{"id":21079,"date":"2018-01-02T01:00:14","date_gmt":"2018-01-02T01:00:14","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/domarabokin-19-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:00:14","modified_gmt":"2018-01-02T01:00:14","slug":"domarabokin-19-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/domarabokin-19-kafli\/","title":{"rendered":"D\u00f3marab\u00f3kin 19. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">Illvirki Gibe\u00edta.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00c1 \u00feeim d\u00f6gum, \u00fe\u00e1 enginn k\u00f3ngur var \u00ed \u00cdsrael, bj\u00f3 ma\u00f0ur nokkur af Lev\u00ed \u00e6tt sem framandi var \u00ed Efraimsfjallbygg\u00f0um, s\u00e1 hinn sami t\u00f3k s\u00e9r hj\u00e1 konu fr\u00e1 Betlehem \u00ed J\u00fada,<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>og \u00feessi hj\u00e1kona var honum \u00f3tr\u00fa, og f\u00f3r fr\u00e1 honum \u00ed s\u00edns f\u00f6\u00f0urs h\u00fas \u00ed Betlehem \u00ed J\u00fada og var \u00fear \u00ed 4 m\u00e1nu\u00f0i.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>En b\u00f3ndi hennar t\u00f3k sig upp og f\u00f3r eftir henni, og vildi tala \u00ed k\u00e6rleika vi\u00f0 hana, til a\u00f0 f\u00e1 hana heim <span class='VideyAth'>(til s\u00edn)<\/span> aftur, og hann haf\u00f0i me\u00f0 s\u00e9r svein sinn og tvo asna. H\u00fan leiddi hann \u00fe\u00e1 inn \u00ed h\u00fas f\u00f6\u00f0ur s\u00edns, og sem fa\u00f0ir \u00feessarar ungu konu s\u00e1 hann, var\u00f0 hann gla\u00f0ur vi\u00f0, \u00feegar hann fann hann.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Og m\u00e1gur hans, fa\u00f0ir kvinnunnar, h\u00e9lt honum, svo hann var hj\u00e1 honum \u00ed \u00ferj\u00e1 daga, \u00feeir \u00e1tu <span class='VideyAth'>(saman)<\/span> og drukku og voru \u00fear um n\u00f3ttina.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00c1 \u00feeim fj\u00f3r\u00f0a degi risu \u00feau mj\u00f6g \u00e1rla upp, og hann bj\u00f3 sig til, og vildi fara af sta\u00f0. \u00de\u00e1 sag\u00f0i fa\u00f0ir konunnar til m\u00e1gs s\u00edns, hresstu \u00feig n\u00fa \u00e1\u00f0ur \u00e1 litlu brau\u00f0i, og a\u00f0 \u00fev\u00ed b\u00fanu megi\u00f0 \u00fei\u00f0 fara af sta\u00f0.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00de\u00e1 settust \u00feeir ni\u00f0ur, \u00e1tu b\u00e1\u00f0ir til samans og drukku; s\u00ed\u00f0an sag\u00f0i fa\u00f0ir kvinnunnar til mannsins: k\u00e6ri! gj\u00f6r\u00f0u \u00fea\u00f0 n\u00fa fyrir mig, vertu h\u00e9rna \u00ed n\u00f3tt, og l\u00e1t \u00fe\u00e9r vera glatt \u00ed ge\u00f0i.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>En sem ma\u00f0urinn st\u00f3\u00f0 <span class='VideyAth'>(samt)<\/span> upp, og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 fara af sta\u00f0, nau\u00f0a\u00f0i m\u00e1gur hans \u00e1 honum, \u00feanga\u00f0 til, a\u00f0 hann var \u00fear um n\u00f3ttina.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>En um morguninn, fimmta daginn, bj\u00f3st hann snemmindis til fer\u00f0ar, og vildi fara af sta\u00f0; \u00fe\u00e1 sag\u00f0i fa\u00f0ir konunnar <span class='VideyAth'>(enn n\u00fa)<\/span> til hans: k\u00e6ri! hresstu \u00feig nokku\u00f0! og \u00feeir dv\u00f6ldu inn til \u00feess degi halla\u00f0i, og neyttu b\u00e1\u00f0ir saman.