{"id":21011,"date":"2018-01-02T00:59:56","date_gmt":"2018-01-02T00:59:56","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/videy\/fimmta-mosebok-9-kafli\/"},"modified":"2018-01-02T00:59:56","modified_gmt":"2018-01-02T00:59:56","slug":"fimmta-mosebok-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/videy\/fimmta-mosebok-9-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 9. kafli"},"content":{"rendered":"<div class=\"fyrirsognVidey\">\u00cdsraelsb\u00f6rn mega ei \u00e6tla a\u00f0 \u00feau hafi ver\u00f0skulda\u00f0 Gu\u00f0s miklu velgj\u00f6rninga.<\/div>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Heyr \u00fe\u00fa \u00cdsrael! \u00ed dag muntu fara yfir um J\u00f3rdan til a\u00f0 hrekja burtu \u00fej\u00f3\u00f0ir sem eru st\u00e6rri og voldugri en \u00fe\u00fa, st\u00f3rar borgir m\u00fara\u00f0ar upp \u00ed h\u00e1loft,<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>til mikillar og voldugrar \u00fej\u00f3\u00f0ar, Enakimsni\u00f0ja, um hv\u00f6rja \u00fe\u00e9r \u00feekki\u00f0 og heyrt hafi\u00f0 \u00feetta m\u00e1lt\u00e6ki; \u201ehv\u00f6r getur sta\u00f0i\u00f0 m\u00f3ti Enakimsni\u00f0jum?\u201c<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00de\u00fa munt \u00fev\u00ed reyna \u00e1 \u00feessum degi a\u00f0 Drottinn \u00feinn Gu\u00f0, mun ganga \u00e1 undan \u00fe\u00e9r, sem brennandi eldur, hann mun ey\u00f0a \u00feeim og undiroka fyrir \u00fe\u00e9r, hann mun reka \u00fe\u00e1 \u00ed burtu, og fyrirkoma \u00feeim snarlega, eins og Drottinn hefir lofa\u00f0 \u00fe\u00e9r. <br \/><a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>En \u00feegar Drottinn hefir \u00fatreki\u00f0 \u00feessar \u00fej\u00f3\u00f0ir fyrir \u00feig, \u00fe\u00e1 hugsa\u00f0u ekki me\u00f0 sj\u00e1lfum \u00fe\u00e9r: s\u00f6kum vors r\u00e9ttl\u00e6tis hefir Drottinn leitt oss til eignar \u00e1 \u00feessu landi, og hann hefir \u00fatreki\u00f0 \u00feessar \u00fej\u00f3\u00f0ir fr\u00e1 s\u00e9r vegna \u00feeirra gu\u00f0leysis. <br \/><a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00dev\u00ed hv\u00f6rki vegna r\u00e9ttl\u00e6tis \u00fe\u00edns, e\u00f0ur r\u00e1\u00f0vendni hjarta \u00fe\u00edns gengur \u00fe\u00fa a\u00f0 eignast landi\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn \u00feinn Gu\u00f0 \u00fatrekur \u00feessar \u00fej\u00f3\u00f0ir fyrir \u00feig vegna \u00feeirra eigin gu\u00f0leysis, og til \u00feess hann haldi \u00feau lofor\u00f0 sem hann gaf forfe\u00f0rum \u00fe\u00ednum Abraham, \u00cdsaak og Jakob.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00de\u00fa skalt \u00fe\u00e1 vita a\u00f0 Drottinn \u00feinn Gu\u00f0 gefur \u00fe\u00e9r ekki til eignar land \u00feetta i\u00f0 g\u00f3\u00f0a s\u00f6kum nokkura ver\u00f0leika \u00feinna, \u00fe\u00fa ert miklu fremur har\u00f0sv\u00edru\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0. <br \/><a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Mundu til \u00feess, og gleym \u00fev\u00ed aldrei, hv\u00f6rnin \u00fe\u00fa reittir Drottin \u00feinn Gu\u00f0 til rei\u00f0i \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni; fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa fyrst lag\u00f0ir af sta\u00f0 \u00far Egyptalandi, og \u00fear til \u00fe\u00e9r komust hinga\u00f0, hafi\u00f0 \u00fe\u00e9r veri\u00f0 Drottni \u00f3hl\u00fd\u00f0nir.