{"id":21074,"date":"2018-01-02T01:00:14","date_gmt":"2018-01-02T01:00:14","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/domarabokin-14-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T01:00:14","modified_gmt":"2018-01-02T01:00:14","slug":"domarabokin-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/domarabokin-14-kafli\/","title":{"rendered":"D\u00f3marab\u00f3kin 14. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">Samsons vi\u00f0ureign vi\u00f0 lj\u00f3ni\u00f0. Br\u00fa\u00f0kaup, og g\u00e1ta.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Og Samson gekk ni\u00f0ur til Timna og s\u00e1 \u00fear kvinnu nokkra af Filisteanna d\u00e6trum.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Og sem hann kom til baka, gaf hann \u00feetta f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum og m\u00f3\u00f0ur sinni til kynna, og m\u00e6lti: eg hefi s\u00e9\u00f0 kvinnu \u00ed Timna af Filisteanna d\u00e6trum; taki\u00f0 hana \u00fev\u00ed handa m\u00e9r til eiginkonu.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>En fa\u00f0ir hans og m\u00f3\u00f0ir s\u00f6g\u00f0u til hans: er \u00fe\u00e1 engin kvinna me\u00f0al d\u00e6tra br\u00e6\u00f0ra \u00feinna, og hj\u00e1 \u00f6llu \u00fe\u00ednu f\u00f3lki, a\u00f0 \u00fe\u00fa vilt fara \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 taka \u00fe\u00e9r eiginkvinnu, af Filisteum, sem eru \u00f3umskornir? Samson svara\u00f0i f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum: l\u00e1t mig f\u00e1 \u00feessa, \u00fev\u00ed h\u00fan \u00fe\u00f3knast m\u00ednum augum.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>En fa\u00f0ir hans og m\u00f3\u00f0ir vissu ekki a\u00f0 \u00feetta var af Drottni, og a\u00f0 hann leita\u00f0i t\u00e6kif\u00e6ris vi\u00f0 Filisteana; \u00fev\u00ed a\u00f0 Filistear drottnu\u00f0u \u00ed \u00feann t\u00edma yfir \u00cdsrael.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gekk Samson og fa\u00f0ir hans og m\u00f3\u00f0ir hans <span class='VideyAth'>(ni\u00f0ur)<\/span> til Timna, og sem \u00feau komu a\u00f0 Timnats v\u00edng\u00f6r\u00f0um, sj\u00e1! \u00fe\u00e1 kom ungt lj\u00f3n \u00f6skrandi \u00e1 m\u00f3ti honum.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Og Gu\u00f0s Andi kom yfir hann, svo hann sundursleit \u00fea\u00f0, eins og \u00fe\u00e1 ma\u00f0ur sundursl\u00edtur hafurki\u00f0, og haf\u00f0i \u00fe\u00f3 alls ekkert \u00ed hendi s\u00e9r; og eigi sag\u00f0i hann f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum n\u00e9 m\u00f3\u00f0ur sinni fr\u00e1 \u00fev\u00ed, hva\u00f0 hann haf\u00f0i a\u00f0hafst.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>En sem hann kom ofan, tala\u00f0i hann vi\u00f0 kvinnuna, og h\u00fan \u00fe\u00f3kna\u00f0ist Samsons augum.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Og a\u00f0 nokkrum d\u00f6gum li\u00f0num, kom hann aftur til a\u00f0 giftast henni. Og hann gekk af veginum til a\u00f0 sj\u00e1 lj\u00f3nshr\u00e6i\u00f0, og sj\u00e1! \u00fe\u00e1 var b\u00fdflugnab\u00fa \u00ed lj\u00f3nshr\u00e6inu og hunang.