Sam. 12,15.<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sam\u00fael deyr. Nabals a\u00f0sj\u00e1lni. 1Og Sam\u00fael d\u00f3, og allur \u00cdsrael samansafna\u00f0ist, og \u00feeir syrg\u00f0u hann, og gr\u00f3fu hann \u00ed s\u00ednu h\u00fasi \u00ed Rama d). Og Dav\u00ed\u00f0 t\u00f3k sig upp og f\u00f3r \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina Paran d).2En \u00fear var ma\u00f0ur \u00ed Maon, sem haf\u00f0i b\u00fa \u00e1 Karmel, og hann var flugr\u00edkur, \u00e1tti 3 \u00fe\u00fasund sau\u00f0i s\u00edna \u00e1 Karmel.3En ma\u00f0urinn h\u00e9t Nabal og nafn hans konu var Ab\u00edgael, og konan var vitur og fr\u00ed\u00f0 s\u00fdnum, en ma\u00f0urinn har\u00f0ur og vondur vi\u00f0ureignar, og af Kalebs\u00e6tt f).4Og Dav\u00ed\u00f0 fr\u00e9tti \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni a\u00f0 Nabal klippti s\u00edna sau\u00f0i.5\u00de\u00e1 sendi Dav\u00ed\u00f0 10 s\u00edna sveina, og sag\u00f0i til sveinanna: <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/fyrri-samuelsbok-25-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21110","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21110","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21110"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21110\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21110"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}