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>En sem ma\u00f0urinn reis upp og vildi fara af sta\u00f0 me\u00f0 hj\u00e1konu sinni og sveininum, \u00fe\u00e1 sag\u00f0i m\u00e1gur hans, fa\u00f0ir kvinnunnar, til hans: sj\u00e1! degi hallar, og komi\u00f0 er a\u00f0 kv\u00f6ldi, k\u00e6ri, vertu h\u00e9r \u00ed n\u00f3tt; senn er or\u00f0i\u00f0 m\u00e1l a\u00f0 n\u00e1tta sig; \u00e6 vertu \u00ed n\u00f3tt og gj\u00f6r\u00f0u \u00feig gla\u00f0an. En \u00e1 morgun skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 taka ykkur snemma upp, og fara ykkar veg, svo \u00fe\u00fa getir n\u00e1\u00f0 heim til \u00fe\u00edn.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>En ma\u00f0urinn vildi ekki vera \u00fear um n\u00f3ttina, heldur bj\u00f3 sig til og f\u00f3r af sta\u00f0, og kom \u00ed n\u00e1nd vi\u00f0 Jeb\u00fas, <span class='VideyAth'>(\u00fea\u00f0 er Jer\u00fasalem)<\/span>, og hann haf\u00f0i me\u00f0 s\u00e9r 2 asna klyfja\u00f0a, og hj\u00e1kona hans fylgdi honum.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Sem \u00feau komu n\u00fa til Jeb\u00fas, var mj\u00f6g \u00e1 dag li\u00f0i\u00f0, og sveinninn sag\u00f0i til h\u00fassb\u00f3nda s\u00edns: \u00e6! kondu og sn\u00fa\u00f0u <span class='VideyAth'>(h\u00e9r af vegi)<\/span> inn \u00ed \u00feenna Jeb\u00fas\u00edta sta\u00f0, og verum h\u00e9r \u00ed n\u00f3tt.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i h\u00fassb\u00f3ndinn til hans: ekki skulum vi\u00f0 <span class='VideyAth'>(af vegi)<\/span> sn\u00faa inn \u00ed \u00feennan framandi sta\u00f0, sem ekki heyrir \u00cdsraelsb\u00f6rnum til, heldur skulum vi\u00f0 fara yfir til G\u00edbea.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Og hann sag\u00f0i til sveins s\u00edns: halt\u00fa \u00e1fram, svo vi\u00f0 getum fengi\u00f0 n\u00e1ttsta\u00f0 \u00ed \u00f6\u00f0rum hv\u00f6rjum sta\u00f0num G\u00edbea e\u00f0a Rama.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Svo h\u00e9ldu \u00feeir \u00e1fram s\u00edna lei\u00f0, og s\u00f3lsett var\u00f0 fyrir \u00feeim, \u00feegar \u00feeir voru komnir n\u00e1l\u00e6gt G\u00edbea, sem heyr\u00f0i Benjamin\u00edtum til.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Og \u00feeir sneru \u00feanga\u00f0, til a\u00f0 geta or\u00f0i\u00f0 um n\u00f3ttina \u00ed G\u00edbea. En sem <span class='VideyAth'>(Lev\u00edtinn)<\/span> kom \u00fear inn, sta\u00f0n\u00e6mdist hann \u00e1 str\u00e6ti sta\u00f0arins, \u00fev\u00ed \u00fear var enginn sem taka vildi m\u00f3ti \u00feeim, til a\u00f0 lj\u00e1 \u00feeim h\u00fas hj\u00e1 s\u00e9r, til a\u00f0 vera \u00ed um n\u00f3ttina.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>En sj\u00e1! \u00fear kom einn gamall ma\u00f0ur a\u00f0 kv\u00f6ldi, fr\u00e1 sinni akurvinnu; hann var og fr\u00e1 Efra\u00edmsfjalli, og framandi \u00ed G\u00edbea; en mennirnir \u00e1 \u00feeim sta\u00f0 v\u00f3ru Benjamin\u00edtar.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Og sem hann skyggndist um, s\u00e1 hann \u00feann vegfarandi mann \u00fear \u00e1 borgarstr\u00e6tinu, \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hinn gamli ma\u00f0ur: hv\u00f6rt \u00e6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 fara, og hva\u00f0an kemur \u00fe\u00fa a\u00f0?<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>hinn svara\u00f0i honum: vi\u00f0 komum handan fr\u00e1 Betlehem \u00ed J\u00fada, og \u00e6tlum til Efra\u00edmsfjallshl\u00ed\u00f0a, \u00fev\u00ed \u00fear \u00e1 eg heima; og eg fer\u00f0a\u00f0ist til Betlehem \u00ed J\u00fada, en n\u00fa fer eg til Drottins h\u00fass, og enginn vill lj\u00e1 m\u00e9r herbergi.