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Og hann t\u00f3k \u00fea\u00f0 s\u00e9r \u00ed hendur, h\u00e9lt svo \u00e1fram og \u00e1t <span class='VideyAth'>(\u00fear af)<\/span>, f\u00f3r til f\u00f6\u00f0ur s\u00edns og m\u00f3\u00f0ur sinnar og gaf \u00feeim \u00fear af, svo \u00feau \u00e1tu l\u00edka, en hann sag\u00f0i \u00feeim <span class='VideyAth'>(\u00fe\u00f3)<\/span> ekki fr\u00e1, a\u00f0 hann hef\u00f0i teki\u00f0 hunangi\u00f0 af lj\u00f3nshr\u00e6inu.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Og sem fa\u00f0ir hans kom ni\u00f0ur til kvinnunnar, \u00fe\u00e1 gj\u00f6r\u00f0i Samson \u00fear veislu, \u00fev\u00ed s\u00e1 var h\u00e1ttur ungra manna.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Og sem \u00feeir s\u00e1u hann, g\u00e1fu \u00feeir honum \u00ferj\u00e1t\u00edu lagsbr\u00e6\u00f0ur, sem hj\u00e1 honum skyldu vera.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>En Samson sag\u00f0i til \u00feeirra: eg vil bera upp fyrir y\u00f0ur g\u00e1tu eina, og ver\u00f0i svo, a\u00f0 \u00fe\u00e9r geti\u00f0 r\u00e1\u00f0i\u00f0 hana \u00e1 \u00feessum sj\u00f6 veislud\u00f6gum, \u00fe\u00e1 skal eg gefa y\u00f0ur \u00ferj\u00e1t\u00edu skyrtur og \u00ferj\u00e1t\u00edu h\u00e1t\u00ed\u00f0arkl\u00e6\u00f0i.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>En ef \u00fe\u00e9r geti\u00f0 ekki r\u00e1\u00f0i\u00f0 hana, \u00fe\u00e1 skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r gefa m\u00e9r \u00ferj\u00e1t\u00edu skyrtur og \u00ferj\u00e1t\u00edu h\u00e1t\u00ed\u00f0arkl\u00e6\u00f0i. \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u honum: ber \u00fe\u00fa upp g\u00e1tu \u00fe\u00edna, og l\u00e1t oss heyra hana.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>Og hann sag\u00f0i til \u00feeirra: \u201ematur gekk \u00fat af etanda, og s\u00e6tleiki \u00fat af \u00feeim sterka\u201c. Og \u00feeir g\u00e1tu ekki r\u00e1i\u00f0i\u00f0 \u00feessa g\u00e1tu \u00ed \u00ferj\u00e1 daga.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>En \u00e1 sj\u00f6unda degi s\u00f6g\u00f0u \u00feeir vi\u00f0 kvinnu Samsons: lokka \u00fe\u00fa b\u00f3nda \u00feinn til a\u00f0 segja oss g\u00e1tu \u00feessa, ella skulum v\u00e9r brenna \u00feig og \u00fe\u00edns f\u00f6\u00f0urs h\u00fas \u00ed bj\u00f6rtu b\u00e1li; hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 gj\u00f6rt oss heimbo\u00f0 til a\u00f0 f\u00e9fletta oss? er ekki svo?<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gr\u00e9t Samsons kvinna fyrir honum og sag\u00f0i: \u00fe\u00fa hatar mig, en elskar ekki, \u00fear \u00fe\u00fa hefir bori\u00f0 g\u00e1tu upp fyrir b\u00f6rnum m\u00edns f\u00f3lks og ekki sagt m\u00e9r r\u00e1\u00f0ningu hennar; hann svara\u00f0i henni: sj\u00e1! eg hefi ekki sagt f\u00f6\u00f0ur m\u00ednum n\u00e9 m\u00f3\u00f0ur minni hana, og hv\u00ed skyldi eg \u00fe\u00e1 segja \u00fe\u00e9r hana?<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Og h\u00fan gr\u00e9t fyrir honum \u00fe\u00e1 sj\u00f6 daga, sem veislan st\u00f3\u00f0 yfir, og \u00e1 \u00feeim sj\u00f6unda degi sag\u00f0i hann henni r\u00e1\u00f0ninguna, \u00fev\u00ed h\u00fan gekk svo fast \u00e1 hann; og s\u00ed\u00f0an sag\u00f0i h\u00fan b\u00f6rnum s\u00edns f\u00f3lks hana.