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Hj\u00e1 H\u00f3reb reittu\u00f0 \u00fe\u00e9r Drottin svo til rei\u00f0i, a\u00f0 hann \u00ed rei\u00f0i sinni \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 ey\u00f0ileggja y\u00f0ur. <br \/><a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>\u00deegar eg var kominn upp \u00e1 fjalli\u00f0 til a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti steint\u00f6flunum, t\u00f6flunum sem s\u00e1ttm\u00e1linn var \u00e1, er Drottinn haf\u00f0i gj\u00f6rt vi\u00f0 y\u00f0ur, og eg h\u00e9lt \u00fear til \u00e1 fjallinu \u00ed 40 daga og 40 n\u00e6tur, \u00e1n \u00feess a\u00f0 smakka \u00feurrt e\u00f0ur vott <span class='VideyAth'>(neyta matar e\u00f0a drykkjar)<\/span>,<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>og Drottinn f\u00e9kk m\u00e9r 2 steint\u00f6flur, skrifa\u00f0ar me\u00f0 Gu\u00f0s fingri, hvar \u00e1 voru \u00f6ll \u00feau or\u00f0 sem Drottinn haf\u00f0i tala\u00f0 vi\u00f0 y\u00f0ur \u00e1 fjallinu, mitt \u00far eldsloganum, daginn sem \u00fe\u00e9r voru\u00f0 \u00fear samankomnir,<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 \u00feessir 40 dagar og 40 n\u00e6tur voru li\u00f0nar, f\u00e9kk Drottinn m\u00e9r \u00fe\u00e6r 2 steint\u00f6flur s\u00e1ttm\u00e1lans,<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>og sag\u00f0i vi\u00f0 mig: stattu upp og far\u00f0u h\u00e9\u00f0an flj\u00f3tt, \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk \u00feitt sem \u00fe\u00fa leiddir \u00fat af Egyptalandi, hefur misbroti\u00f0 og viki\u00f0 flj\u00f3tt af \u00feeim vegi sem eg lag\u00f0i fyrir \u00fe\u00e1, \u00feeir hafa tilb\u00fai\u00f0 handa s\u00e9r steypt l\u00edkneski;<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>og Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 mig \u00feessi or\u00f0: eg s\u00e9 a\u00f0 \u00feetta f\u00f3lk er har\u00f0sv\u00edra\u00f0,<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>lofa\u00f0u m\u00e9r a\u00f0 afm\u00e1 \u00fea\u00f0 og uppr\u00e6ta \u00feess nafn undir himninum, en eg vil gj\u00f6ra \u00fat af \u00fe\u00e9r voldugri og fj\u00f6lmennari \u00fej\u00f3\u00f0 en \u00feessi er.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Eg br\u00e1 vi\u00f0 og gekk ofan af fjallinu sem loga\u00f0i \u00ed eldi, og haf\u00f0i \u00ed b\u00e1\u00f0um h\u00f6ndum \u00fe\u00e6r 2 s\u00e1ttm\u00e1lst\u00f6flur,<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 s\u00e1 eg a\u00f0 \u00fe\u00e9r h\u00f6f\u00f0u\u00f0 syndga\u00f0 m\u00f3ti Drottni Gu\u00f0i y\u00f0ar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tilb\u00faa y\u00f0ur steyptan k\u00e1lf, og voru\u00f0 \u00feannig flj\u00f3tt viknir af \u00feeim vegi sem Drottinn haf\u00f0i lagt fyrir y\u00f0ur;<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 greip eg b\u00e6\u00f0i spj\u00f6ldin, og \u00feeytti \u00feeim af b\u00e1\u00f0um h\u00f6ndum, og braut \u00feau \u00ed sundur fyrir augunum \u00e1 y\u00f0ur;<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>en eg f\u00e9ll fram fyrir Drottin eins og \u00e1\u00f0ur \u00ed fyrra sinni, \u00ed 40 daga og 40 n\u00e6tur, og smakka\u00f0i hv\u00f6rki \u00feurrt n\u00e9 vott, s\u00f6kum allra y\u00f0ar synda sem \u00fe\u00e9r h\u00f6f\u00f0u\u00f0 dr\u00fdgt, er \u00fe\u00e9r breyttu\u00f0 svo illa \u00ed hans augum a\u00f0 hann reiddist y\u00f0ur.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 eg var hr\u00e6ddur vi\u00f0 \u00fe\u00e1 rei\u00f0i og heiftarbr\u00e6\u00f0i, sem Drottinn haf\u00f0i til y\u00f0ar, svo hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 afm\u00e1 y\u00f0ur, en \u00fe\u00e1 b\u00e6nheyr\u00f0i Drottinn mig.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Drottinn reiddist l\u00edka mj\u00f6g Aroni, svo hann vildi afm\u00e1 hann en eg ba\u00f0 \u00fe\u00e1 l\u00edka strax fyrir Aron.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>En y\u00f0ar synd\u2014k\u00e1lfinn sem \u00fe\u00e9r h\u00f6f\u00f0u\u00f0 tilb\u00fai\u00f0\u2014t\u00f3k eg, brenndi hann \u00ed eldi og <span class='VideyAth'>(muldi sm\u00e1tt)<\/span> \u00feanga\u00f0 til hann var\u00f0 a\u00f0 dufti, en duftinu \u00feeytti eg \u00fat \u00e1 \u00feann l\u00e6k sem \u00fear rann ofan af fjallinu.