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>V\u00e9r h\u00f6fum \u00fe\u00f3 hey og f\u00f3\u00f0ur n\u00f3g handa \u00f6snum vorum og n\u00f3g brau\u00f0 og v\u00edn handa m\u00e9r, \u00feernu \u00feinni og sveini, sem er \u00ed f\u00f6r me\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00fe\u00e9nara <span class='VideyAth'>(\u0254: m\u00e9r)<\/span>, svo oss brestur alls ekkert.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>\u00de\u00e1 svara\u00f0i hinn gamli ma\u00f0ur: fri\u00f0ur s\u00e9 me\u00f0 \u00fe\u00e9r! allt hva\u00f0 \u00feig kann a\u00f0 bresta, skaltu f\u00e1 hj\u00e1 m\u00e9r, ligg a\u00f0eins ekki \u00fati \u00ed n\u00f3tt \u00e1 opnu str\u00e6ti.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Og hann leiddi hann inn \u00ed sitt h\u00fas, og gaf \u00f6snum hans f\u00f3\u00f0ur; s\u00ed\u00f0an \u00fevo\u00f0u \u00feau f\u00e6tur s\u00edna og settust til bor\u00f0s.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>N\u00fa sem \u00feau v\u00f3ru gl\u00f6\u00f0 \u00ed hjarta s\u00ednu <span class='VideyAth'>(yfir \u00feessu)<\/span>, sj\u00e1! \u00fe\u00e1 umkringdu menn \u00far borginni\u2014einhv\u00f6rjir hinir \u00f6rgustu sk\u00e1lkar\u2014h\u00fasi\u00f0, b\u00f6r\u00f0u \u00e1 dyr, og s\u00f6g\u00f0u til \u00feess gamla manns, sem var h\u00fassb\u00f3ndi: lei\u00f0 \u00feann mann \u00fat hinga\u00f0, sem kominn er \u00ed \u00feitt h\u00fas, a\u00f0 v\u00e9r megum kenna hans.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>En ma\u00f0urinn sem var h\u00fassb\u00f3ndi \u00ed h\u00fasinu, gekk \u00fat til \u00feeirra og sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: nei, m\u00ednir br\u00e6\u00f0ur! gj\u00f6ri\u00f0 ekki \u00feetta illa verk, fyrst ma\u00f0ur \u00feessi er kominn \u00ed mitt h\u00fas, \u00fe\u00e1 fremji\u00f0 ekki sl\u00edka sv\u00edvir\u00f0ingu.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Sj\u00e1! h\u00e9r er m\u00edn d\u00f3ttir, sem enn n\u00fa er j\u00f3mfr\u00fa, og \u00feessa manns hj\u00e1kona, \u00fe\u00e6r vil eg lei\u00f0a \u00fat til y\u00f0ar, \u00fe\u00e6r megi\u00f0 \u00fe\u00e9r vanvir\u00f0a <span class='VideyAth'>(krenkja)<\/span>, og gj\u00f6ra vi\u00f0 \u00fe\u00e6r, hva\u00f0 y\u00f0ur gott \u00feykir, en fremji\u00f0 ekki \u00fev\u00edl\u00edka sv\u00edvir\u00f0ingu vi\u00f0 \u00feenna mann.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>En mennirnir vildu ekki hl\u00fd\u00f0a honum; \u00fe\u00e1 t\u00f3k ma\u00f0urinn hj\u00e1konu s\u00edna, og leiddi hana \u00fat til \u00feeirra, og \u00feeir kenndu hennar og mis\u00feyrmdu henni alla \u00fe\u00e1 n\u00f3ttu, allt til morguns; en sem af degi l\u00fdsti, l\u00e9tu \u00feeir hana fara.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an kom konan aftur snemma morguns, f\u00e9ll ni\u00f0ur fyrir \u00feess manns h\u00fasdyrum, hvar b\u00f3ndi hennar var inn \u00ed, og <span class='VideyAth'>(l\u00e1 \u00fear)<\/span> \u00feanga\u00f0 til bjart var or\u00f0i\u00f0.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>En sem b\u00f3ndi hennar f\u00f3r \u00e1 f\u00e6tur um morguninn, og lauk upp dyrunum \u00e1 h\u00fasinu, og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 ganga \u00fat, til a\u00f0 fara afsta\u00f0, sj\u00e1! \u00fe\u00e1 l\u00e1 hj\u00e1kona hans fallin, \u00fear \u00fati fyrir dyrunum og hendur hennar \u00e1 \u00ferepskildinum.