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u b\u00e6jarmenn til hans \u00e1 sj\u00f6unda degi \u00e1\u00f0ur en s\u00f3l settist: hva\u00f0 er s\u00e6tara en hunang? og hva\u00f0 er sterkara en lj\u00f3n? \u00de\u00e1 sag\u00f0i Samson til \u00feeirra: ef \u00fe\u00e9r hef\u00f0u\u00f0 ekki erja\u00f0 me\u00f0 minni kv\u00edgu, mundu\u00f0 \u00fe\u00e9r ei hafa r\u00e1\u00f0i\u00f0 m\u00edna g\u00e1tu.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00de\u00e1 kom Andi Drottins yfir hann, svo hann f\u00f3r ofan til Askon og drap \u00ferj\u00e1t\u00edu menn af \u00feeim, t\u00f3k \u00feeirra kl\u00e6\u00f0i, og gaf \u00feeim til h\u00e1t\u00ed\u00f0akl\u00e6\u00f0na\u00f0ar, sem r\u00e1\u00f0i\u00f0 h\u00f6f\u00f0u g\u00e1tu hans, og hann var\u00f0 \u00e1kaflega rei\u00f0ur, og f\u00f3r upp til s\u00edns f\u00f6\u00f0urs h\u00fass.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>En Samsons kvinna var gift einum hans stallbr\u00e6\u00f0ra, sem veri\u00f0 h\u00f6f\u00f0u hj\u00e1 honum.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\">V. 2. 1 M\u00f3s. 34,4.  V. 3. 2 M\u00f3s. 34,16.  V. 4. D\u00f3m. 13,1.  V. 6. D\u00f3m. 6,34. 15,14.  V. 7. v. 3.  V. 12. 1 M\u00f3s. 45,22.  V. 13. H\u00e1t\u00ed\u00f0akl\u00e6\u00f0i: eftir textanum: kl\u00e6\u00f0i til umskipta.  V. 14. Sterka: getur og svo \u00fatlagst: grimma, sem ei \u00e1 s\u00ed\u00f0ur vi\u00f0.  V. 15. D\u00f3m. 16,5. 12,1.  V. 17. D\u00f3m. 16,16.17.  V. 18. D\u00f3m. 13,25.  V. 20. D\u00f3m. 15,2.<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Samsons vi\u00f0ureign vi\u00f0 lj\u00f3ni\u00f0. Br\u00fa\u00f0kaup, og g\u00e1ta. 1Og Samson gekk ni\u00f0ur til Timna og s\u00e1 \u00fear kvinnu nokkra af Filisteanna d\u00e6trum.2Og sem hann kom til baka, gaf hann \u00feetta f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum og m\u00f3\u00f0ur sinni til kynna, og m\u00e6lti: eg hefi s\u00e9\u00f0 kvinnu \u00ed Timna af Filisteanna d\u00e6trum; taki\u00f0 hana \u00fev\u00ed handa m\u00e9r til eiginkonu.3En fa\u00f0ir hans og m\u00f3\u00f0ir s\u00f6g\u00f0u til hans: er \u00fe\u00e1 engin kvinna me\u00f0al d\u00e6tra br\u00e6\u00f0ra \u00feinna, og hj\u00e1 \u00f6llu \u00fe\u00ednu f\u00f3lki, a\u00f0 \u00fe\u00fa vilt fara \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 taka \u00fe\u00e9r eiginkvinnu, af Filisteum, sem eru \u00f3umskornir? Samson svara\u00f0i f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum: l\u00e1t mig f\u00e1 \u00feessa, \u00fev\u00ed h\u00fan \u00fe\u00f3knast <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/domarabokin-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21074","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21074","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21074"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21074\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21074"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}