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00cd Tabera, \u00ed Massa og hj\u00e1 Girndargr\u00f6funum <span class='VideyAth'>*)<\/span> reittu\u00f0 \u00fe\u00e9r l\u00edka Drottin til rei\u00f0i;<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>og \u00feegar Drottinn sendi y\u00f0ur \u00far Kadesbarnea og sag\u00f0i: fari\u00f0 og n\u00e1i\u00f0 undir y\u00f0ur landinu sem eg hefi gefi\u00f0 y\u00f0ur, \u00fe\u00e1 voru\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00f3hl\u00fd\u00f0nir skipun Drottins y\u00f0ar Gu\u00f0s; \u00fe\u00e9r tr\u00fa\u00f0u\u00f0 honum ekki, og hl\u00fdddu\u00f0 ekki hans raustu,<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>\u00fev\u00ed \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 veri\u00f0 \u00f3\u00feekkir Drottni fr\u00e1 \u00fev\u00ed eg \u00feekkti y\u00f0ur fyrst.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Eg f\u00e9ll \u00feess vegna fram fyrir hann \u00ed 40 daga og 40 n\u00e6tur, og l\u00e1 \u00feannig, \u00fev\u00ed hann kva\u00f0st mundi afm\u00e1 y\u00f0ur,<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>eg ba\u00f0 Drottin og sag\u00f0i: Drottinn minn Gu\u00f0, afm\u00e1 ekki \u00feitt f\u00f3lk, og \u00feinn eigind\u00f3m sem \u00fe\u00fa frelsa\u00f0ir me\u00f0 \u00fe\u00ednum mikla krafti, sem \u00fe\u00fa \u00fatleiddir af Egyptalandi me\u00f0 voldugri hendi;<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>minnstu \u00e1 \u00fe\u00edna \u00fe\u00e9nara Abraham, \u00cdsaak og Jakob, en l\u00edt ekki \u00e1 \u00feverm\u00f3\u00f0skugu\u00f0leysi og gl\u00e6pi f\u00f3lks \u00feessa,<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>svo landi\u00f0 sem \u00fe\u00fa leiddir oss \u00fat \u00far geti ekki sagt: \u201eDrottinn gat \u00fe\u00e1 ekki leitt \u00fe\u00e1 inn \u00ed landi\u00f0 eins og hann haf\u00f0i lofa\u00f0 \u00feeim\u201c, ellegar, \u201eaf hatri leiddi hann \u00fe\u00e1 burtu til a\u00f0 drepa \u00fe\u00e1 ni\u00f0ur \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni\u201c.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00dev\u00ed \u00feeir eru \u00fe\u00edn \u00fej\u00f3\u00f0, \u00fe\u00edn eign, sem \u00fe\u00fa \u00fatleiddir me\u00f0 \u00fe\u00ednum mikla krafti og me\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00fatr\u00e9tta armlegg.<\/p>\n<div class=\"footnoteVidey\">*) Um \u00feetta nafn, sj\u00e1 4 M\u00f3s. 11,34.35.<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cdsraelsb\u00f6rn mega ei \u00e6tla a\u00f0 \u00feau hafi ver\u00f0skulda\u00f0 Gu\u00f0s miklu velgj\u00f6rninga. 1Heyr \u00fe\u00fa \u00cdsrael! \u00ed dag muntu fara yfir um J\u00f3rdan til a\u00f0 hrekja burtu \u00fej\u00f3\u00f0ir sem eru st\u00e6rri og voldugri en \u00fe\u00fa, st\u00f3rar borgir m\u00fara\u00f0ar upp \u00ed h\u00e1loft,2til mikillar og voldugrar \u00fej\u00f3\u00f0ar, Enakimsni\u00f0ja, um hv\u00f6rja \u00fe\u00e9r \u00feekki\u00f0 og heyrt hafi\u00f0 \u00feetta m\u00e1lt\u00e6ki; \u201ehv\u00f6r getur sta\u00f0i\u00f0 m\u00f3ti Enakimsni\u00f0jum?\u201c3\u00de\u00fa munt \u00fev\u00ed reyna \u00e1 \u00feessum degi a\u00f0 Drottinn \u00feinn Gu\u00f0, mun ganga \u00e1 undan \u00fe\u00e9r, sem brennandi eldur, hann mun ey\u00f0a \u00feeim og undiroka fyrir \u00fe\u00e9r, hann mun reka \u00fe\u00e1 \u00ed burtu, og fyrirkoma \u00feeim snarlega, eins og Drottinn hefir lofa\u00f0 \u00fe\u00e9r. <a href=\"https:\/\/biblian.is\/videy\/fimmta-mosebok-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-21011","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21011","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21011"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/21011\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/videy\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21011"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}