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Hann sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til hennar: statt\u00fa upp! vi\u00f0 skulum fer\u00f0ast af sta\u00f0, en h\u00fan svara\u00f0i engu. \u00de\u00e1 t\u00f3k hann hana upp, og l\u00e9t hana \u00e1 asnann, bj\u00f3 sig til, og f\u00f3r til s\u00edns samasta\u00f0ar.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>En sem hann n\u00fa kom heim, t\u00f3k hann <span class='VideyAth'>(s\u00e9r)<\/span> kn\u00edf, lag\u00f0i hendur \u00e1 hj\u00e1konu s\u00edna, og hluta\u00f0i hana me\u00f0 beinum <span class='VideyAth'>(og \u00f6llu)<\/span> sundur \u00ed t\u00f3lf stykki; og sendi \u00feau \u00fat um \u00f6ll \u00cdsraels landamerki.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>En hv\u00f6r helst sem \u00fea\u00f0 s\u00e1, sag\u00f0i: \u00fev\u00edl\u00edkt hefir ekki ske\u00f0 e\u00f0ur s\u00e9st, \u00ed fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma a\u00f0 \u00cdsraelsb\u00f6rn f\u00f3ru \u00fat af Egyptalandi, allt til \u00feessa dags. Hugsi\u00f0 vel um \u00feetta, leggi\u00f0 r\u00e1\u00f0 og segi\u00f0 <span class='VideyAth'>(hva\u00f0 y\u00f0ur s\u00fdnist gj\u00f6ra skuli)<\/span>.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\">V. 1. Framandi sj\u00e1 D\u00f3m. 17,8. 18,1. 19,18.  V. 2. H\u00f3s. 9,1.  V. 3. 1 M\u00f3s. 34,3. H\u00f3s. 2,14.  V. 9. Jer. 6,4. L\u00fak. 24,29.  V. 10. J\u00f3s. 15,8.  V. 15. D\u00f3m. 20,4 og s. fr. 19,18.  V. 17. 1 M\u00f3s. 16,8. Skyggndist um; heb. upplyfti s\u00ednum augum.  V. 18. Drottins h\u00fass, nl. til S\u00edl\u00f3, sem var \u00ed n\u00e1grenni vi\u00f0 heimili hans.  V. 19. \u00deernu \u00feinni\u2014\u00fe\u00e9nara \u00fe\u00ednum; eru h\u00e6versku- og au\u00f0m\u00fdktaror\u00f0.  V. 20. D\u00f3m. 6,23. 1 Sam. 25,6. Dan. 10,18.  V. 21. 1 M\u00f3s. 18,4. 19,2.  V. 22. D\u00f3m. 16,25. 1 M\u00f3s. 19,4.  V. 23. 1 M\u00f3s. 19,7. 34,7.  V. 24. 1 M\u00f3s. 19,8.  V. 29. D\u00f3m. 20,6.  V. 30. D\u00f3m. 18,14. 20,7.<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Illvirki Gibe\u00edta. 1\u00c1 \u00feeim d\u00f6gum, \u00fe\u00e1 enginn k\u00f3ngur var \u00ed \u00cdsrael, bj\u00f3 ma\u00f0ur nokkur af Lev\u00ed \u00e6tt sem framandi var \u00ed Efraimsfjallbygg\u00f0um, s\u00e1 hinn sami t\u00f3k s\u00e9r hj\u00e1 konu fr\u00e1 Betlehem \u00ed J\u00fada,2og \u00feessi hj\u00e1kona var honum \u00f3tr\u00fa, og f\u00f3r fr\u00e1 honum \u00ed s\u00edns f\u00f6\u00f0urs h\u00fas \u00ed Betlehem \u00ed J\u00fada og var \u00fear \u00ed 4 m\u00e1nu\u00f0i.3En b\u00f3ndi hennar t\u00f3k sig upp og f\u00f3r eftir henni, og vildi tala \u00ed k\u00e6rleika vi\u00f0 hana, til a\u00f0 f\u00e1 hana heim (til s\u00edn) aftur, og hann haf\u00f0i me\u00f0 s\u00e9r svein sinn og tvo asna. H\u00fan leiddi hann \u00fe\u00e1 inn \u00ed h\u00fas f\u00f6\u00f0ur s\u00edns, og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/domarabokin-19-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21079","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21079","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21079"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21079\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21079"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}